Tíminn - 29.04.1980, Page 6

Tíminn - 29.04.1980, Page 6
6 Þriðjudagur 29. april 1980 Ctgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Jón Helgason og Jón SigurOsson. Ritstjórnarfull- trúi: Oddur ólafsson. Fréttastjóri: Eirfkur S. Eiriksson. Aug- lýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, f ramkvæmdastjórn og auglýsingar Sfóumúla 15. Sfmi 86300. — Kvöldsimar blaðamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Verð f lausasölu kr. 240. -Askriftargjald kr. 4.800 ó mdnuði.___________Blaðaprent. y Þórarínn Þórarínsson: Erlent yflrlit Vestur-Evrópa fylgir Bandaríkjunum nauðug Reynt að afstýra hernaðarlegum aðgerðum Mistök Carters Það er ótvlrætt, að Carter forseti hafði bæði laga- legan og siðferðilegan rétt til að senda hersveit til írans i þeim tilgangi að bjarga gislunum i banda- riska sendiráðinu i Teheran. Rlkisstjórn írans hefur veitt stúdentunum, sem hertóku sendiráðið og héldu gislunum þar, svo mikinn óbeinan og beinan stuðn- ing, að hún er sek um að hafa brotið sambúðarlög þjóðanna á hinn augljósasta hátt. Hún viðurkennir sjálf brot sitt með þvi að lýsa yfir að hún muni ekki kæra þennan verknað fyrir öryggisráði Sameinuðu þjóðanna eða öðrum alþjóðlegum stofnunum. Slikt hefði hún vafalaust gert, ef hún hefði talið sig hafa hreinan skjöld. Það er þvi ekki hægt i þessu sambandi að deila á Carter forseta fyrir brot á lögum eða siðferðilegum lögmálum. Það er einnig hægt að skilja áhuga hans á þvi að reyna öll hugsanleg ráð til að frelsa gislana. Bandariska þjóðin krefst þess af honum, að hann láti ekkert ógert i þessum efnum, sem skynsamlegt getur talizt. Hún getur jafnvel fyrirgefið honum, þótt hann tefli á tæpasta vað. Þrátt fyrir þetta allt, er erfitt að mæla bót þeirri ofdirfskiríullu tilraun að reyna að frelsa gislana með þvi að senda 90 manna vikingasveit til írans. Frá skynsamlegu sjónarmiði virðist slik tilraun hafa öll skilyrði til að misheppnast. Vafalitið hefur það orðið Carter mikið happ, að hún misheppnaðist i upphafi. Að öðrum kosti hefðu sennilega allir vik- ingarnir verið drepnir og gislamir til viðbótar. Areiðanlega hefðu viðbrögð ofsatrúarmannanna I Teheran orðið hin grimmilegustu, ef horfur hefðu verið á að tilraunin gæti heppnazt. Frá þessu sjón- armiði var tilraunin eins óviturlegt flan og hugsazt gat. Þess vegna vekur hún vantrú á, að full skyn- semi ráði rikjum i Hvita húsinu um þessar mundir. Upplýst er llka, að mikill ágreiningur hefur verið um þetta hjá þeim þrönga hópi ráðamanna, sem um þetta mál f jallaði áður en tilraunin var ákveðin. Sá maður rikisstjórnarinnar, sem nýtur mests trausts út á við, Vance utanrikisráðherra, baðst lausnar i mótmælaskyni. Sú spuming er nú vafalaust efst I hugum manna, hvert áframhaldið verður. Lætur Carter verða alvöru úr hótunum sinum um meiri hernaðarlega valdbeitingu, ef viðskiptaþvinganir bera ekki tilætl- aðan árangur? Geta afleiðingar slikrar valdbeiting- ar orðið ný heimsstyrjöld? Þau ummæli eru höfð eftir Helmut Schmidt kanslara Vestur-Þýzkalands, að ástand