Tíminn - 17.04.1980, Blaðsíða 1
Síðumúla 15 • Pósthólf 370 ■ Reykjavik • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392
Ólaíur Jóhannesson:
„Alger firra og ósannindi
að undirritun hafi komið til mála”
HEI — „Þaö eru alger ósannindi
aöéghafi ætlast til aö skrifaö yröi
undir eitt eöa neitt, enda hefur
tæpast nokkrum komiö til hugar
aö skrifaö yröi undir eitt eöa neitt
á þessum fundi” sagöi Ólafur Jó1
hannesson, utanrikisráðherra er
borin voru undir hann skrif blaða
I gær um að hann hafi lagt hart að
mönnum að skrifa undir eitthvert
uppkast á samningafuncjinum
um Jan Mayen. „Þaö er alger
firra” sagði Ólafur.
■Ólafur sagði að það sem blöðin
ræddu um sem uppkast hefði i
raun verið fyrsta vinnuplagg frá
undirnefnd um landgrunnsmálið
sem þó hafði ekki lokiö störfum,
en vinnuplagg frá nefndinni sem
fjallaði um fiskveiðimálin — sem
auðvitað hefði verið raunhæfara í
augnablikinu — hefði hinsvegar
alls ekki verið komið fram.
1 þessum undirnefndum hefðu
fulltrúar stjórnmálaflokkanna
ekki óskað eftir að sitja, heldur
hefðu það eingöngu veriö em-
bættismenn og sérfræðingar.
Ólafur sagði það jafnframt al-
ger ósannindi að hann og Knud
Frydenlund hefðu gert með sér
eitthvert „privat” samkomulag
eins og látið er að liggja i Dag-
blaðinu I gær og jafn mikil fjar-
stæða væri aö hann sjálfur hefði
lagt fram nokkurt uppkast aö
samkomulagi.
Spurður um upphlaupið i þing-
flokkunum i gær sagði Ólafur þaö
sér óskiljanlegt. Hann heföi
aldrei vitað til þess fyrr að hlaup-
ið væri með fyrsta vinnuplagg
einnar nefndar, sem enn var
störfum og önnur plögg ókomin,
inn á þingflokksfundi. Vinnu-
plaggið frá undirnefndinni um
fiskveiðiréttindin hefði alls ekki
verið komið þegar boöað heföi
veriö til þingflokksfundanna og
hitt plaggið alls ekki fullunnið.
Sjá nánar viðtal á bls. 3.
Jónas verður
búnaðarmálastjóri
HEI — t gær var ákveöiö aö
Jónasi Jónssyni, ritstjóra yröi
veitt staöa búnaöarmálastjóra.
Mun hann taka viö stööunni X.
mai n.k.
Fimm umsóknir bárust. Auk
Jónasar sóttu um þeir: Hjalti
Gestsson, ráöunautur, Jón Viöar
Jónmundsson, ráöun. og kennari,
Jóhannes Sigvaldason, ráöunaut-
ur og Sveinn Hallgrimsson, ráöu-
nautur.
Grænlensk landhelgi færð út 1. júni:
Vilja ekki
tala við
íslendinga
Hvorki veröur haft samráö
viö tslendinga né efnt til viö-
ræöna viö tslendinga um dt-
færslu grænlenskrar landhelgi,
en landhelgi Grænlands veröur
færö út hinn 1. júni næst kom-
andi.eftir þvi sem haft er eftir
mjög traustum heimildum i
Kaupmannahöfn.
Búiö er aö taka fuilnaöar-
ákvöröun um útfærslu iandhelgi
Grænlands, en þaö veröa hvorki
Grænlendingar sjálfir né Danir
sem ráöa munu nýtingu • land-
helginnar, heldur stjórnardeiid-
ir Efnahagsbandalags Evrópu I
Brussel I Belgiu, segja sömu
heimildir.
Enginn vilji er til þess aö
fresta útfærslunni vegna þess aö
islendingar kunni aö fara fram
á viöræöur um máliö.
Innan grænlensku landhelg-
innar veröa mjög mikilvæg
fiskimiö, til dæmis mörg mikil-
vægustu loönumiöin vestur af
Jan Mayen.
Ekki kemur til greina af háifu
Efnahagsbandalagsins, segja
heimildirnar i Kaupmannahöfn,
aö heimiia tslendingum neinar
veiöar innan hinnar nýju land-
helgi nema tslendingar hleypi
flotum Efnahagsbandalags-
landanna til jafns inn i landhelgi
tslands.
Eins og fram hefur komið i
fréttum tmnu Norðmenn færa út
landhelgina umhverfis Jan
Mayen 1 siðasta lagi samtimis
útfærslunni við Grænland.
