Tíminn - 15.01.1980, Page 1

Tíminn - 15.01.1980, Page 1
Þriðjudagur 15. janúar 1980 ll.tölublað—64. árgangur Guðmundar- og Geirfinnsmálin Sjá bls. 3 Siðumúla 15 • Pósthólf 370 • Reykjavík ■ Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392 Ekki vegna ágreinings milli flokka Geir skilaði umboði sínu i gær: en hinir flokkamir höfðu hugann annarsstaðar sagði Geir HEI — Geir Hallgrimsson hef- ur að sinni gefist upp við frek- ari tilraunir til myndunar þjóð- stjórnar eða annarrar meiri- hlutastjórnar. Skilaði hann þvi i gærmorgun forseta íslands um- boði sinu til stjórnarmyndunar. Forsetinn hafði ekki i gærkvöldi falið öðrum flokksformanni að taka við, en flestir reiknuðu með þvi i gær að hann muni fela Lúð- vik Jósepssyni stjórnar- myndunarumboðið I dag. i þjóðstjórnar viðræðunum sagði Geir Hallgrimsson það hafa komið fram, að allir flokkar væru sammála um meginvandamálin sem leysa þarf, svo og nokkur aðalatriði I nauðsynlegum ráðstöfunum, þótt hinsvegar væri ágreiningur um útfærslu og áherslu. Hann vildi þó ekki meina að það væri vegna þessa ágreinings að ekki tókst að mynda þjóðstjórn. Frekar hafi þar komið til að þriflokkarnir hafi verið með hugann bundinn við aðrar leiðir til myndunar meirihlutastjórn- ar, sem þeir vildu kanna betur, áður en árangurs væri að vænta um stjórnarmyndun undir for- ystu Sjálfstæðisflokksins. Þvi var beint til Geirs hvort ekki hafi verið farið illa með þann tima sem hann hafði til stjórnarmyndunar. Geir svaraði, að þvert á móti hefði timinn verið mjög vel nýttur. Mikilla upplýsinga og gagna hafi verið aflaö og viðræður flokksformannanna hafi verið ákaflega gagnlegar. Þetta hvort tveggja mundi koma að gagni i þeim viðræöum sem framundan væru, hver sem þeim stýrði. Fjármálaráöherrann: Nefndimar beri alla ábyrgðina! Sighvatur Björgvinsson fjár- málaráðherra er um þessar mundir i miklum vandræðum vegna þess að innheimtuákvæði vantar i hin nýju skattalög. Al- þýðuflokkurinn hafði sem kunn- ugt er boðað, að hann myndi gangast fyrir skattalækkunum og þannig lagði Sighvatur fram „endurskoöað” fjárlagafrum- varp fyrir skömmu. Nú vill Sighvatur hins vegar knýja það fram, að fyrirfram- greiðslur skatta verði 70%, og skýtur það vissulega skökku við fyrri yfirlýsingar. Til þess að koma sjálfum sér út úr þessum vandræðum hefur ráöherrann, að þvi er heimildir á Alþingi greina, farið þess á leit við fjárhags- og viðskiptanefndir þingsins, að þær taki við þessum kaleik og flytji sjálfar frumvarp fyrir hann um þetta mál. Með þessum einfalda hætti hafði Sighvatur og Alþýöuflokk- urinn hugsað sér að komast und- an ábyrgð á hinni hörðu skatt- heimtu nú þegar upp úr áramót- unum. Sem kunnugt er hefur það venjulega fallið .i hlut fjármála- ráðherra að hafa forgöngu um slikar ákvarðanir um fjáröflun rikisins, enda þótt hlutverkið sé ekki alltaf vinsælt. Þegar kólnar i vebri kunna fugiarnir á Reykjavikurtjörn vel ab meta svolitla hugulsemi af hálfu borgar anna. Auk þess er skreppitúr nibur ab tjörn holl og gób tilbreyting ef vel vibrar. Er ís að leggjast yflr loðnuveiðisvæðið? Góð veiði var í gær og á laugardag AM — 13 skip höfðu tilkynnt um loðnuafla frá miðnætti i gær, þegar við ræddum viö Loðnu- nefnd kl. 18. Voru bátarnir með 7430 tonn og hæstir þeir Guðmundur og Vlkingur með 900 tonn. 9 bátanna fóru til Siglu- fjarðar, en 4 á Akranes og Hafnarfjörð. 