Tíminn - 16.01.1980, Page 1

Tíminn - 16.01.1980, Page 1
Síðumúla 15 ■ Pósthólf 370 ■ Reykjavik • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392 Svavar Gestsson fékk umboð til stjómarmyndunar: Önnur tilraun við vinstri stióm HEI— „Ég mun óska eftir við- ræðum við formenn Framsókn- arflokks og Alþýðuflokks á morgun, um stöðuna i stjórn- málunum og kanna hvort þeir telja það ómaksins vert að hefja viðræður um mýndun vinstri stjórnar”, svaraði Svavar Gestsson er Timinn spurði hann i gær hvernig hann hygðist hefja sinar stjórnarmyndunartilraun- ir. En Svavar tók i gær við um- boði til stjórnarmyndunar frá forseta Islands. Forsetinn ætl- aði að fela Lúðvik Jósepssyni umboðið sem formanni flokks- ins, en Lúðvik vildi ekki taka við þvi sjálfur. Heyrst hefur að hart hafi verið barist um þetta hlut- verk á þingflokksfundi Alþb. i gær og Svavar sigrað I keppn- inni. Svavar var spurður hvort eitt- hvað hafi breytst frá þvi Stein- grimur reyndi sams konar stjórnarmyndun. Hann sagði a.m.k. þá breytingu, að stjórn- arkreppan hafi lengst um nokkrar vikur. Um tilhögun við- ræðna sagðist hann gera ráð fyrir að á fundinum i dag yrði rætt almennt um málin og fyrir- komulag hugsanlegra viðræðna, ef Steingrimur og Benedikt teldu ástæðu til að viðræður hæfust. Hann myndi siðan leggja fram tillögur Alþýðu- bandalagsins á fyrsta formleg- um fundi. Svavar sagðist mundu leggja áherslu á þær itarlegu tillögur sem Alþb. hefði i efnahagsmál- um bæði varðandi skammtima- aðgerðir til að ná niður verð- bólgunni og hins vegar þriggja ára áætlun um hjöðnun verð- bólgu, jöfnun Iifskjara og efl- ingu islenskra atvinnuvega, er tækju við af þessum fyrstu að- gerðum, auk uppstokkunar efnahagsmálanna. I þessum tillögum mun m.a. gert ráð fyrir talsverðri lækkun verðlags i landinu, sem sumum þykir ótrúlegt að sé framkvæm- anleg. Um það sagði Svavar, aö tryggt yrði aö vera að allir legðu eitthvað af mörkum, ef árangur ætti að nást og þá auð- vitað milliliðir og þjónustuaðil- ar lika. Þvi væri ein grundvall- arspurningin, hvort menn væru tilbúnir að taka þá pólitisku ábyrgð að láta þessa aöila slaka á. Þetta mun einnig eiga við hluta af opinberri þjónustu. Steingrimur og Sighvatur: Nýtt að Al- þýðubandalag- ið kemur með Svavar Gestsson á fundi forseta Islands, Kristjáns Eldjárn I Stjórnarráðshúsinu I gær. Timamynd Róbert tillögu HEI — „Ég er ánægður með það, að tilraun skuli gerð til vinstri stjórnarmyndunar og fagna þvi að Alþýðubandalagið hefur — þótt seint sé — lagt fram tillögur”, svaraði Stein- grimur Hermannsson er Timinn spurði hvernig ný tilraun viö myndun vinstri stjórnar væri nú framundan. „Að sjálfsögðu verða tillögur Alþýðubandalagsins metnar og samanburður gerður um árang- ur af þeim aðgerðum. Við fram- sóknarmenn munum skoða þessar tillögur af fullri alvöru”, sagði Steingrimur. Hann var spurður hvort farið myndi fram á álit Þjóöhags- stofnunar á þessum tillögum eins og öðrum tillögum hinna flokkanna, sem fram hafa kom- ið. Taldi Steingrimur það ákaf- lega eðlilegt, að hlutlaus stofnun mæti þessa hluti. Einnig þyrfti að fá mat verðlagsstjóra á þeim möguleikum sem væru fyrir hendi varðandi niðurfærslu verðlags, eins og gert mun ráð fyrir i tillögum Alþýöubanda- lagsins. „Mér finnst sjálfsgt, að kanna hvaö nýtt hefur gerst