Tíminn - 02.07.1980, Síða 11

Tíminn - 02.07.1980, Síða 11
IÞROTTIR 11 Miðvikudagur 2. júli 1980. IÞROTTIR Sigrar Fram Val í kvdld? • leikið í 16-liða úrslitum Bikarkeppninnar í kvöld Fimm leikir verða í kvöld leiknir í 16-liöa úrslitum Bikarkeppni KSI. Stórleik- ur Fram og Vals fer fram á Laugardalsvelli kl. 20.00 og má þar búast við hörku viðureign. Þessi tvö félög eru i efstu sæt- um 1. deildar i dag og Framarar eru Bikarmeistarar. Þar af leiöir aB Framarar veröa örugglega ekkert á þvi aB gefa eftir I kvöld, en Valsmenn hugsa örugglega ekkert hlýlega til Framara þar sem Fram sigraBi Val I leik liB- anna i 1. deildarkeppninni. Opna GR mótið í golfi sem Golfklúbbur Reykja- víkur gengst fyrir hefst um næstu helgi. Er það í þriðja sinn sem mótið fer fram. óhætt er að segja að þetta sé eitt glæsilegasta golfmót sem fer fram ár- lega hérá landi og er þá Is- landsmótið eitt undanskil- ið. Glæsileg verðlaun eru í boði og er ekki f jarri lagi að segja að þriðji hver maður hljóti verðlaun, en reiknað er með 100-150 þátttakendum. Glæsilegustu verBlaunin eru veitt þeim sem fer holu i höggi á 17. braut en þaB er stysta braut vallarins, 130 metrar. Verölaunin fyrir slikt undrahögg eru hvorki meira né minna en bifreiö af „Chrysler Horison” gerö, aö verömæti 6,5 milljónir kr. Er óhætt aö segja aB þetta séu ein- hver veglegustu verölaun sem veitt eru hér á landi árlega fyrir iþróttaafrek. FH-ingar fá Skagamenn i heim- sókn á Kaplakrika og hefst leikur liöanna kl. 19.30. Vestmanna- eyingar leika gegn KR kl. 20.00 I Eyjum og veröur þar örugglega um hörkuviöureign aö ræöa, enda liöiö á svipuöu reki i deildinni. Keflvikingar ættu aö vera ör- uggir i 8-liöa úrslitin þar sem liöiö leikur gegn Gróttu I Keflavik en Grótta leikur I 3. deild. Leikurinn hefst kl. 20.00. Þá leika Vikingur Olafsvik og Þróttur Neskaupstaö á Ólafsvik kl. 20.00 i kvöld og er ógjörningur aö spá fyrir um úrslit I þeim leik. —SK. Fyrirkomulag mótsins er þannig, aö tveir og tveir leika saman. Betra skor þeirra inn- byröis á hverri holu telur. Þátttökugjaldiö er 25 þúsund á mann en stefnt var aö þvi i upp- hafi aö öll verölaun i mótinu væru hærri en þátttökugjaldiö og sum verölauna eru raunar mun verö- mætari en þaö. Af öörum verölaunum en biln- um má nefna: Málverk eftir Baltasar og Gunnar Þorleifsson fyrir holu I höggi á 2. og 6. braut. Herrajakkaföt, golfpoki og hús- búnaöartæki og margt fleira fyrir aö vera næstur holu á 2. 6. og 11. braut. Leiknar veröa alls 36 holur, 18 á laugardag og 13 á sunnudag. í lokin má geta þess aö verndari mótsins er aö þessu sinni Anna Kristjánsdóttir, ekkja Gunnlaugs heitins Einarssonar læknis, sem var fyrsti formaöur Golfklúbbs Reykjavikur. Hún er nú komin hátt á áttræöisaldur en spilar engu aö siöur golf 3-4 sinn- um I viku hverri og gefur yngri stöllum sinum litiö eftir hvaö getu snertir. Hólmbert Friðjónsson þjálfari Fram mun örugglega gera sitt til þess aö tryggja sinum mönnum sigur gegn Val I kvöld. Skýtur Matthias Hailgrlmsson, markhæsti leikmaöur 1. deildar, bikarmeistara Fram i kaf i kvöld? Eyleifur til ÍA Hinn gamalkunni knattspyrnu- maöur, Eyleifur Hafsteinsson sem lék hér á árum áöur meö tA og Islenska landsliöinu hefur veriö ráöinn aöstoöarþjálfari 1A i 1. deild. Eins og fram hefur komiö I fréttum er George Kirby farinn af landi brott og kemur ekki aftur. Höröur Helgason sem veriö hefur aöstoöarmaöur Kirby tekur viö sem aöalþjálfari en Eyleifur veröur honum til aöstoöar og mun þaö áreiöanlega koma sér vel fyrir liö ÍA sem viröist vera aö taka hressilega viö sér þessa dag- ana og er skemmst aö minnast stórsigurs liösins yfir VAL á dög- unum. Bífreið í verðlaun • á opna 6R mótinu i golfi sem hefst um næstu helgi Kýlingar og aftur kýlingar • þegar Breiðablik sigraði Þrótt i 16- liða úrslitum i miklum slagsmálaleik Einhver mesta hnefa- leikakeppni, sem fram hefur farið fór fram á Laugardalsvelli í gær- kvöldi þegar Breiðablik sló Þróttara út úr Bikar- keppni KSI. Breiðablik sigraði 2:1 eftir að staðan hafði verið 1:0 Þrótti í vil. Dómari leiksins, Arnþór Osk- arsson dæmdi þarna örugglega sinn lélegasta leik i langan