Tíminn - 26.01.1980, Page 4

Tíminn - 26.01.1980, Page 4
4 Laugardagur 26. janúar 1980 í spegli tímans Dóttir Ingrid hjóna- band Ingrid Bergman er nú orðin 64 ára gömul og búin að fá krabbamein. Vissulega ber hún merki lifsins, en alltaf er hún nú samt jafn hrífandi. Ekki alls fyrir löngu gekk dóttir hannar og itaiska leik- stjórans Roberto Rossellinis Isabella, í hjónaband í Róm. Brúðguminn var enginn annar en kvikmyndaleikst jórinn frægi Martin Scorsese (Mean Street, Taxi Driver, New York New York). Svaramaður var Robert De Niro. Af meðfylgj- andi mynd að dæma mætti halda, að Scorsese, sem er 36 ára gamall, sé heldur skugga- legur náungi og ekki sérlega blíður i lund. En við skulum ekki dæma hundinn eftir hárunum, því að svo er alls ekki.segir brúðurin, sem er 27 ára blaðamaður og leikkona. — Hann er sömu skoðunar, og ég um f relsun kvenna. Ef hann væri með yfirgang og frekju og vildi kúga mig, er alveg öruggt, að ég hefði aldrei gifst honum, segir Isabella. Hún bætir því við, að ástæðan til þess að hún leikur ekki í mynd- um hans sé ekki sú, að erf itt sé að vinna með honum, heldur sú, — að ég vil ekki að Martin sé álasað fyrir að vera alltaf að leita að hlutverkum fyrir ameriskan ítala. En hafi Isa- bella erft hæfileika móður sinnar í sama mæli og útlitið, ættu henni að veraailar leiðir færar á leiklistarbrautinni. Mikil er ást peningamanna Sænska söngkonan Sylvia Lindenstrand var ein þeirra lista- manna sem fram komu i hinni vönduöu dagskrá sem sænska sjónvarpið lét gera i tilefni aldarfjórðungs afmælis sins og sýnt hefur verið i islenska sjónvarpinu. Hún er mjög dáð fyrir söng sinn og glæsibrag i heimalandi sinu og viðar. Nýlega hélt hún hljómleika i Konserthúsinu í Stokkhólmi og söng þar Vin- arlög.A fyrstu minútum sem miðasalan var opin keypti einn og sami aðilinn 200 miða á hljómleikana — og borgaði út í hönd. Þessi rausnarlegi aðdáandi reyndist vera Anders nokkur Wall, fjármálajöfur, en hann mun ganga i það heilaga með söngkonunni innan tiðar. bridge Spilið i dag er létt varnarþraut frá leik sveita Sævars Þorbjörnssonar og Tryggva Gi'slasonar i yfirstandandi Rey k j avi kur m óti. Norður S AD1095 H 5 T K72 L G1098 Austur S K742 H. G10763 T - - L D742 Sagnir hafa gengið þannig eftir Precision Suður Norður 1 lauf 1 spaði 2 tig la r 31auf 3 hjörtu 4tiglar 4hjörtu 4 spaðar 4 grönd 5tíglar 6tiglar pass. Félagi spilar út laufaás, sem sagnhafi trompar. I öðrum slae SDÍlar saenhafi spaðagosa, vestur lætur 6 og austur fær á kóng. Hverju á hann að spila til baka. Ef vestur á 5 tromp, skiptir liklega engu máli hverju spilað er. Það verður þvi að ganga út fráaðsagnhafieigi 6 tigla. Sagn- hafi á einnig hjartalit, a.m.k. fimmlit, þvi hann hefði vafalaust stutt spaða norðurs með 3 spaða. Og þá er orðið auðvelt að sjá út að ef austur spilar einhverju öðru en spaða til baka, þá tekur sagnhafi trompin og siðan spaðaslagina iblindum. En spaði straxklippir á samganginn hjá sagnhafa og hann á ekki innkomu i borðið, eftir að hafa tekið trompin. Hendi sagnhafa var: S. G8, H. AKD98, T. AD10963, L. - -. Við borðið fann Sigurjón Helgason i sveit Tryggva þessa vörn og vann þar með 14 impa, þegar austur, við hitt borðið, spilaði meira laufi til baka. skák A minningarmóti Tschigorins sem haldið var ár ið 1973 kom þes s i s taða upp i viðureign þeirra Dr. Filips og Spirindo- nov og það var Dr. Filip sem átti leik og hann gerir út um taflið í einu vetvangi. Spirindonov Hxh7! Gefið eftir KxHh7 verður svartur mát á eftir- farandi hátt: Dh3 skák-Kg7, Dg4 skák- Kh7, Hd3 og mát i kjölfarið krossgáta 1) Land.- 6) Umgangur.- 7) Burt.- 9) Fæða,- 11) Grastotti.- 12) Utan,- 13) Vond.- 15) Flugvél.- 16) Kveða við.- 18) Galgopar.- Lóörétt 1) Jurt,- 2) Þungbúin,- 3) Féll,- 4) Skepnu.- 5) Klettur.- 8) Fdtavist,- 10) Alasi,- 14) Fugl,- 15) Ambátt,- 17) Staf- rófsröö.- Ráðning á gátu No. 3208 Lárétt 1) Fjandar,- 6) Nýr.-7) Onn,- 9) Óms,-11) Leit - 12) Keyrði - 13) Kal - 15) Aka - 16) Ans- 18) Ragnaði,- Lóörétt 1) Flöskur,-2) Ann.- 3) Ný.- 4) Drö,- 5) Raskaði,- 8) Náa.- 10) Mók - 14) Lag - 15) Asa.- 17) NN,- meft morgunkaffinu - Kg cr ;<l\ <•(> á sania máli, <‘g skil alls <-kki livers wgna smiareikninguriiiii nja ukkur <•< svona hár. — Margir eiginmenn yrðu áreiöanlega glaðir yfir þvi að fá handsaumaöar skyrtur. Kg nef ahyggjur af houum. iæknir. ilami liefur ekki neitaö að borða mat- imi simi i heiia viku.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.