Ísafold - 14.11.1927, Page 4
4
I S A F 0 L D
Frjettir
Dánarfregn. í’yrir skömmu l.jest
í Vestmannaeyjum húsfrú Mar-
grjet Brynjólfsdóttir, Miðhúsum.
Hún var á áttræðisaldri, gift
Hannesi Jónssyni hafnsögumanm,
og hafði allan sinn aldur átt heima
í Vestmannaeyjum. Hún var góð
kona.
Dánarfregn. Þ. 4. þ. mán. ljest á
Alland-heilsuhæli í Austurríki
Hrafnkell Einarsson, Þorkellsson-
ar, fyrv. skrifstofustjóra Aiþingis.
Hann var 22 ára að aldri, fæddur
13. ágúst 1905. Stúdent varð hann
1923 með ágætiseinkunn. Lagði
hann síðan stund á hagfræði, fyrst
við háskólann í Kiel, en síðan í
Austurríki. Var hann kominn að
því að lúka embættisprófi, og hafði
'ætlað heim seinni partinn í vetur
til þess að viða að sjer efni í dokt-
orsritgerð um fiskveiðar íslend-
inga. En 11. mars veiktist hann af
lungnabólgu, liún leiddi til brjóst-
himnubólgu, og varð hún bana-
mein lians. — Hrafnkell var hinn
mesti efnismaður.
Stúdentspróf. Þessir námsmenn
hafa nýverið lokið stúdentsprófi í
Mentaskólanum, en þeir urðu að
hætta í vor vegna veikinda: Pinn-
bogi Rútur Valdimarsson (I. eink.,
7,39 stig), Ófeigur Ófeigsson (II.
eink., 5,37 st.) og Jóhann Sveins-
son (III. eink., 4. 35 st.) Hlaut
Finnbogi hæstu einkunn þeirra, er
útskrifuðust lir skólanum í ár..
Ræðismannaskifti hafa Frakkar
lijer í Reykjavík, um þessar mund-
ir. Lætur Fiez-Vandal ræðismaður,
sem hjer hefir verið, af starfinu,
en við tekur maður, Simon, að
nafni, og kom hann með Islandi
hingað síðast.
íslendingum veitt verðlaun er-
lendis. Við lok prófs í Kaupmanna-
skólanum í Höfn, hlutu tveir ís-
lendingar, Þorsteinn Jóhannsson
og Bjami Sigurðsson, báðir frá
ísafirði, 200 kr. verðlaun hvor, af
Lefolii-sjóði.
Gunnar Gunnarsson skáld er
nýbúinn að gefa út nýja skáld-
'sögu, er heitir „Den uerfarne
Rejsende.“ Er hún framhald af
fyrri bókum hans, „Uggi Hreips-
sons Optegnelser.“ Chr. Rimestad
hefir skrifað um þessa nýkomnu
bók, og telur hana bestu bókina,
sem hafi komið út eftir Gunnar.
Lík fundið. — Nýlega voru
menn á báti framan við Geirs-
hryggju; sáu þeir lík á botninum
framan við bryggjuna. Því var
þegar náð og það flutt í líkhúsið.
•— Eftir skoðun, sem fram fór
á því, þykir fullsannað, að það
sje af Gruðmundi nokkrum Guð-
mundssyni, ættuðum frá Ána-
naustum. Var hann einhleypur
maður um þrítugt, og hafði búið
nú síðast í gistihúsi Hjálpræðis-
hersins.
Aflabrögð eru sæmileg í Kefla-
vík um þessar mundir. — Til
fiskveiða ganga þaðan nú ekki
nema smábátar að vísu, en hafa
aflað vel. Mestur hluti aflans er
seldur hingað til Reykjavíkur.
Húsbyggingar eru með meira
móti í Keflavík þetta haust.. Eru
4 hús þar í byggingu um þessar
mundir, og nokkur búin.
Bræðslufjelag Keflavíkur er að
láta byggja lifrarbræðslustöð, sem
útbúin á að vera með nýjustu tækj
um og vjelum. Komið hefir til
mála, að síðar verði aukið við
vjelarnar, og þama unninn áburð-
ur úr fiskúrgangi.
í f járhagsáætlun Akureyrarbæj-
ar, fyrir næsta ár eru tekjur og
gjöld áætluð 272,540 kr. Er það
álíka upphæð og undanfarandi ár.
Niðurjöfnun útsvara á Akur-
eyri. Búist er við að þar verði
jafnað niður 135,240 kr. Er það
1500 kr. hærra en í fyrra.