tima. Hann missti algjörlega tökin á leiknum i siöari hálfleik og leystist leikurinn þá upp i al- gjöra vitleysu. Voru menn þá kýlandi hvern annan I tima og ó- tima og fór svo aö lokum, aö Arnþór bókaöi þrjá leikmenn þá Einar Þórhallsson, Helga Helgason UBK og Harry Hill Þrótti og rak einn út af, Agúst Hauksson, Þrótti. Var þaö rétt hjá Arnþpri en hins vegar átti Helgi Bentsson Breiöablik aö veröa samferöa Agústi i baö þvi rétt áöur en Agúst kýldi Helga kýldi Helgi Agúst. Aöur haföi Helgi kýlt Jóhann Hreiöarsson og lá hann á vellinum hreyfing- arlaus á eftir en jafnaöi sig brátt. Þetta er aöeins litiö dæmi um hvernig leikurinn var. Litiö sem ekkert var reynt aö leika knattspyrnu og átti þaö viö um bæöi liöin. Þaö voru Þróttarar sem skor- uöu fyrsta markið og var þaö Sigurkarl Aöalsteinsson sem þaö geröi rétt fyrir leikhlé. Allt útlit var siöan fyrir aö þetta eina mark myndi nægja þeim til sigurs, en svo fór þó ekki. Blikarnir jöfnuöu á 79. minútu og var Sigurður Grét- arsson þar aö verki eftir aö hafa leikiö á tvo varnarmenn Þróttar I vitateig. Sendi hann knöttinn siöan I netiö meö góöu skoti. Rétt fyrir leikslok skoraöi hann siöan annaö mark sitt og Blik- anna meö firnaföstu skoti úr aukaspyrnu nokkru fyrir utan b- vitateig. Var þaö glæsilegt mark. Blikar stálu þvi sigrinum á siöustu stundu og halda þvi 18- liða úrslitin. Framkoma margra leik- manna I þessum leik var fyrir neöan allar hellur. Viö skulum taka nokkur dæmi. Helgi Bents- son stundaöi þaö á timabili aö lemja menn og kýla og kom siö- an hlæjandi aö varamannabekk sinna manna, greinilega ánægö- ur þegar andstæöingar hans lágu i valnum. Páll ólafsson var sinöldrandi allan leikinn, bæöi út I ^amherja sina og dómar- ann. Hugsaöi hann nær einungis um þaö I leiknum. Þjálfari Þróttar sló samt öllum leik- mönnum viö I lokin þegar Helgi Bentsson lá fyrir utan hliöarlinu mikiö meiddur eftir slæma tæklingu eins Þróttara. Þjálfar- inn Ron Lewin kom þá hlaup- andi meö hvitan klút og sagöi aö Helgi væri búinn aö vera grát- andi allan leikinn. Blikar svör- uöu honum meö ljótu oröbragöi sem ekki er hægt aö hafa eftir hér og sagöi hann siöan viö þá, aö þó hann væri oröinn 60 ára þyröi hann i hvern þeirra sem væri eftir leikinn. Slikur var hitinn I leikmönn- um og forráöamönnum liöanna á meöan á leiknum stóö. Meira aö segja hótaöi hann, þjálfar- inn, undirrituöum málssókn, ef hann birti eitt orö sem hann haföi áöur sagt. Þaö virðist vera vafamál hvort þessi maöur sé hér til þess aö kenna knatt- spyrnu eöa rifa kjaft viö allt og alla og hefur framkoma hans oft áöur vakiö athygli. Viröist svo sem Þróttarar hafi keypt kött- inn I sekknum I þetta sinn og vonandi aö þeir nái sér I betri þjálfara næst þegar aö þvi kem- ur. Tvö heimsmet Tvö heimsmet voru sett á al- þjóölegu frjálsiþróttamóti sem fram fórá Bislet leikvanginum I Osló I gærkvöldi. Það voru tveir Englendingar sem settu metin. Sebastian Coe setti heimsmet i 1000 metra hlaupi er hann hljóp á 2,13,4 min. og landi hans Steve Owett hljóp enska milu á 3,48,8 min. Mjög góöur árangur náðist I fleiri greinum. Bandariski kringlukastarinn Mac Wilkins kastaöi kringlunni 67,06 metra og landi hans Bruno Paueletto varpaði kúlunni 20,24 metra. Þá hljóp Bandaríkjamaöurinn Edmund Moses 400 metra grindarhlaup á 49,10 sek. sem er skammt frá heimsmeti i grein- inni. Stórsigur Vikinga Víkingar áttu ekki i neinum vandræöum meö KA er liöin mættust noröur á Akureyri I 16-liöa úrslitum Bikarkeppni KSl I gærkvöldi. Lokatölur uröu 3:0 eftir aö staöan haföi veriö 0:0 I leikhiéi. Fyrri hálfleikurinn var i einu oröi sagt steindauður og ekkert gerðist. KA-menn héldu þó vel I l.deildarliðiöen sprungu siðan i þeim siðari á meöan að Vik- ingar sprungu út eins og blóma- rósir. Fyrsta markiö kom á 52. minútu leiksins og var þaö Lárus Guömundsson sem þaö gerðimeögóöu skoti fyrir miöju marki frá markteig. Annað markiö skoraöi ómar Torfason og þaö þriöja geröi Karl Heimir Karlsson. Vikingar leika þvi i 8-liða úrslitunum og hafa örugg lega sett stefnuna á Bikarinn en langt er siðan þeir hafa hampaö honum.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.