Tíminn - 17.07.1980, Qupperneq 2
2
Fimmtudagur 17. júli 1980
liUiilALlLi
Félag íslenskra atvinnuflugmanna svarar Flugleiðum:
Fá flugfélög hafa jafn góða
nýtingarmöguleika og Flugleiðir
AM — Félag Isl. atvinnuflug-
manna hefur fariö þess á leit við
blaöíö aö þaö birti eftirfarandi
greinargerö, sem svar viö bréfi
Flugleiöa til fjölmiöla á dög-
unum, þarsem fullyrt var aö nýt-
ing flugliös félagsins væri siöri en
geröist hjá samkeppnisfélögum
og viö greindum frá i fyrri viku.
Fer greinargeröin hér á eftir:
Vegna þeirra leiöu hvata kynn-
ingardeildar Flugleiöa h.f. aö
undanfömu, þar sem ráöist er aö
flugmönnum og öörum flugliöum
félagsins, sér F.I.A. sig tilneytt
aö senda fjölmiölum þessar linur
til aö skýra og leiörétta rangar og
villandi upplýsingar. Flugmenn
F.l.A. hafa margóskaö eftir
gögnum varöandi þá fullyröingu
forstjóra Flugleiöa h.f. og nú siö-
ast kynningardeildar um, aö
vinnutimatakmarkanir islenskra
flugmanna séu meiri en erlendra
starfsbræöra þeirra. Viö þessari
ósk hafa stjórnendur Flugleiöa
ekki oröiö.
F.I.A. hefur undir höndum
samninga flestra evrópskra flug-
mannafélaga, og kemur þar I ljós,
aö fá flugfélög hafa jafngóöa nýt-
ingarmöguleika og Flugleiöir h.f.
En til aö ná góöri nýtingu þarf
verkefni. Þvi veldur okkur furöu
sú stefna Flugleiöa h.f. aö veita
verkefnum til annarra fyrirtækja
á sama tima og flugmenn félags-
ins geta bætt þeim viö sig innan
ramma núgildandi samnings, og
flugvélar félagsins standa
ónotaöar.
Sem sagt, forystusveit Flug-
leiöa h.f. kvartar yfir lélegri nýt-
ingu á sama tima og hún kemur i
veg fyrir aö hægt sé aö nýta flug-
menn betur. Er undarlegt, þótt
flugmenn eigi erfitt meö aö skilja
slikar ráöstafanir og þversagnir?
Vinnutimareglur flugmanna
eru mikilsveröur þáttur I öryggis-
keöju flugsins, þó aö oft veitist
stjórnendum flugfélaga erfitt aö
viöurkenna slikt, þegar fjárhags-
vandi steöjar aö. Vinnuskylda
flugmanna tekur yfir allan sólar-
hringinn alla daga ársins og ekki
er geröur greinarmunur á dag-
Happdrætti Hjartaverndar árið 1980:
25 vinningar að
verðmæti 16.5
millj. kr.
I ellefu ár hefur Hjartavernd
rekiö happdrætti til styrktar
starfsemi sinni. Þessa dagana
er aö hefjast tólfta happdrættis-
áriö en dregiö veröur 12.
september n.k. Aö þessu sinni
eru vinningar margir og góöir
sem áöur, aUs 25 vinningar aö
verömæti 16,5 milljónir króna.
Stærsti vinningurinn er Ford
Fairmont Ghia bifreiö. fjögurra
dyra, sjálfskipt, ljós aö lit meö
Vinyl toppi. Þá er Lancer 1600
Gl. bill annar vinningurinn, en
hann er einn vinsælasti billinn á
markaönum núna og mikiö
seldur hér á landi. Auk þessara
stóru vinninga eru 23 eitt
hundraö þúsund króna vinn-
ingar, vöruúttekt eftir eigin
vali.
