Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.04.2007, Qupperneq 36

Fréttablaðið - 20.04.2007, Qupperneq 36
BLS. 4 | sirkus | 20. APRÍL 2007 É g hef mikinn áhuga á fötum og finnst skemmtilegast að blanda saman gömlu og nýju,“ segir Hildur Magnúsdóttir, söngkona Hara, en Sirkus fékk að kíkja í fataskápinn hjá þessari hressu 23 ára konu sem býr í Hveragerði. Hildur viðurkennir að eiga mikið af fötum en hún verslar aðallega í Spútnik og á e-Bay. „Mér finnst voðalega gaman að versla á netinu og líka í útlöndum, bæði í H&M, í second hand-verslunum og á mörkuðum. Ég er sérstaklega veik fyrir kjólum og síðum peysum við leggings og belti en í rauninni er ég jafn veik fyrir þessu öllu saman,“ segir hún hlæjandi. Hildur segist hafa verið hálfgerð strákastelpa þegar hún hafi verið barn og fataáhuginn hafi ekki komið fyrr en hún hafi komist á unglings- árin. „Þegar ég var lítil var ég stuttklippt og gekk stundum um í jakkafötum.“ Spurð hvernig henni finnist Íslendingar standa sig þegar komi að tísku segir hún okkur standa okkur mjög vel. „Fólk er farið meira að klæða sig eins og það vill í stað þess að elta tískuna og það finnst mér mjög skemmtilegt. Eins eru alltaf fleiri íslenskir hönnuðir að koma fram sem er gaman að fylgjast með,“ segir hún en bætir við að sjálf skoði hún aldrei tískublöðin. „Ég bý bara til minn stíl sjálf,“ segir hún en Hildur starfar eins og er í rósarækt hjá pabba sínum. „Í vinnunni er ég klædd rifnum gallabuxum og ljótum peysum enda rifnar allt í rósavinn- unni. Það er samt alltaf gaman að koma heim eftir vinnu og klæða sig upp því ég er svo mikil kjólamann- eskja.“ Eins og alþjóð veit sló Hildur í gegn í þættinum X-factor þar sem hún og systir hennar Rakel lentu í öðru sæti, á eftir hinum færeyska Jógvan. Stelpurnar unnu hug og hjörtu landsmanna með dansatriðum og flottum búningum. Hildur segir Rakel systur sína reglulega fá föt hjá sér lánuð. „Við skiptumst ekki mikið á fötum en hún er samt dugleg að fá lánað hjá mér. Hún er náttúrlega ferlega hallærisleg en er sem betur fer farin að taka mig meira til fyrirmyndar,“ segir Hildur hlæjandi. indiana@frettabladid.is HILDUR MAGNÚSDÓTTIR SÖNGKONA ÚR HARA HEFUR MIKINN ÁHUGA Á FÖTUM OG TÍSKU. HÚN SKOÐAR SAMT ALDREI TÍSKUBLÖÐ HELDUR BÝR TIL SINN EIGIN STÍL. Veik fyrir öllum fötum UPPÁHALDSKJÓLLINN „Þetta er útskriftarkjóllinn minn, sem er svartur og bleikur tjullkjóll og einn sá flottasti sem ég hef séð. Ég keypti hann í Spútnik fyrir nokkrum árum en skóna keypti ég á e-Bay. Þeir voru upphaflega brúnir en ég spreyjaði þá svarta.“ SIRKUSMYND/ANTON KÚREKAPEYSA „Ég nota þessa rauðu og svörtu peysu við glansleggings. Ég fékk peysuna í second hand- verslun í London og ég hélt að Rakel myndi gubba þegar hún sá hana. Mér finnst hún geðveik og það á enginn annar svona peysu.“ SIRKUSMYND/ANTON EUROVISION-JAKKINN „Svörtu peysuna fékk ég í Urban Outfitters en beltið í Spútnik. Jakkinn er brjálaður Eurovision-jakki og ég var kölluð Sigga Beinteins eftir að hafa farið í honum á djammið. Þegar ég kemst á Eurovision verð ég í þessum jakka.“ SIRKUSMYND/ANTON 350 KRÓNA KJÓLL „Ég fékk þennan bláa, bleika og hvíta kjól á e-Bay og borgaði aðeins 350 krónur fyrir hann. Hann er mjög flottur og mér finnst fárán- legt hvað hann var ódýrt.“ SIRKUSMYND/ANTON
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.