Tíminn - 26.01.1980, Síða 3

Tíminn - 26.01.1980, Síða 3
Laugardagur 26. janúar 1980 3 Ferðaskrifstofa Akureyrar hf. — nýtt fyrirtæki stofnað í gær Flugleiöir og Ferðaskrifstofa Akureyrar í eina sæng — ásamt þrem aðilum öðrum ÞH — Akureyri — 1 gær voru undirritaðir samningar um stofnun nýs fyrirtækis á Akureyri. Hlaut það nafnið Ferðaskrifstofa Akureyrar hf. Stofnendur eru fimm talsins, Jón Egilsson, Gfsli Jónsson frá Feröaskrifstofu Akureyrar, Flugleiðir hf., Flugfélag Norðurlands hf., og Ferðaskrif- stofan Úrval. Eignahlutföll i nýja fyrirtækinu eru þannig, að Flugleiðir hf. eiga 35%, Flug- félag Norðurlands 14%, Ferða- skrifstofa Akureyrar 34%, Ferðaskrifstofan Úrval 16% og Gisli Jónsson 1%. Á blaðamannafundi sem hald- inn var i gærkom meöal annars fram, aö Ferðaskrifstofa Akureyrar hf. mun stunda aDan almennan ferðaskrifstofurekst- ur, ásamt farseðlasölu og mun taka við þvi' hlutverki sem sölu- skrifstofa Flugleiða á Akureyri og Ferðaskrifstofa Akureyrar hafa gegnt undanfarna áratugi. Þá mun skrifstofan annast mót- töku ferðamanna Utlendra sem innlendra, annast skipulagn- ingu ferða hér á landi og hafa á hendi farmiðasölu i langferða- bifreiðir. Enn fremur mun hiin annast farmiðasölu fyrir Flug- félag Norðurlands. Þá mun Ferðaskrifstofa Akureyrar hf. annast alla fyrirgreiðslu fyrir þá sem ferðast til útlanda. Enn fremur kom fram á fund- inum að gert er ráð fyrir að starfsemin hefjist 1. mai n.k. Með þessu fyrirkomulagi verð- ur söluskrifstofa Flugleiða á Akureyri lögð niður, en sama form veröurhaftá flugvellinum og verið hefur. Þá eru uppi ráðagerðir um að Flugfélag Norðurlands auki umsvif sin samfara þessari breytingu. Einnig kom fram, að slik sam- eining ætti sér stað viðar á land- inu, en þaö mál hefur ekki verið tekið til umræðu enn. Stjórn Ferðaskrifstofu Akureyrar hf. skipa: Einar Helgason stjórnarfromaður, Jón Egiisson og Steinn Lárus- son. Varamenn: Kolbeinn Sigurbjörnsson og Sigurður Aðalsteinsson. Skrifstofan veröur til húsa að RáðhUstorgi 3. Framkvæmdastjóri er Gisli Jónsson og skrifstofustjóri er Kolbeinn Sigurbjörnsson. Danski rithöfundurinn Erik Stinus gistir Norræna húsið i næstu viku og heldur þar tvo fyr- irlestra. Hann hefur farið víða um heim, þekkir veltii mála f Asiu og Afriku og hefur dvalizt árum saman f þeim heimshlutum. Fyrra erindið, Rejser pa jorden, flyturhann á þriðjudaginn klukk- an 8.30, og er það kynning á skáldskap hans.en siðara erindið er á sama tima laugardaginn 2. febrúar, nefnist De mægtiges dörtrin og fjallar um örðugleika þróunarlanda og árangurslausar tilraunir þeirra, sem lítils mega sin, til þess að komast yfir þröskuld hinna völdugu. Frá Neskaupstað. Nýi Barðinn kemur eftir helgina Fyrirbyggjandi að- gerðir gegn óspekt- um um áramót lögreglumenn þinga um málið FRI — Margir muna eflaust eftir óspektum unglinga i Hafnarfirði, á Selfossi og á Sauöárkróki um siðustu áramót og á þrettándan- um. Fyrir stuttu komu lögreglu- menn frá þessum þrem stöðum saman til fundar og ræddu fyrir- byggjandi aðgerðir til varnar þessum ófógnuði. Að sögn Hjalta Zóphaniussonar lögfræðings i dómsmálaráðuneytinu þá var fundurinn árangursrikur og margar góðar tillögur komu fram á honum. Sagði Hjalti að þeir stefndu að þvi að útrýma þessum óspektum. „Við bárum saman bækur okk- ar á fundinum” sagði Jón Guð- mundsson yfirlögregluþjónn á Selfossi i samtali við Timann, en þetta er mikið vandamál og leið- indablettur á þessum stöðum. Það fer ekki milli mála að það þarf að ráða bót á þessu ástandi. „Það er eðlilegt að við grfpum til einhverra ráða i þessu sam- bandi þar sem hér hafa lögreglu- menn verið lengi frá vinnu út af meiðslum sem þeirhlutu og raun- ar hefur einn þeirra ekki enn get- að mætt. Aðalatriðið i tillögum okkar er aðhöfða til fólksins sjálfs. Að það passi upp á þessa hluti. Við mun- um heita á alla ungiinga aö vera ekki með uppvöðslu af þessu tagi. Fólk á að skemmta sér en skemmtanir mega ekki fara úr böndunum. Brúin yfir Önundarfjörö: Áætlað að byggja brúna í sumar HEI —„Eftir þeirri vegaáætlun sem núgildirergertráðfyrir aö brúin yfir önundarfjörð viö