Tíminn - 29.01.1980, Blaðsíða 1
Síðumúla 15 • Pósthólf 370 • Reykjavik ■ Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392
Fartð að praigjast um hosflna: jSteÍngTÍmiir SkOðaT
möguleikann á þjóðstjórn
HEI— „Við vorum að fara yfir þá
möguleika, sem eftir eru til
myndunar meirihlutastjórnar,
sem ekki eru nú orðnir margir”,
sagði Steingrimur Hermannsson
að loknum þingflokksfundi Fram-
sóknarflokksins i gær.
Steingrimur sagöi, aö eins og
alþjóð vissi, þá virtist vinstri-
stjórnar möguleikinn talinn úti-
lokaður. Jafnframt hefðu fram-
sóknarmenn fengið þær fréttir frá
sjálfstæðismönnum, aö þeir muni
ekki vera til viðtals um samstjórn
með Framsókn og Alþýöubanda-
lagi, þótt ekki hafi verið formlega
frá þessu skýrt. Og þá færi nú að
þrengjastum kostina, a.m.k. sem
Framsókn tæki hugsanlega þátt i.
Þjóðstjórn sýndist næsti kostur og
hefði þingflokkurinn ákveðið aö
athuga þann möguleika af fullum
krafti. Að honum frágengnum
væri kannski ekki fullreynt um
samstjórn Framsóknar. Alþýöu-
flokks og Sjálfstæðisflokks, þvi
það hefði ekki verið skoðað
nema Ut frá þeim umræðugrund-
velli, sem Benedikt Gröndal lagöi
fram.
Steingrimur sagöi þetta þá tvo
möguleika sem framsóknar-
menn sæju i meirihlutastjórn, og
ætluðu að athuga þá báöa nánar,
ef hugsanlegt væri að ná mál-
efnalegri samstöðu. Að sjálfsögðu
gætu framsóknarmenn ekki
tekið þátt i stjórnarmyndun með
einhverjum afarkostum, eins og
að þeirra mati hefðu falist i til-
lögum Alþýðuflokksins.
Þingflokkurinn veitti Stein-
grimi heimild til aö athuga þjóö-
stjórnarmöguleikann, en tók ekki
afstöðu til hins möguleikans.
6.8 milljarða
vantar í
útflutnings-
bætur á
þessu ári
Þýðir 20-25%
kaupskerðingu
bænda
AM — „Nú liggur fyrir að
vanta mun 6 milljarða 785
milljónir i útflutnings bætur á
þessu ári, þó svo að greitt
verði að fullu svo sem lög
heimila af hálfu rfkisins”,
sagði Gunnar Guðbjartsson,
formaður Stéttars ambands
bænda, þegar við ræddum við
hann i gær.
í þvl fjárlagafrumvarpi
sem fyrir liggur er gert ráð
fyrir að þessi greiðsla verði
skert um 15% frá gildandi
lögum og sagði Gunnar að þvi
væri ekki vitað hve mikið
þetta yrði I reynd þegar upp
væri staðið og fjárlög hafa
verið afgreidd. Hefði enda
verið tekin sú afstaða af hálfu
Framleiðsluráðs á fundi þess
nú fyrir helgina að fresta á-
kvarðanatöku fram I febrúar,
þegar lögin hafa verið af-
greidd.
Gunnar sagði að þessi
upphæð næmi 10-12% af verði
mjólkur og kindakjöts og
mundikoma fram sem 20-25%
kaupskerðing hjá bændum.
Að undanförnu hefur veriö
reynt að kynna þessar alvar-
legu hórfur fyrir alþingis-
mönnum og stjórnmálamönn-
um, svo þeir hafi sem best
áttað sig á þeim, áöur en á-
kvarðanir verða teknar.
Þá sagði Gunnar, að ef svo
færi sem horfir að niður-
greiðslur á erlendum mark-
aði halda áfram að rýrna að
gildi gagnvart neytendum
vegna verðhækkana og
standa fastar aö krónutölu,
mundi það geta haft áhrif á
hve mikið selst innanlands. Þá
mun þaö auka erfiðleika
bænda enn að búið er að setja
innf lutnings takmar kanir I
Bandarikjunum á osti, kvóta
sem er svo þröngur, að til
Bandarikjanna má nú ekki
flytja nema 623 tonn I ár, I
stað þess að flutt voru þangaö
á þriðja þúsund tonn á sfðasta
ári. Verður þannig að selja
ostinn nú á lakari mörkuðum
en áður.
