Tíminn - 09.01.1980, Side 1

Tíminn - 09.01.1980, Side 1
Slðumúla 15 • Pósthólf 370 * Reykjavík • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsimar 86387 & 86392 Lítið miðar um stjómarmyndun: Sjálf stæðisstefnan ennþá leyndarmál HEl — Heldur mun hafa oröiö litill árangur af fundi Geirs Hallgrimssonar meö formönn- um hinna stjórnmálaflokkanna þrigg ja i gærmorgun. Bæöi mun þar hafa komiö til aö fjölda þingmanna list ekki of vel á þjóðstjórnarhugmyndina og telja hana hálfgerða uppgjöf. Hinsvegar reyndist svo viö- ræöugrundvöllur nánast enginn þegar á hólminn var komiö. Það eina sem eitthvað hefur veriö hönd á festandi af hugsan- legum hugmyndum Sjálfstæöis- flokksins um úrræöi, eru hug- myndir þær sem sagt var frá I blaðinu I gær, sem kynntar höföu veriö þriflokkunum og þeir beönir að glugga i. A fund- inum I gærmorgun virtist mönn- um hinsvegar sem aö Geir væri farinn aö fá einhverja bak- þanka, þvi hann lagði rikt á viö menn að þeir mættu alls ekki lita á þetta sem stefnu eöa til- lögur Sjálfstæöisflokksins. Þetta væru bara hugmyndir sem einhvernveginn höföu skotiö upp kollinum. Menn vildu þá fá aö vita, hverjar væru tillögur Sjálfstæöisflokksins, en I kring- um þaö mun Geir hafa farið eins og köttur i kringum heitan graut. Einn kratanna var ekki bjart- sýnni en svo, aö hann taldi aö stjórnarmyndun mundi taka tvo til þrjá mánuöi, og á meöan væri mátturinn og dýröin okkar, sagöi hann dapur 1 bragði. Andrúmsloftiö á Alþingi i gær, á fyrsta fundi eftir jólafriið, virtist vera hálf dapurlegt. Helst var þaö aö menn voru aö burðast viö aö hressa upp á and- rúmsloftið meö hálfgeröum gálgahúmor. Menn finna fyrir þeirri skyldu sinni að eiga aö mynda starfhæfa stjórn. En flestir munu telja yfirstandandi stjórnarmyndunarviðræöur á- kaflega vonlitlar um árangur. Formennirnir fjórir á fundinum i gærmorgun: Benedikt Gröndal, Steingrimur Hermannsson, Geir Hallgrimsson og Lúövlk Jósepsson. Tlmamynd G.E. Framsóknar- stef nan hag - stæðust — varðandi kaupmátt launa HEI — Sjálfstæöisflokkurinn haföi siöari hluta dags i gær lát- iðfesta á blaö hugmyndir sinar, sem hann siöan dreifði til hinna flokkanna ásamtáliti Þjóöhags- stofnunar á þeim. Samkvæmt heimildum blaös- ins var I þessu áliti Þjóöhags- stofnunar gerður samanburður á ýmsum leiöum sem komiö hafa fram hjá stjórnmálaflokk- unum, bæði hvaö varðar áhrif á kaupmátt og veröbólguþróun, miðaö viö tvö ár. útkoman varö sú, aö án sérstakra éfnahagsað- geröa yröi verðbólgan um 50% á ársgrundvelli eftir tvö ár. En eftir þeim leiðum sem athugaö- ar voru ætti hún aö nást niöur i um 19% á ársgrundvelli f árslok 1981. Munurinn á þessum leið- um reyndist hinsvegar sá, aö þær tillögur sem Framsóknar- flokkurinn hefur lagt fram og talað fyrir frá þvi i haust eru hins vegar taldar hafa langsam- lega minnsta kaupmáttarskerö- ingu I för meö sér. Ókennileg brennisteins- lykt í Húna- vatnssýslum FRI — Upp úr hádeginu i gær Blönduósi uröum einnig varir fann fólk i Húnavatnssýslum við þessa lykt meira að segja ókennilega brennisteinslykt um opna glugga sem sneru sem barst um sýslurnar meö undan vindi. sunnanátt þeirri er rikti þar. Ég kann ekki skýringar á „Lyktin fannst i Langadal, þessari lykt en svipaö hefur oft Vatnsdal og Svinadal” sagöi gerst á undan eldsumbrotum Grimur Gislason á Blönduósi i eða jökulhlaupum á Suöur- samtali við Timann. „Viö hér