Holtsodda veröi byggð i sumar. Hinsvegar gerir fjárlagafrum- varp Sighvats Björgvinssonar ráðfyrir niðurskurði i vegamál- um og meöan ekki er búið að taka það frumvarp fyrir vitum viö ekkert hvar sá niöurskurður kemur niður”. Þetta sagöi Ei- rikur Bjarnason umdæmisverk- fræðingur Vegagerðar riksisins á tsafirði m.a. er hann var spuröur um framgang þessa máls. Eirikur sagði þvi litið hægt að segja um framhaldiö að svo komnu máli. En hönnun þess- arar brúar væri nokkurn veginn tilbúin og þeir væru tilbúnir að byggja brúna ef peningar yrðu til reiöu. Ifyrra hefði verið gert ráð fyrir að leggja i þetta verk, þ.e. brúna og vegfyllingu aö henni, 370 milljónir króna. Vegna mikillar verðbólgu væru likur á að þær verðlagsforsend- ur hafi breyst. Eirikur sagði að þessi brú mundi stytta leiöina fyrir önundarfjörð verulega. Fyrst og fremst kæmi þaö til góða, i sambandi við fiug um Holtsflug- völl, þar sem leiöin tU Flateyrar styttist t.d. um 9 kilómetra, svo og alla aöra innansveitarum- ferð. En einnigstytti þetta leiö- ina fyrir þá sem lengra ætluðu. Einnig benti Erikur á, aö það væri mjög óhagkvæmt að fresta þessum framkvæmdu, þvi þá yrði aö lappa upp á gamla veg- inn fyrir önundarfjörð, sem værioröinnmjög lélegurog þar að auki snjóþúngur. Það væri þvi nánast að setja peninga I súginn. Frestun brúarbygg- ingarinnar væri þvl óskynsam- leg. Leggur væntanlega aí stað frá Frakklandi I dag JSS — Nýi togarinn, sem Sildarvinnslan á Neskaupstað hefur fest kaup á, leggur væntan- lega af stað frá Frakklandi i dag og er hann væntanlegur til Nes- kaupstaðar nú eftir helgina. Jóhann K. Sigurðsson fram- kvæmdastjóri Síldarvinnslunnar sagði i viötali við Tímann, að tog- arinn væri smiðaður i Póllandi fyrir fjórum árum, fyrir Frakka, eins og reyndar 12 skip önnur og væriþetta fjórða skipiðaf þessum 12sem kæmi hingað til lands. Hin væruBirtingur, Hegranes og Þor- lákur. „Kaupverðið er nálægt einum milljaröi lcróna”, sagði Jóhann ,,og þá eru breytingar reiknaöar með. Við þurftum m.a. að breyta lestinni, en hún var stíuð áður. Eins þurfti aö setja svokallaöan skutrennuloka, og breyta matsal o.fl. litillega. Togarinn, sem hlotið hefur Framhald á bls. 23. 800 Siglfirðingar mótmæla i desember s.l. fór fram undir- skriftarsöfnun á Siglufiröi til að mótmæla þeirri mikiu loft og sjávarmengun sem er frá loðnu og beinaverksmiðjum S.R. i bæn- um. Nemendur áttunda bekkjar grunnskóla Siglufjarðar gengu eitt kvöld um bæinn og buðu fólki að skrifa sig á listana. Tæplega 800 manns skrifuðu sig á listana, og er það mjög mikiö. Listarnir hafa, ásamt bréfi, verið sendir til mengun stjórnar S.R. Mengunin frá verksmiðjum S.R. hefur sennilegasjaldan verið einsmikileinsog á slðustu vertlð, og stafar það af gömlu hráefni svo og að reykháfarnir náðu þá ekki nema rétt upp fyrir þak verksmiðjunnar S.R. 46. Ennfremur er bent á þá miklu sjávarmengun sem er frá verk- smiðjunum svo og þann mikla sóðaskap sem er á verksmiöju- lóðinni. Hluti Ástúnshverfis. Kópavogur: Samkeppni um íbúöa- byggð í Ástúnshverfi FRI — Kópavogskaupstaður hef- ur nú efnt til samkeppni um ibúöabyggð I Astúnshverfi I Kópavogi. Ahersla er lögð á svo- kallaða lága byggö þ.e. 1-2 hæða, þar sem flestir Ibúar hefðu yfir að ráða einkalóöum. Þarna gæti ver- iö um að ræða a.m.k. 50-60 ibúðir. Verðlaunafé er 6 millj. kr., en fyrstu verðlaun nema 2,5 millj. kr. Formaöur dómnefndar er Magnús Skúlason arkitekt. Meöal- hækkun 11% Nýtt fiskverö hefur verið ákveöið og gildir það frá ára- mótum. Samkvæmt þvi nemur hækkun á skiptaverði helstu botnfisktegunda aö jafnaöi um 11% á ýsu og keilu um 16%, á ufsaog löngu um 10%, steinbiti um 13% karfa um 7%, og grálúðu um 4%. Jafn- framt var ákveðið að greiða skuli linuuppbót á grálúöu og að greidd skuli 25% veröupp- bót úr nýstofnaðri deild við aflatryggingarsjóð á karfa og ufsa á árinu 1980, þó ekki ufsa veiddan I mars, april og mai. Meðal mikilvægustu for- sendna þessarar fiskverðsá- kvörðunareru þrenn lög sem afgreidd voru frá Alþingi I fyrradag: Lög um tímabundið oliu- Framhald á bls. 23.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.