Fréttablaðið - 12.05.2007, Blaðsíða 60
12. MAÍ 2007 LAUGARDAGUR12 fréttablaðið eurovision
Það er margt aðkallandi í lífi
þeirra Írisar, Þorbjargar, Evu,
Telmu og Þórhildar, kvenn-
anna í lífi hljóðfæraleikara Val-
entine Lost í Eurovision. Þær
punta sig, dansa við homma
milli þess sem þær veita mönn-
um sínum móralskan stuðning
í keppninni.
Konurnar í lífi karlanna í Eurov-
ision láta sérlega vel af dvölinni
í Helsinki. Þær vinna ötullega að
mórölskum stuðningi við kepp-
endurna milli þess sem þær njóta
lífsins í höfuðborg Finna. „Það
sem við höfum aðallega verið að
bralla er bara þetta týpíska sem
maður gerir á Eurovision. Punta
okkur, djamma, versla og dansa
við hommana,“ segir Íris Guðna-
dóttir, unnusta Benedikts Brynj-
ólfssonar sem slær taktinn í lag-
inu Valentine Lost á trommurnar.
„Það eru tvær konur með
reynslu hérna með í för og þær
leiða okkur hinar áfram,“ segir
Íris og á þá við þær Þorbjörgu Sæ-
mundsdóttur sem fylgir Gunnari
Þór Jónssyni gítarleikara í atriði
Eiríks og sjálfa Telmu Ágústsdótt-
ur sem keppti fyrir hönd Íslands í
Eurovision árið 2000 í Stokkhólmi
með Einar Ágúst Víðisson úr Skíta-
móral sér við hlið.
„Telma þekkir þetta náttúr-
lega mjög vel en það er allt önnur
reynsla að vera keppandi held-
ur en frú á Eurovision,“ útskýrir
Íris.
Reynsluboltar Eurovision segja
að rólegri keppni hafi ekki verið
haldin í manna minnum. Stelpurn-
ar segja það þó ekki koma að sök.
Mannlífið í Helsinki sé dásamlegt
og tungumálið setji þar punktinn
yfir i-ið. Úkraínska lagið sem oft-
ast er spáð sigri í keppninni heill-
ar þær ekki. „Þetta lag er bara
ógeðslegt,” segir Íris og hinar taka
undir. Þegar talið berst að betri
lögum hrósar Íris Tyrklandi sér-
staklega. Kýpur og Hvíta-Rúss-
land koma svo sterklega til greina
sem heppileg sigurlög að mati
stelpnanna, svona fyrir utan Ís-
land auðvitað.
„Reyndar er hann Koldun sem
syngur lagið fyrir Hvíta-Rúss-
land með okkur á hóteli. Hann er
voða raunamæddur alltaf og ekk-
ert voða hrífandi svona í eigin
persónu. Það er eitthvað vafasamt
við hann. Lýtalæknalykt teljum
við, það er eitthvað undarlegt að
minnsta kosti,” segir Íris önnum
kafin á Eurovision. karen@frettabladid.is
KONURNAR
í lífi hljóðfæra-
leikaranna
Konurnar í lífi strákanna sem eru í hljómsveit Eiríks Haukssonar skemmta sér vel í Helsinki. Frá vinstri eru þær Þórhildur R. Jóns-
dóttir (kona Stefáns Steindórssonar gítarleikara), Íris Guðnadóttir (kona Benedikts Brynleifssonar trommara), Telma Ágústsdóttir
(kona Gunnars Þórs Jónssonar gítarleikara), Þorbjörg Sæmundsdóttir (kona Vignis Vigfússonar hljóðmanns), Eva Rán Ragnars-
dóttir (kona Axels Þóris Þórissonar gítarleikara) og Kristjana Thors, Nanný, danshöfundur íslenska hópsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
HÉR ERU NIÐURSTÖÐUR KÖNNUNARINNAR
1 Ruslana - Wild dances, 2004
2 Sertab Erener - Every way that I can, 2003
3 Vicky Leandros - Après toi, 1972
4 Helena Paparizou - My number one, 2005
5 Max - Can’t wait until tonight, 2004
6 ABBA - Waterloo, 1974
7 Gracia - Run & hide, 2005
8 Bucks Fizz - Making your mind up, 1981
9 Lena Valaitis - Johnny Blue, 1981
10 Münchner - Freiheit viel zu weit, 1993
11 Mary Roos - Nur die Liebe lässt uns leben, 1972
12 Nicole - Ein bischen Frieden, 1982
13 Wind - Für alle, 1985
14 Bobbysocks - La det swinge, 1985
15 Dschinghis Khan - Dschinghis Khan, 1979
16 Marie Myriam - L’oiseau et l’enfant, 1977
17 Anne-Marie David - Tu te reconnaîtras, 1973
18 Sandra Kim - J’aime la vie, 1986
19 Jacqueline Boyer - Tom Pillibi, 1960
Bestu lög allra tíma
„The Best of Eurovision“ var sérstæð keppni sem haldin var í
Hamborg í Þýskalandi 20. maí 2006. Tilgangurinn var að meta
með skoðanakönnun hvaða lag úr söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva væri best.
Í sjónvarpsþættinum Grand Prix Hitliste var tilkynnt að Villtu
dansarnir hennar Ruslönu hefðu hlotið flest atkvæði en hún sigr-
aði í Eurovision árið 2004.
Ruslana frá Úkraínu kom, sá og sigraði árið 2004. Lag hennar þótti það besta
frá upphafi í nýlegri skoðanakönnun.
Al
lar
pizzur á aðeins
Gildir til sunnudagsin
s 1
3.
m
aí
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
7
0
9
60