Löngum hefur þótt fallegt I
Vestmannaeyjum, en sumum
þykir þó innsiglingin þangað
ennþá fallegri I hrikaleik sln-
um eftir gosið mikla. Þessi
mynd er tekin af hraunbrún-
inni inn til hafnarinnar. Það
var mikið um að vera I Eyjum
um helgina, þar var m.a. vigð
ný flugstöð, sem sagt er frá á
blaðsfðu 8 I blaðinu I dag. Þar
var haldin fjölmenn ráöstefna
um málefni Eyjanna I nútið og
framtið. Laugardagskvöldiö
notuðu siðan margir til að
blóta þorrann meö tilheyrandi
áti og gleöskap.
Timamynd Tryggvi.
Veruleg verðlækkun á gasolíu á Rotterdammarkaði:
Gæti munað milljón
dollunun á mánuði
miðað við vetrarmánuðina hér
JSS— Verð gasoliu á Rotterdam-
markaði hefur lækkað verulega
að undanförnu. Þannig var skráð
verð á gasoliu sl. föstudag 322.50
dollarar á tonn. 2. janúar var
sama skráningin 367 dollarar á
tonn. Verðið hefur þvi lækkaö um
44.50dollara á þessum tima. Verð
á öðrum olíutegundum hefur
einnig lækkað mikið.
Timinn ræddi i gær við Vil-
hjálm Jónsson forstjóra Oliufé-
lagsins hf. Sagði hann, að ekki
væri hægt að fullyrða hver áhrif
þessi sveifla kynni að hafa á oliu-
verð á íslandi. Eins og dæmiö
sýndi, væri verðlag á Rotterdam-
markaði óstöðugt og erfitt að spá
fram I tlmann.
,,En viö getum sett dæmlð
þannig upp, að ef við notum á
þessum erfiðustu mánuðum 25000
tonn af gasollu á mánuði, gæti
þetta munað milljón dollurum á
mánaðarneyslu hjá okkur”, sagöi
Vilhjálmur.
Sagði hann, aö ljóst hefði verið,
JSS — Sendinefnd sú sem var I
Moskvu nú fyrir helgina til við-
ræðna við Sovétmenn um kaup á
gaffalbitum, er nú komin heim.
Gylfi Þór Magnússon fram-
kvæmdastjóri Sölustofnunar lag-
metis, einn nefndarmanna, sagði
I samtali við Tlmann I gær, að
ekki hefðu náöst samningar við
Sovétmenn aö svo stöddu. Heföi
talsvert mikið boriö á milli I viö-
að menn hefðu birgt sig vel upp I
haust, enda hefðu orðiö miklar
hækkanir á hráoliu á slðustu
mánuðum, eins og búist hefði ver-
ið við. Veturinn hefði hins vegar
verið mildur, bæði I Evrópu og
ræðunum, og heföi þar bæði veriö
um mismunandi verðhugmyndir
að ræöa, og eins hefði borið nokk-
uð á milli varðandi magn lagmet-
isins. Sovétmenn hefðu boðið um-
talsveröa verðhækkun frá siðasta
ári, en Islensku viðræöuaöilarnir
heföu engan veginn taliö hana
fullnægjandi.
Aðspurður um, hversu mikill
verðmundur hefði verið á til-
boðum Sovétmanna og lslendinga
Amerlku, eftirspurn eftir gasollu
hefði minnkað og veröið fallið.
„Eins og málin standa nú,
mætti jafnvel gera ráð fyrir að
um einhverja frekari slökun yröi
að ræða, ef ekkert óvænt kemur
fyrir, eða a.m.k. mætti reikna
með að ekki verði hækkun fram á
vorið”, sagöi Vilhjálmur Jónsson.
Þessi verðlækkun kemur ís-
lendingum ekki til góða sem
stendur, þar sem kaupverð á gas-
oliu af Sovétmönnum miðast við
skráningu I Rotterdam á hleðslu-
degi. Koma næstu olíufarmar
ekki til landsins fyrr en i lok
næsta mánaðar, og þá ætti verð-
lækkunarinnar að gæta, ef hún
stendur svo lengi.
sagði Gylfi Þór að hann hefði
verið innan við 20%. Sagði hann,
að unnið yrði að áframhaldandi
viöræðum en þær hefðu ekki verið
dagsettar enn sem komið væri.
Þeir sem fóru utan til þessara
viðræöna auk Gylfa Þórs
Magnússonar framkvæmda-
stjóra, voru Egill Thorarensen
frá Siglóslld og Mikael Jónsson
frá K. Jónsson &Co.
Viðræðum við Sovétmenn um kaup á lagmeti lokið í bili:
Samningar náðust ekki