Hafnarvirkin á Akureyri. Eins
og getið hefir verið um hjer í blað •
inu Iiefir farið fram á Akureyri
í sumar dýpkun Oddeyrarbétar-
innar. Hefir verið unnið að því
verki af dýpkunarskipinu Tjffe.
Þræta reis milli bæjarstjórnarinn-
ar á Akureyri annarsvegar og rík-
isstjórnarinnar og eigenda Uffe
hinsvegar. Stóð þrætan um 50 þús.
lcr., sem bæjarsjóður á Akureyri
taldi sig eklci þurfa að borga. —
Þessi þræta hefir nú verið útkljáð
á þeim grundvelli, að bærinn borgi
35 þús. kr., er greiðist í árslok
1928,
Mikill afli hefir verið á Húsa-
vík í alt sumar og alt fram að
þessum tíma. Hafa vjelb’átar, sem
best hafa aflað, fengið um 500
skpd. af þurrum fiski. Þegar Goða-
foss fór þar um seinast, fengu
vjelbátar 4—7000 í róðri. Síldar-
afli var þá og góður í reknet. —
Fiskurinn hefir verið sóttur mjög
skamt, miklu skemra en undanfar-
in ár. Arabátar, sem elcki reru
lengra en norðvestur af %liöfð-
anum, eða. inn undir Saltvík, tví-
hlóðu þráfaldlega.
Jarðabætur hafa verið með
niesta inóti í Húsavík seinustu ár-
in og er mikill ræktunarhugur í
mönnum þar. Má svo segja, að
bæði allur „reiturinn“ og höfðinn
sje nú teknir til túnræktar. Hafa
Húsvíkingar nú nægan áburð síð-
an ]ieir fóru að hirða alt slóg og
úrgang úr fiski. j
Dánarfregn. Axel Jónsson bóndi
á Asi í Kelduhverfi var á leið með
'fjárrekstur til Kópaskers í haust.
En er hann kom norður fyrir
Skinnastaði, kendi liann stings
innvortis. Hjelt hann nú áfram,
en komst ekki lengra en að Núpi.
Þar lagðist hann og var látinn
eftir þrjá daga.
Bræðumir frá Sandi, Guðmund-
ur og Sigurjón Friðjónssynir, eru
staddir á Akureyri þessa dagana.
Ætlaði Sigurjón að flytja þar er-
indi núna um helgina og lesa upp
kvæði eftir sig, síðan ætlar Guð-
mundur að láta til sín heyra þar.
Frá Siglufirði var símað nýl.,
að snjór hefði minkað þar mikið
seinni part síðastliðinnar viku, en
fyrir hálfum mánuði hlóð þar nið-
ur miklum snjó.
Um 3500 tunnur af síld eru enn
á Siglufirði, að því er fregn að
norðan hermir. Af því á Kveld-
úlfur um 3000 tunnur. Búist er við
því, að þessi síld fari iill innan
skainms.
Ágætis fiskafli er enn á Siglu-
firði. Segja gamlir menn þar
nyrðra, að margir áratugir sjeu
síðan fiskur hjelst svo lengi við
fyrir Norðurlandi. Það, sem aflast
er alt saman rígaþorskur.
%
Frá Stykkishólmi er skrifað: —
Hjer hefir verið ágætis tíð und-
anfarið, og sjósókn daglega, en
afli hefir verið fremur tregur. —
Hjeðan ganga nú 3 vjelbátar til
fiskveiða, og 2 bætast bráðlega í
hópinn. Tveir þessara fimm báta
eru opnir — voru smíðaðir hjer i
sumar. Bátarnir eru eign sjómanna
hjer í þorpinu.
Dýralæknisembættið vestan-
lands. Nýléga er skrifað úr Stykk-
ishólmi á þessa leið: Sá orðrómur
gengur hjer, að í ráði sje að
leggja niður dýralæknisembættið
hjei' vestanlands, en aðsetur dýra-
læknis hefir verið eins og kunnugt
‘er, hjer í Stykkishólmi undan-
farið. Það fylgir sögunni, að uppá-
stungan að þessari ráðabreytni
muni Vera komin frá sparnaðar-
nefnd, en í henni er dýralæknir
okkar. En á honum hefir mátt
skilja, að starf hans hjer vestra
væri mjog umfangsmikið, og er
það ekki ólíklegt. En því úskilj-
anlegra er, að horfið verði að ]>ví
ráði að leggja þetta embætti niður,
eða að núverandi dýralæknir þar
sje þar með í ráðum.