á landi”. Llk skipverjanna tveggja voru flutt til Reykjavikur I gær. A flugvellinum voru staddir aöstandendur hinna látnuog Pétur Sigurösson forstjóri Landhelgisgæslunnar. Ahöfn flugvélarinnar stóö heiöursvörö, er kisturnar voru bornar frá boröi. (Tlmamynd Róbert). Framburður vitna í Sjó- og verslunardómi Akureyrar: Óróleika haíði gætt hjá vélstjóranum — dagana áður en verknaðurinn var framinn JSS-Sjó- og verslunardómur Akureyrar var settur um kl. 15.30 i gær. Stóðu vitnaleiöslur fram eftir kvöldi og i gærkvöldi höföu 10 skipverjar boriö vitni, þar á meöal skipherra og 1. stýri- maður. Hefst sjóréttur kl. 10 I dag og er stefnt að þvi aö hraöa málinu eins og kostur er. 1 vitnisburöi skipverja á Tý I gær kom m.a. fram, aö Jón D. Guðmundsson haföi sýnt einhver óróamerki dagana fyrir atburöinn eöa allar götur frá 4. janúar er skipiö lagöi úr höfn i Reykjavik, en að öðru leyti virtist verknaðurinn hafa veriö tilefnis- laus. Afengisneysla haföi engin verið um borö, né lyfjanotkun, og samkvæmt framburði vitna virtist helst mega ráöa aö verknaöurinn hafi verið unninn I æöiskasti. 1 sjóréttinum kom fram, aö Jóhannes Ólsen, annar þeirra er lést, vár staddur i eldhúsi varðskips ásamt Steinari M. Clausen bátsmanni, þegar Jón D. Guðmundsson vélstjóra bar þar að. Tók hinn siðastnefndi upp brauðhnif og tók að handleika hann. Mun Jóhannes hafa sagt eitthvað á þá leiö viö Jón.að hann væri ekki maður til aö valda svo stórum hnifi og skv. framburði bátsmanns munu frekari orða- skipti ekki hafa átt sér stað. Skipti þá engum togum, að Jón rak hnifinn i Jóhannes og varö af mikiö sár. Bátsmaöurinn fór þegar upp i brú til að tilkynna 1. stýrimanni sem þá var á vakt atburðinn og innan örfárra sekúndna kom Jóhannes þangað helsæröur og lést hann i brú varðskipsins um klukkustund siöar. Skömmu siöar var tilkynnt i brúna, aö Einar Ó. Guöfinnsson léttadrengur heföi einnig hlotiö hnifstungu. Hafði hann veriö staddur á ganginum milli matsalar og eldhúss er þeir Jón mættust, meö áöurgreindum afleiöingum. Einar komst inn i matsal skipsins, þar sem nokkrir skip- verjar sátu og hneig hann þar niöur. Kom einnig fram i sjóréttinum, aö fyrst I staö töldu skipverjar sár Einars ekki lifshættuleg, Skipherra gaf fyrirmæli um að snúa skipinu samstundis til lands og um leiö var hafin leit aö Jóni. Stóö hún yfir i klukkustund, en bar ekki árangur. Tóku skip- verjar eftir þvi aö hurð á þyrlu- skýli var opin en aö öllu jöfnu er hún lokuð. Þótti einsýnt, aö Jón heföi varpaö sér fyrir borö. Ekki þótti ástæöa til aö snúa skipinu til leitar, þar sem sjór er um 0 gráöur heitur á þessum slóðum og viö slikar aöstæöur lifir enginn maöur lengur en 12 minútur. Þá var um klukkustund liðin frá þvi er leit hófst. Enn fremur kom fram aö strax var haft samband viö lækna á Siglufiröi, svo og stjórnstöö Land- helgisgæslunnar og var hafinn undirbúinn flutnings hinna særöu til lands. Til þess kom þó aldrei, þvi þeir létust báöir, þrátt fyrir alla hugsanlega aðhlynningu, Jóhannes kl. 10.30 og Einar tæpri klukkustund siöar. Lik skipverjanna tveggja voru flutt meö vél Landhelgisgæsl- unnar til Reykjavikur um hádegisbiliö i gær. Sjóréttinn skipa þeir Asgeir Pétur Asgeirsson aöalfulltrúi bæjarfógetans á Akureyri, sem er dómsforseti, Björn Baldursson skipstjóri og Bjarni Jóhannesson skipstjóri.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.