1 gær var gott veður á miðunum, en hins vegar horfur á að is ætlaöi að fara að leggjast yfir veiðisvæðið, en ekki þarf að fjölyrða um afleiöingar þess, ef til kemur. Góð veiði var á laugardag, en þá voru 27 skip með 13000 lestir og á sunnudag voru 4 skip meö 1680 lestir. Þá hafa aflast 33160 lestir frá þvi er veiöarnar hófust. Framboðsmál in skýrast Guðlaugur Þorvaldsson og Pétur Thorsteinsson gefa kost á sér til forsetakjörs AM — 1 gær barst fjölmiðlum frétt frá Pétri Thorsteinssyni, sendiherra þess efnis, aö hann hefði ákveöið aö gefa kost á sér við forsetakosningarnar í sum- ar. Kl. 18.30 i gær barst blaöinu Pétur Thorsteinsson svo frétt um að Guðlaugur Þorvaldsson fv. háskólarektor hefði einnig ákveðiö aö gefa kost á sér. Fréttin um framboð Guölaugs Þorvaldssonar er aðeins ein setning: „Eg hef ákveðið að gefa kost á mér við forsetakjör, ef nægur stuöningur fæst. Gublaugur Þorvaldsson" Fréttin um framboö Péturs Thorsteinssonar er á þessa leiö: „í tilefni af fjölmörgum áskorunum, skriflegum og munnlegum, þess efnis, aö ég gefi kost á mér til framboös við forsetakosningar þær, sem fram eiga að fara i júnimánuði, hefi ég í dag skýrt hópi áskor- endanna frá þvi, að ég muni verða i framboöi við þær kosn- ingar. Pétur Thorsteinsson” Þar meö haf a þrlr menn gefiö kost á sér til embættis forseta, en Albert Guðmundsson lýsti þvi yfir þegar á sl. ári aö hann mundi fara fram. Guölaugur Þorvaldson er fæddur þann 13. október 1924 aö Járngerðarstöðum I Grindavik. Hann tók stúdentspróf frá Menntaskólanum á Akureyri 1944 og lauk prófi I viðskipta- fræðum frá H1 1950. Hann starf- aði lengi viö Hagstofu Islands sem deildarstj. og sinnti kennslustörfum við Verslunar- Gublaugur Þorvaldsson skólann um árabil. Við við- skiptadeild Ht hefur hann kennt frá 1956. Hann hefur átt sæti I mörgum opinberum nefndum og tekið þátt I félagsmálum. Rektor Háskóla Islands var hann þar til á sl. ári og hefur nú tekið við embætti sáttasemjara rlkisins. Hanner kvæntur Krist- Inu Hólmfríði Kristinsdóttur, f. 28.5. 1928. Pétur Jens Thorsteinsson er fæddur 7. nóvember 1917 I Reykjavik. Hann tók stúdents- próf frá Menntaskólanum I Reykjavlk 1937 og próf I við- skiptafræðum frá H1 1941. Cand juris frá H1 1944. Starfsmaöur utanrikisjónustunnarfrá l.júnl 1944. 1 sendiráöi Islands I Moskvu 1944-47 og skipaður sendiherraíSovétríkjunum 1953 og ambassador 1956. Þá varö hann ambassador I V-Þýska- landi og Grikklandi 1961, am- bassador I Frakklandi 1962 og fastafulltrúi Islands hjá NATO og OECD. Þá sendiherra Is- lands I ýmsum löndum öðrum og störf I ýmsum samninga- nefndum, sem skipt hafa við er- lend rlki. Hann er kvæntur Oddnýju Elisabetu Stefánsson, f. 15.8. 1922.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.