Vitneskju sina um fyrirætlanir
Efnahagsbandalagsins notuöu
norsku sendimennirnir sér
rækilega á viöræöufundunum I
Reykjavik til þess að knýja
tslendinga til undanhalds. Obil-
gimi og ósanngirni Norömanna
byggðist ekki sist á þessu.
Ars starfslaun til
eins listamanns
Kás — „Borgarstjórn samþykkir
að úthluta árlega starfslaunum
til reykvisks listamanns og skulu
þau nema launum kennara viö
framhaldsskólastigið. Stjórn
Kjarvalsstaða velur listamann-
inn, sem starfslaun hlýtur hverju
sinni á grundvelli umsókna er
henni berast að viðhafðri auglýs
ingu”, segir i upphafi tillögu sem
lögð verður fýrir borgarstjórnar-
fund á morgun.
Gert er ráð fyrir samkvæmt til-
lögunni að að starfsárinu liönu
geri listamaðurinn grein fyrir
starfi sinu með greinargerö eða
með framlagningu á verki til
frumbirtingar eða frumflutnings
og þá gjaman I tengslum við
Listahátið eða Reykjavikurviku.
Starfslaun þessi eru sérstak-
lega ætluð listamönnum, sem
ekki geta stundað listgrein sina
sem fullt starf.
Ef tillagan verður samþykkt,
mun borgarstjórn fela stjórn
Kjarvalsstaöa i samráöi við borg-
arlögmann að semja reglugerð
um úthlutun starfslaunanna i
samræmi við það sem fyrr hefur
verið nefnt.
Nokkur hópur mótmælenda gegn hvaladrápi mætti fyrir utan Hallveigarstaöi i gærmorgun meö
spjöld. Á innfelldu myndinni eru þeir Bill Jordan frá Kgi. breska dýraverndunarfélaginu, Alan
Thornton, sem stjórnar skrifstofu Greenpeace i London og Harry Lillie, læknir.
Yfirheyrslur í máli Greenpeace og Hvals hf.
Verður dómarinn sendur
út með hvalveiðiskipum?
AM — í gærmorgun fóru fram
yfirheyrslur i máli Greenpeace-
manna og Hvals hf. I bæjarþingi
Reykjavlkur. Lögmaður Hvais
hf. Benedikt Blöndal hrl. og lög-
maður Greenpeacemanna,
Höröur ólafsson hrl. voru viö-
staddir yfirheyrslurnar, en dóm-
ari verður Garðar Glslason
héraðsdómari.
Hingað hafa veriö kvaddir af
hálfu Greenpeace tveir sérfróðir
menn sem þeir hafa kallað til
vitnis um ómannúölegar aöferðir
viö hvaladráp. Þaö eru þeir Bill
Jordan, sem veitir forstöðu þeirri
deild Kgl. breska dýraverndunar-
félagsins, sem berst gegn ómann-
uðlegri meöferð dýra, og er fjöl-
menntaður maður á sviði liffærði
og llfeðlisfræði, en hinn er læknir-
inn Harry Lillie, sem um árabil
var læknir hvalveiðiflota I
Weddelhafi við suðurskautiö.
Báru þeir báðir vitni um þær
þjáningar sem hvalir hljóta að
llða við veiöarnar, en dæmi eru
um að dauðastrfð þeirra taki nlu
klukkustundir.
Auk þessara tveggja manna,
sem hvorugur eru aðildarmenn
að Greenpeacesamtökunum, þótt
þeir styðji þau málefnalega, var
og mættur við yfirheyrslurnar
Alan Thornton, skrifstofustjóri
Greenpeacesamtakanna I Lond-
on.
Yfirheyrslum verður nú frestað
I fjórar vikur, þar sem málsgögn
þarf að þýða og ýmis úrvinnsla
gagna þarf að fara fram, áður en
lengra verður haldið. A fundi með
blaðamönnum I gær á heimili
Harðar Ólafssonar hrl. kom fram
að mjög þætti æskilegt að dómar-
inn sjálfur færi út með hvalveiöi-
skipunum og kynntist aðferöun-
um við veiðarnar af eigin raun,
áður en dómsúrskuröur verður
upp kveðinn.
Hvalur hf. lagði á sinum tima
einnar milljón króna tryggingu
fram fyrir lögbanni þvi sem lagt i
var á athafnir Greenpeacemanna
og fæst tryggingarféð ekki endur-
greitt, nema lögbannið verði
staöfest.
Fulltrúar Greenpeace og vitni
þeirra lögöu áherslu á aö mikil-
vægt væri að þekking og áhugi á
málum kæmi I stað þess áhuga-
leysis og fáfræði sem rlkti hjá al-
menningi hér um og töldu að
gagnlegt væri ef blaðamenn gætu
farið sjálfir I veiðiferöir meö
hvalveiðiskipum, eins og lagt er
til að dómarinn geri.