Tíminn - 02.07.1980, Síða 4

Tíminn - 02.07.1980, Síða 4
4 MiOvikudagur 2. júli 1980. Stein- runnin eftir lokalögin á tónleik- unum Hér sjáum við Silvie Vartan eina af þekktari söngkonum Frakklands. Hún hefur nýlega sagt í viðtali, að þá daga, sem hún syngi opinberlega sé hún svo taugaóstyrk, að hún geti ekki lyft litla fingri allan daginn, og eftir síðasta lag er hún eins og steinrunnin í margar mínútur. Hún hefur sungið í ein fimmtán ár, byrjaði í rokkinu, þegar hún var aðeins sextán ára. „Þá skildi fólk ekki, hvað við vorum að gera og réðst á okkur á tónleikum, tók hátalara úr sambandi og reyndi að yfirgnæfa okk- ur uppi á sviði. Ég man að á þessum tíma gaf Juliette Greco út þá yfir- lýsingu, að við værum ekkert skyldar í listinni. Síðan hefur margt breytst og ég hef náð til fólksins”. Silvie gengur ekki of vel í hjónabandinu með söngvaranum J ohnny Hollyday, en seg- ist ekki vilja skilja vegna sonarins, Davíðs, sem er 13 ára gamall. Þegar Silvie á frí tekur hún myndir af börnum. „Börn eru óþvinguð og frjálsleg, nokkuð sem mér er ekki alveg eiginlegt". Enginn hefur enn fengið að sjá mynd- irnar hennar Silvie. — A meðfylgjandi mynd líkist Silvie lifandi höggmynd — og svo mun hafa verið ætlun Ijósmyndarans. í spegli tímans bridge krossgáta 3341. .árétt ) Lofar góöu. 6) Æði. 7) Andstæðar áttir. ) Drykkur. 10) Álögur. 11) Nes. 12) Eins. 3) Maður. 15) Sleiktir. ióðrétt ) Sérstæð. 2) Efni. 3) Lyfjaskammtur. 4) 1.5) Glingur. 8) Hallandi. 9) Verkur. 13) 'imi. 14) Hreyfing. Ráöning á gátu No. 3340 ,árétt ) Danmörk. 6) Mór. 7) UV. 9) Fa. 10) elafar. 11) LL. 12) ST. 13) Eið. 15) Rak- ðir. ,óðrétt ) Druslur. 2) NM. 3) Móravía. 4) ör. 5) fvartar. 8) Vel. 9) Fas. 13) Ek. 14) ÐÐ. Tilað kastþröng virki þarf venjulegast - aö gefa vörninni þá slagi sem hún má fá, áður en vélin fer i gang. Norður. S. 652 H. AK3 V/NS T. D942 L. A92 Vestur. S. KG109843 H. 98 T. 3 L. G85 Austur. S. 7 H. DG652 T. 76 L. D10763 Suður. S. AD H. 1074 T. AKG1085 L. K4 Vestur Noröur Austur Suður. 3spaðar pass pass 3grönd pass 4grönd pass 6grönd Vestur spilar út hjartaniunni og suður þarf að fá 12 slagi. Vestur á örugglega spaðakóng og þar sem tæplega er hægt að endaspila hann inná lauf, (ef hann á drottningu þriðju getur hann sett hana undir kónginn) þá verður 12. slagurinn að koma með þvingun. Þar sem vestur verður að passa spaðann og austur hjartað, eins og liklegt er eftir útspilið, getur hvorugur gætt laufsins. Sem sagt tvöföld kastþröng. En til þess að hún virki verður vörnin að fá sinn slag áður. Og hvará að gefa hann? Ekki á hjarta þvi þá er eitt þvingunarspilið farið. Og ekki heldur á lauf af sömu ástæðu. Það verður að gefa spaðaslag og suður tekur þvi útspilið i blindum og spilar spaða á drottningú. Vestur spilar vafalaust hjarta til baka og þá tekur suður á spaðaásinn og alla tigulslagina. í siðasta tigulinn verður vestur að henda laufi og þá er spaðahundi hent i borði. Austur má ekki henda siðasta hjartanu og hendir þvi laufi og laufatvist- urinn i borði verður 12. slagurinn. — Hvernig ætti ég að vita hvar Alútaeyjar eru? Hvað ert þú að skipta þér af þvi sem þér kemur ekki við? — Hvers vegna borðar þú ekki heldur morgun- matinn i rúminu? — Mér væri sama þótt hann fylgist svona vel með timanum ef hann væri ekki svona nærsýnn.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.