Tíminn - 17.01.1980, Síða 1

Tíminn - 17.01.1980, Síða 1
Síðumúla 15 • Pósthólf 370 • Reykjavik ■ Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392 BSÉSfil Vinnuveitendasambandið og A.S.Í. kveðast á: VSÍ hafnar kröfum ASÍ alfarið HEI — 1 samþykkt fram- kvæmdast jórnar Vinnuveit- endasambands Islands frá i fyrradag er lögb áhersla á að i komandi kjarasamningum verði ekki unnt að semja um aukinn kaupmátt og þvf sé úti- lokað að ná nú þvi kaupmáttar- stigi er samið var um 1977 eins og felst i kröfum ASl Að sögn_Þorsteins Pálssonar, framkvæmdastj. VSI var árið 1977, samið um meiri launa- hækkanir en aukning þjööar- tekna þaö ár leyföi og af þvi höf- um við verið aö súpa seyðið siðan. S.l. tvö ár hafi siðan ekki verið um auknar þjdðartekjur á mann að ræða og jafnvel spáð lækkun á næsta ári. Kaup- máttur útflutningstekna þjóðar- innar hafi minnkað um 14% á siðasta áriog þvi sé óraunhæft aðbúast við að hægt sé aö auka kaupmáttinn nú. Auðvitað væri tiltölulega auövelt að hækka launin, en það gæti ekki leitt til annars en gengisfellinga og verðhækkana. VSI visar einnig kröfum ASl um nýtt verðbótakerfi á bug sem algerlega óraunhæfum um- ræðugrundvelli i samningavið- ræðum, enda sé um blekkinga- leik aðræða, m.a. vegna þess að með afnámi skerðinga sem verið hafa i gildi varðandi kaup- álög og ákvæðisvinnu, væri um aðræða margfalt meiri hækkun en fram kæmi i tillögunum. Aö sögn Þorsteins gæti VSI heldur ekki sætt sig við það,það væri verðbólgan sem réði launahlut- föllunum i' landinu, um þau ætti að semja i kjarasamningum. Þá mótmælir VSI kröfum ASl um aukin friöindi. Um það sagði Þorsteinn, að þegar aðstaðan væri eins og nú, aö ekki væri hægt að auka kaupmátt beinna ráöstöfunartekna væri þvi að siður grundvöllur fyrir auknum launakostnaði i formi friðinda. Væri af einhverju aö taka væri nær að byrja á að hækka ráö- stöfunartekjunar, þvi launa- hækkanir I formi alls kyns frið- inda kostuðu fyrirtækin alveg jafn mikið og beinar hækkanir, þó svo virtist að of margir áttuðu sig ekki á þvi. Viðræðunefnd A.S.I. fjailaði i gær um samþykkt VSl. og telur þar margt mótsagnakennt m.a. að i einu orðinu væri lýst vilja til viðræðna og i hinu aftekið aö ræöa kröfur ASl. Itrekaði við- ræðunefndin kröfur ASI og óskar eftir fundi þar sem sjónarmiöin fáist betur skýrð. Hækkun fyrirframgreiðslu skatta i ár: Útsvar 70% og skattar 65% — miðað vlð álögð gjöld fyrra árs HEI— Neðri deild Alþingis sam- þykkti i gær, að fyrri hluta þessa árs verði innheimt sem fyrir- framgreiösla af útsvörum 70% af útsvörum fyrra árs, en fyrir- framgreiðsla af sköttum til rikis- sjóðs verði aftur á móti 65%. Eftir er að taka máliö fyrir i efri deild, en ekki búist við að þessu verði breytt þar. Með þvi að deila 10 i álögð opin- ber gjöld i fyrra og hækka þá tölu um nefndar prósentur eftir þvi hvort um útsvar eða skatta er að ræða fær fólk út mánaöarlega fyirframgreiðslu þessara gjalda fyrri hluta yfirstandandi árs. Mokkakápur fyrir 80 milljónir króna til Svíþjóðar JSS— Gráfeldur h.f. hefur gert samning um sölu á 500 mokka- kápum til Sviþjóðar , að verð- mæti um 80 milljónir króna. Kaupandinn er heildsölufyrir- tæki, sem dreifir vörum sinum um alla Sviþjóð, og selur ekki einungis mokkafatnað, heldur einnig leðurfatnaö. Sem fyrr sagði, mun andviröi kápanna, sem Gráfeldur selur til Svi- þjóðar vera um 80 milljónir króna, og er það stærsti samn- ingar sem fyrirtækið hefur gert til þessa. Borgin veiði lax við Viðey Kás— Borgarráð hefur samþykkt að fela Jóni G. Tómassyni, borgarlögmanni að semja við eig- anda Viðeyjar um að borgin leysi til sin veiðirétt á lax i sjó i kring- um eyna. Nokkur vafi hefur leikiö á þvi hvort laxveiðihlunnindi I sjó viö Viöey séu lögleg, og hefur mönn- um sýnst sitt hvað þar um.