Fréttablaðið - 02.05.2007, Blaðsíða 41

Fréttablaðið - 02.05.2007, Blaðsíða 41
Leikritið Afgangar eftir Agnar Jón Egilsson verður tekið upp að nýju og verða þrjár sýningar á verkinu í Austurbæ í þessari viku. Tveir einstaklingar, kona og maður um þrítugt, koma saman inn í herbergi og við tekur tæling- arleikur. Þó er ekki allt sem sýn- ist því hjónaleysin eiga sér leynd- armál sem koma upp á yfirborðið eftir því sem líður á leikinn. Tekist er á um ástina og hennar mörgu andlit og hugmyndir settar fram um hugrekkið sem einstaklingur- inn þarf að hafa til að þora að tak- ast á við fyrirbærið ást. Verkið hlaut góðar viðtökur síð- asta haust og hrósaði gagnrýnandi Fréttablaðsins meðal annars höf- undinum fyrir tæran og tilgerðar- lausan texta og leikurunum fyrir góða vinnu. Leikararnir í sýningunni eru Elma Lísa Gunnarsdóttir og Stefán Hallur Stefánsson en höfundurinn leikstýrir. Um tónlistina sér Hall- ur Ingólfsson en leikmynd og bún- inga hanna Arnheiður Vala Magn- úsdóttir og Ólafur Stefánsson. Verkið er sýnt á nýju sviði Austurbæjar. Afgangar teknir upp Það eru tíu ár síðan nokkrar ungar stúlkur með þjálfun og áhuga á dansi stofnuðu Dansleikhús með ekka. Þær hafa síðan með reglulegum hléum sótt sér fjármagn og sett upp danssýningar. Nú ætla þær að halda upp á tíu ára afmælið eins og stelpur gera á tíunda aldursári og bjóða upp á skemmtun og langan afmælisdag. Þær hafa fengið Þjóðleikhús- ið undir afmælisveisluna eins og löngum hefur tíðkast þar í húsi þegar sjálfstæðir danshópar eða skóla eiga í hlut – og hyggjast nýta tímann vel. Veislan hefst í fyrra- málið og segjast stelpurnar ráða þar ríkjum í tvo heila daga: hefst kl. 17 og stendur yfir langt fram á kvöld. Danssýningin Mysteries of Love með dönsurunum Ernu Ómarsdóttur og Söru Maríu Guð- jónsdóttur verður flutt til landsins í tilefni dagsins og fjöldi annarra dans- og tónlistaruppákomna mun gleðja gesti afmælishátíðarinnar. Dansleikhúsið steig sín fyrstu spor í Þjóðleikhúsinu. Fyrsta sýn- ing Ekka var í Þjóðleikhúskjall- aranum fyrir tíu árum. Síðan þá hefur Ekki vaxið úr grasi, markað spor sín á erlendri grund og unnið til verðlauna. Nú verða þær á stóra sviðinu og hefur Tinna Gunnlaugs- dóttir þjóðleikhússtjóri ákveðið að víkja úr aðalbyggingunni með sína starfsemi og afhenda Dans- leikhús með ekka húsið til afnota þessa tvo daga. Rúmlega 40 lista- menn munu einnig leggja Ekka lið og taka þátt í innrásinni, eins og þær kalla þessa heimsókn sína á Hverfisgötuna. Markmið innrásarinnar, segja þær, „er þó ekki aðeins að vekja athygli á starfi Dansleikhúss með ekka síðustu tíu árin heldur einnig að beina sjónum að húsnæðis- og aðstöðuleysi sjálfstætt starfandi danshópa á Íslandi. Aðstöðuleysið hefur haft verulega hamlandi áhrif á framþróun danslistarinn- ar á Íslandi undanfarin ár. Á Ís- landi er ekkert húsnæði sérstak- lega tileinkað dansinum og geta Þjóðleikhús og Borgarleikhús engan veginn annað eftirspurn eftir æfingar- og sýningarrými. Íslenskir dansarar og danshöf- undar hafa þurft að sækja utan til að geta starfað við list sína og eru um þrisvar sinnum fleiri danssýningar sýndar á erlendri grundu en á Íslandi.“ Nefna þær að dansinn hafi verið í útrás, er þá skemmst að minnast innrás- ar ÍD í Kína. Nefna þær sýningu sína Mysteries of Love sem unnin er alfarið á erlendri grundu og fyrir erlent fé, þó svo að um ís- lenska sýningu sé að ræða. Þjóðleikhúsið opna þær gestum kl. 17. Þá gefst gestum kostur á að sjá afrakstur innrásarinnar og um leið upplifa leikhús þjóðarinn- ar með öðrum hætti en þeim er boðið á hefðbundinni leiksýningu. Dagskráin er þríþætt: Klukk- an 17 er setning afmælishátíðar- innar með uppákomu Dansleik- húss með ekka á Stóra sviðinu. Í kjölfarið verður farið í ferða- lag um anddyri, ganga og stiga- palla, Kristalsal, Leikhúskjall- ara og Leikhúsloft leikhússins þar sem örverk, dans- og tónlist- argjörningar, dansmyndir, gagn- virkar uppákomur o.fl. spretta fram. Kl. 21 verður Íslandsfrum- sýning á Mysteries of Love með Ernu Ómarsdóttur og Margréti Söru Guðjónsdóttur á Stóra svið- inu, en sýningin er annað sam- starfsverkefni Ernu Ómarsdóttur og Jóhanns Jóhannssonar tónlist- armanns. Að lokinni sýningu, eða um kl. 22, tekur við skemmtidag- skrá, tónlistaratriði og óvæntar uppákomur í Þjóðleikhúskjallar- anum. Hægt er að panta miða í síma 551-1200 eða á heimasíðu Þjóð- leikhússins, www.leikhusid.is. Bakhjarlar innrásarinnar eru listamennirnir sem taka þátt og menntamálaráðuneytið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.