Tíminn - 02.07.1980, Síða 9
Miðvikudagur 2. júli 1980.
9
BRÉF FRÁ MÚNCHEN
Dr Sigurður Steinþórsson.
... og drukknir menn slangrandi
um strætin. Hvar skyldi þaö
vera?
ellilaun, sjúkratryggingar, skóla
o.þ.h., svipað og á Islandi. En
þarnaervist lengra gengið: Mjög
margir þeir, sem að austan koma
til Þýskalands, Ameriku, eða
tsrael, svo dæmi séu nefnd, eiga
mjög erfitt með aö finna nýja fót-
festu I lifinu — þeir kunna ekki að
„berjast fyrir lifi sinu”, leita sér
að vinnu, Utvega hUsnæði, og
margir þeirra eru sagðir gerast
óhamingjusamir örvinglunar-
menn.
Þjóðinni
ofaukið
„Dæmið ekki”, sagöi frelsar-
inn, og ekki er að efa, að A-Þjóö-
verjar gera sitt besta, enda er
hinum sist vorkunn að vera betur
staddir svo miklu fé sem I þá var
ausið eftir striðið, meöan A-Þjóö-
verjarvoru mergsognir og marg-
straffaðir af RUssum. Og þætti
okkur ömurlegt yfirbragð yfir
ýmsu þarna eystra i okkar stuttu
heimsókn, þá má lita i eigin
barm. 1 „Menningar- og ferða-
málariti þýskra lækna” (febrUar
1980) birtist myndskreytt grein
eftir hjónin Lemke, sem höfðu
'reist til tslands. Greinin heitir ts-
land, land andstæðnanna, og and-
stæðumar eru einmitt landið
annars vegar, og fólkið og verk
þess hins vegar: „Það er sunnu-
dagur, og samkvæmt ferðaáætl-
uninni til eigin ráðstöfunar.
Reykjavik, hin reyklausa borg...
Og andi borgarinnar, spyr ég
sjálfan mig. Omurleg, niðurnídd
og illa hirt hUsin, skitugir
gluggar, brotnar flöskur á göt-
unum, og drukknir menn slangr-
andi um strætin: Svona er mynd-
in þennan sunnudagsmorgun”. I
A-Berlin sáum við a.m.k. hvorki
óhreina glugga né drukkna menn.
Laun
dyggðarinnar
t vetur var skýrt frá þvi i blöð-
unum, að meðallaun I V-Þýska-
landi séu um 2500 mörk á mánuði
(u.þ.b. 625 þUs. kr.) Laun
prófessora við þýska háskóla eru
u.þ.b. þreföld laun islenskra há-
skdlakennara, en skattar á
meðalfjölskyldu um 25%. Góður
bíll kostar nýr i V-Þýskalandi 3-5
milljónir, flaska af sæmilegu vini
800-1200 kr., viskýflaska 3500-5000
kr. KjUklingur til ofnsteikingar
kostarum 850 kr., kilóið af svina-
kótelettum 2500 kr., mjólkurlítr-
inn 250 kr., og bensinlitrinn 280-
300kr. Hið eina, sem er hér veru-
lega dýrara en á tslandi, er hUsa-
leigan: fyrir 3ja herbergja ibUð er
leigan hér i Munchen, sem að visu
er ein dýrasta borg V-Þýska-
lands, allt að 250 þUs kr. á mán-
uði.
Hér er sem sagt mikil vel-
megun. Eftir striðið var hér
náttUrlega allt i rUst, bæöi mann-
virki og atvinnuvegir, og sigur-
vegararnir höfðu brott með sér
það sem nýtilegt var af vélum og
verksmiðjum. Talsmaður Krupp-
verksmiðjanna I Bochum sagði
okkur, að um 80% þeirra verk-
smiðja hefðu verið ónýtar I striðs-
lok, en Bretar hefðu tekið meö sér
þau 20% sem eftir voru. Siðan
kom Marshall-aöstoðin, og fyrir
það fé keypti Krupp (og vafalaust
margir aðrir) aftur vélar sinar
frá Bretlandi, svo og nýjar vélar.
Fram yfir 1960 var hér geysileg
fátækt: menn höfðu ekki einu
sinni tima til. að iðrast synda
sinna, heldur strituðu nótt sem
dag til að halda tórunni i sér og
sinum. Og landið reis Ur rUstum
með ótrUlegum hraða, þannig að
nU sér þess vart stað, aö hér hafi
verið brak eitt fyrir 35 árum.
Þetta svonefnda efnahags-
undur geta Þjóðverjar fyrst og
fremst þakkað þvi, hve duglegir
þeir eru og kunnáttumiklir verka-
menn. Það frækorn, sem vel-
megunin spratt af, var tækni-
kunnátta þjóðarinnar. Eins og
Japanir þurfa þeir nUorðið að
slytja inn lungann af hráefnum
sinum og orku, og nU sjá menn
fram á það, að allt muni vel
ganga ef ekki verður dregist aftur
Ur tæknilega. En nUtíma tækni er
aöallega rafeindatækni og sjálf-
stýring, eins og áður sagöi.