alþjóða- mála sé nú álika tvisýnt og óráðið og 1914. Það er ekki ósennilegt, að kanslarinn hafi þá i huga, að ýms tilfinnlngakennd og óhugsuð viðbrögð Carters forseta minni á Vilhjálm keisara. Það eykur t.d. ugg bandalagsþjóða Bandarikj- anna, að Carter hefur engin samráð haft við stjómir þeirra áður en hann tekur tilviljunarkenndar á- kvarðanir slnar, heldur ætlast til að þær fylgi sér. Afleiðing þessara vinnubragða er sú, að fylgi Iransstjórnar virðist fara vaxandi meðal þjóða múhameðstrúarmanna. Þá bendir flest til, að þetta geti mjög styrkt áhrif og aðstöðu Rússa I þessum heimshluta og jafnvel fært þeim íran á silfurfati. Vissulega ber að gera allt, sem skynsamlegt er, til að reyna að frelsa bandarisku gislana. Vænleg- asta leiðin til þess er að vinna þeim málstað sem mesta og viðtækasta samúð og beita íransstjórn þrýstingi á þann hátt. Sllk vinnubrögð geta kostað þolinmæði og tima, en þau ein em vænleg til far- sællar og friðsamlegrar lausnar. Þ.Þ. MANUDAG og þri&judag i siðastl. viku héldu utanrikisráð- herrar Efnahagsbandalagsins fund i Luxemborg til að ræða um þá kröfu Carters forseta, að riki Efnahagsbandalagsins gripi til hliðstæðra þvingunar- aðgerða til að knýja fram frels- un bandarisku gislanna i Teher- an og Carter hafði boðað af hálfu Bandarikjanna. Af hálfu Bandarikjamanna hafði verið gefið i skyn, að það gæti haft al- varleg áhrif á samstarfið innan Atlantshafsbandalagsins, ef að- gerðir Carters fengju ekki já- kvæðan stuðning. Ráðstafanir þær, sem Carter hafði gripið til eða boðað voru þriþættar. 1 fyrsta lagi var stjórnmálasambandinu við Iran slitið. I öðru lagi var lagt bann á öll vöruskipti við tran, að undanskildum matvælum og sjúkravörum. t þriðja lagi var gefið til kynna, að siðar yrði gripið til hernaðarlegra að- gerða, ef viðskiptabannið bæri ekki árangur. Látið hefur verið i veðri vaka, að hernaðarlegar aðgerðir gætu hafizt upp úr miðjum maimánuði. Það kom fram á fundinum i Luxemborg, að þessar ráðstaf- anir Carters væru umdeilanleg- ar og full andstaða rikti gegn þvi, að gripið væri til hernaðar- legra aðgerða. Þær gætu leitt til ófyrirsjáanlegra afleiðinga. Liklegt væri, að þær myndu þrýsta rikjum múhameðstrúar- manna saman gegn vestrænum þjóðum. Þær- gætu einnig oröið Rússum til ómetanlegs ávinn- ings. Hæglega gæti svo farið, aö þær leiddu til heimsstyrjaldar, þótt allir vildu helzt forðast það. SAMKVÆMT frásögnum frétta- skýrenda, sem fylgjast vel með þessum málum, var sú skoðun rikjandi á fundinum, að nauð- synlegt væri vegna samstarfs- ins innan Atlantshafsbanda- lagsins að koma eins mikið til móts við Carter og hægt væri. M.a. bæri að reyna á þann hátt að koma i veg fyrir hernaðar- legar aðgerðir af hálfu Banda- rikjanna en allir ráðherrarnir munu hafa veriðþeim mótfallnir. Niðurstaða fundarins var sú^ að fyrir 17. mai yrði aflað heim- ilda þjóðþinga aðildarrikja Efnahagsbandalagsins til að setja viðskiptabann á tran, en matvæli og sjúkravörur yrðu þó undanþegnar banninu. Bannið skyldi ákveðið i samræmi við