Fréttablaðið - 12.04.2007, Síða 77

Fréttablaðið - 12.04.2007, Síða 77
„Verulega ljótt og ærumeiðandi er að bendla menn að ósekju við svo alvarleg- an glæp. Lögreglan lítur þetta alvarlegum augum og segir mig verða að spyrna við fótum,“ segir Ásgeir Davíðsson, sem betur er þekktur sem Geiri á Goldfinger. Vísir birti 19. mars síðastliðinn frétt undir fyrirsögninni „Geiri Goldfinger kærður fyrir líkamsárás“. Í fréttinni segir ónefndur leigubílstjóri Geira hafa misst stjórn á sér, hótað sér og kýlt ítrekað í and- litið. Lögmaður Geira, Brynjar Níelsson hrl., leggur fram kæruna í nafni Geira en hún er tvíþætt. Í fyrsta lagi er leigubílstjór- inn Jón Halldórsson kærður fyrir rangar sakargiftir. Í öðru lagi er farið fram á að gefið verði upp hver sá er sem kallar sig GunnarBest hjá Vísi.is og setti fram at- hugasemd við fréttina á Vísi. Sá segir af grunsemdum sínum þess efnis að Geiri sé viðriðinn hvarf Valgeirs Víðissonar sem saknað var árið 1994 og hefur ekki fundist. Geiri segir þetta út í hött en lítur ásakanir um kjaftshöggið alvarlegri augum. „Ég er ekki vanur að ganga um og kýla menn. Ég er alinn upp hjá góðu fólki og var kennt að hvorki ljúga né stela. Hvað þá kýla menn. Þetta fólk myndi snúa sér við í gröfinni ef það vissi hvað væri í gangi núna.“ Þórir Guðmundsson, ritstjóri Vísis, segir fyrirliggjandi að ef dómstólar vilji fá að vita hver standi á bak við nöfn á spjallþráð- um og á athugasemdakerfum muni Vísir gera sitt besta til að veita þær upplýsingar. „Hins vegar er ekki víst að hægt sé að finna viðkomandi. Menn skrá sig þarna inn og eru ekki endilega að gefa upp nöfn og kennitölur þannig að hægt sé að rekja það,“ segir Þórir. „Ég óttast ekki þessa kæru hans,“ segir Jón leigubílstjóri og stendur við framburð sinn, þann sem Vísir birti. Jón segir að rannsókn á kæru sinni sé ekki lokið og hann hafi enn frest til að leggja fram bótakröfu. Jón segist jafnframt hafa undir höndum áverkavottorð. Aðspurður hvernig á þessum ýfingum standi segir Jón þær tengjast vini sínum, Viðari Má Friðfinnssyni, fyrrverandi starfs- manni Geira á Goldfinger. Hann hafi verið rekinn af Goldfinger fyrir að vera í sam- bandi við súludansmey, en tekið við sem framkvæmdastjóri á súlustaðnum Bóhem. Á hann verið ráðist af tveimur grímuklædd- um mönnum á síðasta ári og telur Jón Geira tengjast þeirri árás. Geiri hafnar því hins vegar alfarið og segist hafa þá verið í New York með konu sinni. Eftir að Fréttablaðið talaði við Vísismenn vegna vinnslu þessarar fréttar var svo búið að taka niður athugasemdir við veffréttina. Geiri á Goldfinger ósáttur og kærir á móti Breska leikkonan Keira Knightley lifir í ótta þessa dagana því fimm karlmenn ofsækja hana og elta hvert sem hún fer. „Ég er ótrú- lega hrædd,“ segir Keira enda veit hún ekkert um hversu hættulegir þessir óðu aðdáendur hennar eru. „Fimm menn elta mig og ég veit ekki hvort þeir eru nauðgarar eða eitthvað annað. Ég er dauðhrædd á hverjum degi.“ Keira hrædd um líf sitt Paris Hilton virðist eiga ákaflega bágt með að haldast á vinum en nýjasta vinkona hennar á það kannski sameig- inlegt með Paris að vera ekki við eina fjölina felld … hvað starf varð- ar. Paris sást nefnilega í hrókasam- ræðum við klámmynda- leikkonuna Jennu Jameson í afmæli þeirr- ar síðarnefndu á hóteli í Las Vegas. Hvort Hilt- on-erfinginn hafi verið að þiggja góð ráð frá Jameson skal ósagt látið en fyrirsæt- an varð fyrir því óláni að kynlífsmyndband hennar og Rick Sol- omon lak út á netið og skákaði meðal annars öllu því nýj- asta í klámiðnaðin- um þá í smásölu. Breska blað- ið The Sun birt- ir myndir úr af- mælinu og má þar meðal annars sjá Lukas Rossi í góðu stuði með Jennu en hann ættu Ís- lendingar að kann- ast vel við úr sjón- varpsþáttunum Rock Star: Supernova þar sem Magni „okkar“ Ásgeirsson sló í gegn. Jenna ný vin- kona Parísar UNGFRÚ REYKJAVÍK 2007 Í BEINNI ÚTSENDINGU Í KVÖLD KL. 22.00 Á SKJÁEINUM
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.