Ariö 1958 vöknuðu Vesturlanda-
bUar við illan draum, þegar So-
vétmenn sendu á loft fyrsta
gervihnött sinn. Þá gerðu Banda-
rikjamenn stórar byltingar I
skdlakerfi sinu: þeir héldu, að
Kommúnisminn á greinilega bet-
ur við Prússa en aðrar tegundir
Hins upprétta manns.
þeir væru að dragast aftur Ur I al-
mennri menntun og tækni-
kunnáttu. SU bylting tókst mis-
jafnlega, eins og oft vill verða, og
gárur frá þessu umróti bárust til
okkar stranda frá Sviþjóð löngu
seinna.
I kunnum negrasálmi segir, að
guð einn geti bUið til tré, og eins
er þvi farið með kennslu og upp-
eldi: það er ekki hægt aö tvöfalda
afköstin meö bættum aðferðum,
þvi börn, rétt eins og tré, vaxa
bara með sinum eigin hraða.
Samt trUa þvi margir, vafalaust
vegna vísinda- og tæknibyltingar
liðinna áratuga, að meö aukinni
kennslufræði og kennslutækni sé
hægt að ná stórum árangri á
skömmum tima. Betur að satt
væri.
Nýlega var skýrt frá þvi I tima-
ritinu Spiegel, að könnun i Berlin
heföi leitt I ljós, að málakennsla
með nUtima-aðferöum, sn.
„Sprachlabor”, þar sem nem-
endur sitja með heyrnartól á
hausnum og tala við seguiband og
kennara sinn, hafi reynst helm-
ingi áhrifaminni en „gamla að-
ferðin” — málfræðistagl, „glós-
ur” og textaþýðingar. Og séu
hinar fullkomnustu nýjungar
svona slæmar, hvað þá meö
„nýju aðferðirnar” I barna- og
unglingaskólum á tslandi? Mér er
kunnugt um þaö, að börn, sem að
nafninu til hafi stundað dönsku-
nám i 2-3 ár, kunna nákvæmlega
ekki neitt að þeim tima loknum:
þeim var gert að fylla Ut lita-
bækur og skrifa inn orö og orö
hingaö og þangað, og hugmynd-
in er sú, að danskan siist inn i
höfuðið á þeim með dularfullum
hætti „gegnum hUðina”. En
það gerir hUn óvart ekki, og
ég fæ ekki betur séð en hin
nýja aðferð sé hreint tilræöi
við norræna samvinnu, hver svo
sem tilgangurinn kann aö hafa
verið. Um þetta efni skrifaði
Baldur Ingólfsson menntaskóla-
kennari prýðilega hugvekju i
afmælisrit Ólafs Hanssonar I
haust. Sem sýnir það, að þótt ekki
sé unnt að láta tré vaxa helmingi
hraðar en þvi er eiginlegt, þá má
með visindalegum aðferðum
hleypa i það kyrkingi, þannig að
þaö vaxi ekkert, eða meö hálfum
hraða. Og það, þótt sifellt sé verið
að hella yfir það einhverju efna-
glundri með ærnum kostnaði: það
er nefnilega ekki sama hvert
efnið er.
10.6. Sigurður Steinþórsson
Skyldu skólarannsóknarnefndir framtíðarinnar komast aö þeirri ógn-
vekjandi niðurstöðu að börn læra betur af bókum en aö meötaka fróð-
ieik með apparötum á dularfullan hátt gegnum hUðina.
Drukknir mannhatarar fá útrás við að skapa óvinum sinum umhverfi.
ALTERNATORAR
OG STARTARAR
Ford Bronco
Chevrolet
Dodge
Wagoneer
Land/Rover
Toyota
Datsun
og i flestar
gerðir bila.
Verð frá
29.800.-
Póstsendum
Varahluta- og
viðgerðaþj.
BILARAF
Borgartúni 19 - Sími 24700
••••••
«.V
§*•••
•••—
•••*.
#•••*
•••*.
•••«.
#♦•••
•••«.
••«..
•••«.
•••«.
•••.
••*•'
t:::
ts::
Ársalir ’’’*
í Sýningahöllinni hafa á boðstólum einstakt
úrval af hjónarúmum, — yf irleitt meira en 50
mismunandi gerðir og tegundir.
Með hóflegri útborgun (100-150 þús.) og léttum
mánaðarlegum afborgunum, (60-100 þús.) ger-
um við yður þaö auðvelt að eignast gott og fall-
egt rúm.
Litið inn eða hringið.
Landsþjónusta sendir myndalista.
••#•
*••••
*••••
.*•••
*••♦#
*•••#
..*••
.«•••
-*••#
.*••#
.*••#
Ársalir, Sýningahöllinni.
Leikfanga
húsið Sími 14806
SkólavörðustíglO
.....
Símar: 81410 og 81199.
-•*.* • ái .••••••••••••••••••••••••• • ••••••••••••• • ^
0*# i!!•••• 21 ••• • #••••••••••••• • ••••••••• •
Fyrir börnin
Þrihjól Stignir bilar
Góð leikföng á góðu verði
Póstsendum
Brúðuvagnar
Brúðukerrur