i málinu”, svaraði Sighvatur Björgvins- son, spurður álits á nýrri tilraun til myndunar vinstri stjórnar. „Og það nýtt hefur a.m.k. gerst, að sögn Svavars Gestssonar, aö Alþýðubandalagiö er nú komið með tillögur. En það gerðist ekki i tilrauninni sem Stein- grimur hafði forystu fyrir. Þá kom Alþýðubandalagið ekki fram með neinar tillögur. Mér finnst þvi rétt að skoða þær og við verðum bara að vona aö þær séu jákvæðar”, sagði Sighvatur. Grunur um dauða svína af rottueitri í fóðri AM — I sumar kom upp eitrun á svinab'úi Stefáns Pálssonar, bónda á Asólfsstöðum, sem varð til þess að nokkur svinanna drápust. Eitrunirfa telur Stefán að megi rekja til( rottueiturs i fóöri frá Fóöurverksmiðjunni hf. og mun hann hafa hafiö skaöabótamál á hendur fyrir- tækinu. Rögnvaldur Guöjónsson hjá Rannsóknastofnun landbúnað- arins sagði blaðinu i gær að þetta mál væri á viðkvæmu stigi. Krufning á Keidum’ benti til þess aö svinin heföu drepist vegna eitrunar og er máliö nú til meöferðar hjá Fóðurnefnd hjá Fóðureftirlitinu, Efnastofa Háskólans I lyfjafræöi efna- greindi fóðriö meö tilliti til rottueitursins „varfarins’’ og fannst dálitið magn, eöa innan viö milligramm I kilói. Með til- liti til hve magniö er litiö og niðurstaða óljós hefur Fóður- verksmiðjan visað kröfu Stefáns á bug. Getum glaðst yfir skattframtalinu i vikulokin: Eiginkonur og börn sérsköttuð skattsstofninum er siðan skipt að jöfnu milli hjónanna. Eignatekjur hjóna, þar meö söluhagnað af eignum,á þó að telja fram hjá þvi hjóna sem hærri tekjur hefur. Aðrar tekjur telja hjón fram hvort um sig. Reglur um frádrátt breytast nú verulega. Heimilt er að velja um fastan frádrátt 10% af hreinum launatekjum, I stað þess að draga Framhald á bls. 15 HEI — Ný lög um tekju- og eignarskatt, sem verið hafa i gildi um eins árs skeið eru nú að koma til framkvæmda fyrir tekjuárið 1979, þ.e. framtalið sem flestir verða nú að fara að glima við næstu vikurnar, en framtals- frestur er nú til 10. febrúar. Lögin gera m.a. ráð fyrir veru- lega breyttri skattlagningu, varð- andi hjón og börn 13-15 ára, sem fá nú sérstakt framtalseyðublað, svo og eru breytingar á ýmsum tekju- og frádráttarreglum. Að sögn Sigurbjarnar Þorbjarnar- sonar, rikisskattstjóra, hefur þvi reynst nauðsynlegt að gera ný og breytt framtalseyðublöð, sem kynnt voru blaöamönnum i gær. Nýju eyðublööin eru mjög breytt frá þeim gamalkunnu sem allflestir kunna orðið á. Enda kom fram hjá skattstjóra ótti um það, að fólki féllust nánast hendur og fyllist skelfingu, er það fær nýju blöðin i hendur nú. Þeir skattstofumenn vonast þó til, að fólk láti ekki hugfallast heldur komist að þvi við nánari athugun og yfirlestur eyðublaö- anna, að raunverulega séu þau ekki eins flókin og virðast kann við fyrstu sýn. Skattstjóri er m.a.s. svo bjartsýnn, að hann sagðist vona að með þessari breytingu fari sá hópur stækk- andi.sem getur sjálfur gengið frá framtölum sinum, enda gera nýju lögin ráð fyrir þvi, að framtalsað- stoð veröi verulega skert. Helstu breytingar eru eftirfar- andi: Hjón verða nú sjálfstæöir skatt- greiöendur sem greiða tekju- og eignarskatt hvort í sinu lagi. Þau skulu þó telja saman allar eignir sinar og skuldir, jafnvel þótt um séreignir sé að ræða. Eignar-

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.