Tíminn - 29.04.1980, Blaðsíða 1

Tíminn - 29.04.1980, Blaðsíða 1
Síðumúla 15 • Pósthólf 370 • Reykjavík • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392 Boranir hef jast við Kröflu á. nv — framkvæmdir hefjast um miðjan maí AM — Frá þvi 14. þessa mánað- ar hefur verið unnið að upptekn- ingu og skoðun á vélum og þétti- vatnsdælum Kröfluvirkjunar, auk aðveituæða og safnæða og sagði Einar Tjörvi Elfasson, yfirverkfræðingur Kröflu- virkjunar okkur i gær að allt hefði þetta verið með öllu óskemmt og liti mjög vel út. Nú á næstu dögum mun bor- inn Narfi verða fenginn að Kröflu, vegna hreinsunar á hol- um 7 og 9 og bjóst Einar Tjörvi við að sú hreinsun tæki 14 daga. Reikna má með að mánuði siðar verði hægt að fara að keyra orkuverið aö nýju, en holurnar þarf að hita varlega upp eftir hreinsun. Borinn Jötunn hefur verið i Bjarnarflagi, eftir að hann bor- aði eina holu fyrir Kisliðjuna i fyrra, en innan tiðar verður hann fluttur að Kröflu, vegna fyrirhugaðra borana á 2-3 hol- um þar i sumar, en nánari ákvörðun biður nú, afgreiðslu lánsfjáráætlunar.. „Okkur hefur verið sagt að stefna að þvi aö geta farið i Tjörvi, „og við miðum við að boranir sem fyrst,” sagöi Einar þærgetihafistum miðjan mai.” Skipuleg nýtíng auðlindanna eitt mikilvægasta verkefnið — Sjá orkumálaályktun miðstjómar Framsóknarflokksins á bls. 7 EfnahagsmáUn meginviMangs- efni rflds- sljómarinnar — Sjá stjórnmálaályktun miðstjórnar á bis. 7__ Tap Flugleiða 1978 og 79 8.062 mfllj. Engar breytingar á stjórn AM — A aðalfundi Fiugleiða, fremst rekja til breyttrar stefnu sem haldinn var að Hótel Loft- Bandarikjastjórnar, sem leiðum i gær, kom fram að heimilað hefði fjölda nýrra fé- heildartap á Atlantshafsfluginu laga flug á N-Atlantshafi og nam 7.4 milijörðum króna á ár- skapað ofboðslega samkeppni inu 1979, en Atlantshafsflugið er og taprekstur allra félaga á stærsta eining rekstursins, um þessum leiðum. Allmörg félög 51% og skiptir þvi sköpum fyrir hafa hins vegar annan rekstur, afkomu félagsins hvert fram- þar sem fargjöld eru hærri og hald verður þar á. þola þvi tap á N-Atlantshafs- Sigurður Helgason, forstjóri, leiðum. Auk þessa nefndi hann sagði að þetta mætti fyrst og Framhald á bls. 19. Tómas Árnason í útvarpsumræðum í gærkvöldi: Geymdi vandinn rask- ar áformum ríkis- stjórnarinnar í verðlagsmálum — en hann haggar ekki langtíma markmiðum um hjöðnun verðbólgunnar í áföngum Tómas Árnason. „Þaö er nú alveg ljóst, að þessi geymdi uppsafnaði verölags- vandi er allmiklu meiri en ráð var fyrir gert. Þegar öil kuri eru komin til grafar ætla ég að hann verði a.m.k. 3-4 prósentustig i framfærsiuvisitölunni. Hann skrifa ég á syndaregistur Alþýðu- flokksins og formanns Sjálf- stæðisflokksins og hans manna. Þetta kann ab raska nokkuð áformum rikisstjórnarinnar i verðlagsmálum og niðurtalningu verðbólgunnar en haggar ekki Iangtima markmiðum um hjöðn- un verðbólgunnar i áföngum. Þetta kallar á aukið aðhald næstu Framhald á bls. 19. SkattaJ ækkunartil - lögur stjómarand- stöðunnar eru sýnd- qyitMAtltmlm — sagði Guðmundur Bjarnason í 11Inllútvarpsumræðum í gærkvöldi JSG — „Háttvirtir stjórnarand- stöðuþingmenn leggja fram breytingartillögur um verulegar skattalækkanir. Auðvitað væri ekki nema gott eitt um það að segja að lækka skattana og minnka álögurnar, ef hér væri um raunhæfar tillögur ab ræða, en svo er þvi miður ekki. Þetta eru sýndar-tillögur. Þeir segjast vera til viðræðu um þab hvar megi draga saman en koma sér undan að benda á ákveðna þætti. Þó hafa þeir nefnt lækkun á niöurgreiösl* um. — Lækkun á niðurgreiðslum — er það nú r^unhæfasta leiðin til að koma til móts við skattgreið- endur? Minnkaðar niðurgreiðslur þýða auðvitað hækkað vöruverö, hækkað verð á matvörum sem kæmi að sjáifsögðu verst við þá sem minnstar tekjur hafa og flest börnin, stærstu fjölskyldurnar.” Þetta sagöi Guðmundur Bjarnason, sem var annar full- trúa Framsóknarflokksins i út- varpsumræðum um skáttamál i gærkvöldi. Guðmundur lagöi áherslu á að heildarskattbyrðin i ár yröi sú sama og i fyrra. Hann hrakti full- yröingar stjórnarandstæöinga um að tekjubreytingar milli ára væru vanáætlaðar I tillögum stjórnarliða og benti á nýlega skýrslu frá Þjóðhagsstofnun sem Framhald á bls. 19. Guðmundur Bjarnason.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.