tillögu þá, sem mikill meirihluti fulltrúa i öryggisráði Samein- uðu þjóðanna hafði lýst fylgi við á fundi þess 10. janúar siðastl., Carrington lávarður er talinn hafa ráðið mestu um ályktun Luxem- borgarfundarins. en samþykkt hennar strandaði á neitunarvaldi Sovétrikjanna. Miðað var við dagsetninguna 17. mai af tveimur ástæðum. Lokaþáttur þingkosninganna i tran fer fram 9. mai, en af hálfu íransstjórnar hefur verið lýst yfir þvi, að þingið verði látið á- kveða endanlega, hvernig mál gislanna skuli leitt til lykta. Hinn 17. mai halda utanrikis- ráðherrar Efnahagsbandalags- ins aftur fund. Hafi ekkert gerzt i máli gislanna fyrir þann fund, er honum ætlað að taka ákvörð- un um, að viðskiptabann komi til framkvæmda. Engin ákvörðun var tekin um það á þessum fundi, hvort stjórnmálasambandinu við tran skyldi slitið, en hins vegar á- kveðið að sendiráðsmönnum þar yrði fækkað og einnig yrði tran látið fækka sendiráðs- mönnum sinum i aðildarrikjum Efnahagsbandalagsins. Akveðið var að senda sendi- herra rikjanna i Teheran þang- Saburo Oklta utanrtkisráðherra Japana var I Luxemborg og fylgd- ist með utanrlkisráðherrafundinum þar. Hér sést hann ræöa við Hans Dietrich Genscher utanrtkisráðherra Vestur-Þýzkalands. að aftur, en þeir höfðu verið kvaddir heim til skrafs og ráða- gerða. Ákvörðun þessi var byggð á þvi, að sendiherrarnir myndu skýra transstjórn nánar frá viðhorfi rikja Efnahags- bandalagsins. Enginn stuðningur var látinn i ljós við hernaðarlegar aðgerðir. Hins vegar mun hafa verið á- kveðið að vara við þeim. Jafn- framt hafi áherzla verið lögð á það, að Bandarikjastjórn gripi ekki til einhliða aðgerða, án vit- undar rikisstjórna Efnahags- bandalagslandanna. Samþykkt var að skora á önn- ur riki að gripa til hliðstæðra viðskiptaþvingana og Efna- hagsbandalagsrikin, ef gislarn- ir yrðu ekki látnir lausir. ÞVI mun fara fjarri, að Carter hafi verið að öllu leyti ánægður með þessa afstöðu Luxemborg- arfundarins. Hann fékk aöeins nokkurn hluta þess, sem hann bað um. Af hálfu hans var þetta þó látið gott heita að sinni. Það hefur hins vegar komið fram, að flestar eða allar rikis- stjórnir Efnahagsbandalags- rikjanna telja sig hafa gengið eins langt og framast var hægt og raunar hafi þær gert þetta nauðugarvegna sambúðarinnar við Bandarikin. Mjög hæpið sé, að þessar ráöstafanir stuðli að frelsun gislanna, heldur geti þær haft öfug áhrif. Hættan sé sú, að samúð múhameðstrúar- manna með tran aukist og Rússar styrki aðstöðu sina i þessum hluta heims. Athyglisvert er, að Asghar Khan, leiðtogi eins helzta stjórnarandstöðuflokksins i Pakistan, hefur hvatt til að tekið verði upp samstarf við stjórnina i Afganistan og hætt öllum stuðningi við uppreisnarmenn þar. Kona og dóttir Bhuttos eru sagðar á sama máli. Zia ein- ræðisherra hefur lýst yfir þvi, að Pakistan muni styðja tran, ef reynt verði að beita tran hern- aðarlegum þvingunum. Þetta gefur glöggt til kynna, hvernig viðhorfið er i löndum múham- eðstrúarmanna.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.