-Em- bætti lögreglustjórans I Reykja- vik hefur frá þvi i ágústmánuöi sl. haft á hendi rannsókn á umrædd- um veiðum og er henni enn ekki að fullu lokiö. Er þess aö vænta, að rannsókninni verði fljótlega lokið, og að niðurstöður hennar verði sendar rikissaksóknara, sem tekur ákvörðun um, hvort af hálfu hins opinbera veröur að- hafst frekar i málinu. Akvörðun sina um að leysa veiðiréttin til sin tók Borgarráð i ljósi greinarge^ðar borgarlög- manns, sem telur ekki annað sýnt en að eigandi Viðeyjar eigi rétt til laxveiði i sjó við eyjuna. Þvi sé ekki ástæða til að biða endan- legrar niðurstöðu af rannsókn FRI — Um kl. 1 i fyrrinótt kvað viðmikil sprenging i Drafnarfelli i Breiðholti. Munu unglingar hafa útbúiö heimatilbúna sprengju úr eldflaugapúðri og vatnsröri og sprengt hana við Iðnaðarbankann iDrafnarfelli. Stór rúöa I bankan- um brotnaöi. Stór krakkahópur var við stað- inn er lögreglan kom og flutti hún lögreglunnar, enda megi allt eins búast við að næsta veiöitimabil verði hafið, áður en hún liggi fyrir. Réttur Reykjavikurborgar á að leysa veiðiréttinn til sin byggist á þvi, að ef veiðivatn liggur svo nærri sjávarveiði, aö hún rýri veiði i vatninu getur ráðherra leyft veiöieiganda I vatninu, að leysa sjávarveiðina til sin. Samkvæmt skýrslum hefur meöalveiði siðustu þriggja ára við Viðey verið 256 laxar og meðalþyngd um 651 kiló á ári. Hefur verið áætlað að hæfilegt endurgjald fyrir sjávarveiðinavið Viðey sé um tiu og hálf milljón króna, ef tekið er mið af laxveiði- réttindum sem borgin keypti I Grafarvogi árið 1965. Eigandi Viðeyjar vill fyrir sitt leyti samþykkja, að borgin sem eigandi veiðiréttar i Elliðaám leysi sjávarveiöina við Viðey til sin, en vill fá fyrir sinn snúð 12 millj. kr. og er þá um að ræða sölu á bæði lax- og silungsveiðirétti. fimm 17 ára unglinga niöur á stöð og játuðu þeir að hafa útbúið sprengjuna. Svona sprengja mun vera kraftmikil og stórhættuleg getur jafnvel valdið mannskaða og brýndi lögreglan það fyrir unglingunum að hætta þessu en þeir höfðu áður sprengt sllka sprengju úti i móa. Frá höfninni á Vopnafiröi. JSS — Atvinnuhorfur á Vopna- firði eru nú heldur slæmar vegna þess, að togarinn á staðnum, Brettingur, bilaði fyrir skömmu og er hann nú I Reykjavik til við- gerðar. Mun lega hafa bilaö I tog- aranum og er ekki vitað hve lang- an tima viðgerðin tekur. Sr. Haukur Agústsson á Hofi sagöi i viðtali við Timann i gær, aö annars hefði afli veriö þokka- legur og heldur glæðst á trillu og smábáta að undanförnu. Brett- ingurhefði aflað þokkalega þar til hannbilaði.ennú væruútlit fyrir að f rystihúsinu á staðnum yrði aö loka, a.m.k. annaö veifið vegna aflaleysis. Þorskveiðibannið hefði verið um það bil að ganga i garö og svo bættist bilunin við, svo ekki færi hjá þvi aö menn væru nokkuð svartsýnir á at- vinnuástandiö á staönum. Nokkr- ir tugir manna heföu atvinnu sina beinteða óbeintvið aflannog hætt væri við að þeirheföu litla vinnu i bili. Annars sagöi sr. Haukur, aö at- vinnumái i þorpinu heföu verið I mjög góðu lagi. Mikið hefði verið byggt og mikill hugur i mönnum að efla byggöina. Allmargir að- komumenn hefðu sest að á Vopnafirði og heimamenn litið flutt i burtu, þannig að ibúunum hefði fjöigað verulega á siðari ár- um, og þorpiö stækkaö stórlega. Aðspurður um framkvæmdir sagði sr. Haukur, að hrqjpurinn hefði veriðaö byggja fjölbýlishús. Væri ætlunin að selja hluta þess, en hluti yrði i eigu hreppsins, og yrði notaður fyrir t.d. kennara, Litiðværi um aðrar framkvæmd- ir, enda óvissa um fjármagn vegna óöruggs stjórnmálaá- stands I landinu. Vegafram- kvæmdir hefðu ekki verið miklar sl. sumar innan byggðar, en von manna væri, aðþær framkvæmd- ir næðu til héraösins á næsta sumri. Sprenging í Breiðholti — fimm unglingar fluttir á lögreglustööina Slæmar atvinnuhorfur á Vopnafirði Togarinn Brettingur bilaður

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.