Jón biskup Helgason hefir eftir
beiðni danska blaðsins Köbenhavn
gert grein fyrir þeirri spurningu
þess: „Hefir heimsstyrjöldin og af-
leiðingar hennar fjarlægt menn
frá kirkjunni.“ í langri, ítarlegri
grein sýnir biskupinn fram á það,
að ekki er um neinn árekstur að
ræða milli íslensku kirkjunnar og
'almennings hjer á landi, og allra
síst vegna afleiðinga styrjaldar-
innar. Biskupinn lætur í ljósi þá
Garðar Gíslason
6 Humber Place, Hull,
annast innkaup á erlendum vörum,
og sölu islenskra affurða.
Spaethe
Piano og Harmonium
eru viðurkend um heim allan. — Hafa hlotið
fjölda heiðurspeninga, þar á meðal tvo á
þessu ári.
Orgel með tvöföldum og þreföldum hljóð-
um jafnan fyrirliggjandi.
Hvergi betri kaup. FAst með afborgunum.
Sturlauguv* Jónsson & Co.
Hafnarstræti 19. Reykjavík. Sími 1680
Goopers balðyf
ávalt fyrirligg|andi i
heildverslun
Barðars ttislasenar.
ósk, að Norðurlandakirkjumai-
yrðu fyrir sem mestum áhrifum
hver af annari, til lærdóms á því,
livað nútíminn krefðist af kirkj-
unnm sem þjóðkirkjum. Um leíð
og þetta yrði, mundi þjóð og
kirkja nálgast livor aðra.
Vetraríþróttir á íslandi. Eins og
getið hefir verið um hjer í blöö-
um, hafa komið fram umræður
um það í enskum blöðum, að Is-
land væri tilvalið land fyrir vetr-
aríþróttjr, og ættu enskir ferða-
menn að leita þangað í staðinn
fyrir að fara til Sviss eða Noregs.
DÖnsku blöðin hafa veitt þessum
ummælum eftirtekt, og hefir eitt
þeirra, „Berl. Tidende“ spurt
Gunnar Gunnarsson skáld ura álit
hans á þessu máli. Hefir hann
látið svo um mælt, að hann álíti
það hina mestu óhamingju fyrir
ísland, ef þangað flyktust marg-
ir ferðamenn.
Boranir eftir jarðhita. „ísa-
fo!d“ hitti Steingrím Jónsson ný-
verið, og spurði hann, hvort hann
byggist við því, að hægt væri að
koma því á í nánustu framtíð, að
hora eftir jarðhita hjer í nágrenni
Reykjavíkur. Hann vonast eftir
því, að veitt verði fje úr bæjar-
sjóði á næsta ári, til þess að byrja
tilraunir í þessu efni. Býst hanh
við, að gullborinn fáist keyptur
til þessa. Heldur hann helst /að
byrjað verði á borunum upp i
Kringlumýri, er þar að kemur. —
Kringlumýrin er í sömu sprungu-
ktefnu og Þvottalaugarnar. En
náist í heitt vatn þar, þá verður
tiltölulega auðvelt að leiða það
þaðan til upphitunar í bænum.
„Clementína“ hefir nýlega verið
seld hlutafjelaginu „Heimi“, og
hefir hún jafnframt verið skirð
upp og nefnist nú „Barðinn.,“ —
Hann kom hingað frá Hafnarfirð'
nýlega, og er farinn á veiðar.
Hann á að leggja upp aflann hjer.
ttóð jörð.
Hálf jörðiu Syðra-Laugliolt, ii.
Árnessýslu, er til sölu og ábúðar
í næstu fardögum. Jörðin er ve!
hýst og tún í góðri rækt.
Upplýsingar gefur ábúandi jarð-
arinnar, og í Reykjavík,
Hjalti Jónsson, framkv.stj.
og
Gestur Oddleifsson, Lokastíg 23.
Útrýmið rottunum.
Það er nú fullsannað, að afkvæmi
1 einna rottuhjóna geta á einu ári orð-
ið 8B0 rottur. Af þessu er auðsæ
þórfin á að útrýma rottunum. Til þess
að ná góðum árangri er því tryggast
að nota Ratin og Ratinin. Ratiu
( sýkir rotturnar, og þær sýkja svo aðr-
: ar rottur, sem þær umgangast meðan
, þær eru veikar, og diepast að 8—10'
j dögum liðnum. Ratinin hefir aftur á
móti bráódrepandi verkanir á þær rott-
ur sem jeta jiað.
Ratin-adferðin
er: Notió fyrst Ratin, svo Ratinin, þá
! fæst góður árangur.
Sendið pantanir til
Ratinkontoret, Köbenhavn
‘ Allar upplýsingar gefur
Ágúst Jöseffsson
heilbrigðisfulltrúi, Reykjavik.
□□E
Maltöl
Bajersktöl
Pilsner.
Besl. - Odýrast.
Innlent.