A undanförnum árum hefur
happdrættiö rennt drjúgum
stoöum undir rekstur Rann-
sóknarstöövar Hjartaverndar,
en hún er leitar- og rannsóknar-
stöö sem leggur aöaláherslu á
aö finna hjarta- og æöasjúk-
dóma áöur en þeir eru komnir á
hættulegt stig. Hjarta- og æöa-
sjúkdómar eru mannskæöustu
sjúkdómar meö þjóöinni nú á
dögum og er þvi mikil nauösyn
aö finna rætur þeirra og byrj-
unareinkenni. I Rannsóknarstöö
Hjartavemdar hafa veriöfram-
kvæmdar um 55.000 einstakl-
ingsskoöanir þau rúm 12 ár sem
stööin hefur starfaö. Af fjár-
hagsástæöum hefur mjög dregiö
úr starfsemi stöövarinnar siö-
ustuárin. Veröbólgan og rýrnun
peninga hefur lamaö fjárhag
hennar. Þetta er öfugþróun og
þvi er lögö mikil áhersla á aö
happdrættiö skili góöum tekjum
i ár. öllum ber saman um aö
fyrirbyggjandi aögeröir séu
nauösynlegar ef vinna á bug á
hjarta- og æöasjúkdómum.
Þaö er stefna Hjartaverndar.
Nýtt merki a markaðinum
Gullfalleg frönsk /eikföng
INGVAR HELGASON
Vonarlandi v/Sogaveg — Sími 33560
eftir- eöa næturvinnu.
Flugfélag getur á 15 daga fresti
aölagaö vinnutima flugmanna
þeim verkefnum, sem fyrir hendi
eru meö svokallaöri áhafnaskrá,
sem gefin er út til 15 daga i senn
og er tilkynning um vinnu- og fri-
daga.
Fridaga eiga flugmenn 8 i
hverjum mánuöi aö sumri en 9 aö
vetri, og skal þar af vera eitt
helgarfrl (þ.e. laugardagur og
sunnudagur).
Þar sem Flugleiöir geröu
samanburö á orlofi i einni frétta-
tilkynningu sinni, þykir rétt aö
skýra orlofsmál flugmanna
nokkuö nánar. Eftirfarandi tafla
sýnir, hvernig orlofi flugmanna
er háttaö.
Fyrstu 10 árin
14 dagar virkir 2/5 -30/9
20 dagar virkir 1/10-30/4
Samtals 34 virkir dagar
Eftir 10 ár
17 dagar virkir 2/5 -30/9
20 dagar virkir 1/10-30/4
Samtals 37 virkir dagar
Eftir 20 ár
20 dagar virkir 2/5 -30/9
23 dagar virkir 1/10-30/4
Samtals 43 virkir dagar
Samkvæmt orlofslögum eiga
landsmenn rétt á 24 daga orlofi.
Sé hluti þess tekinn utan lögboö-
ins sumarorlofstimabils, sem er
1. mai til 15. sept. (15 dögum
lengra I samningum flugmanna),
er algengt, aö orlofsdögum sé
fjölgaö. Þeir aöilar, sem hafa
vinnuskyldu á lögboönum fridög-
um, s.s. jólum, páskum o.s.frv.,
fá þá daga I formi vetrarleyfis
þ.e. 12 daga á ári. Flugmenn eru i
þeim hópi.
Lágmarks orlofs- og fridaga-
fjöldi er þvi 36 dagar. Þaö er fyrst
eftir 10 ára starf, sem flugmenn
ná þeim lágmarks dagafjölda. I
fréttatilkynningu Flugleiöa hf.
þótti þeim tilhlýöilegt aö taka aö-
eins hagstæöustu töluna, þ.e. 43
dagar, án þess aö gefa frekari
skýringar.
Villandi fréttaflutningur þeirra
Flugleiöamanna er okkur ekki
framandi, en ef þeir trúa sjálfir
sinum villandi og röngu yfirlýs-
ingum, gæti þá ekki veriö þar aö
finna eina af ástæöunum fyrir
þeim ógöngum, sem félagiö er i I
dag?
Óeining flugmannahópanna
hefur veriö ein af eftirlætisupp-
hrópunum forsvarsmanna Flug-
leiöa h.f. Ahugi aö fylgjast meö
þeim vi&-æöum, sem fariö hafa
fram milli flugmannahópanna I
tilraunum þeirra til sátta, hefur
ekki veriö mikill, né heldur fram-
lag þeirra jákvætt, og bera blaöa-
skrif og siöustu deilur flugmanna
og Flugleiöa h.f. þess glöggt vitni.
Hentar þaö ef til vill stjórnendum
Flugleiöa h.f. betur aö viöhalda
óbreyttu ástandi?
Meginástæöan fyrir óeiningu
flugmannahópanna var samein-
ing flugfélaganna. Sú sameining
olli ág reiningi viöar en innan raöa
flugmanna. Þaö ætti stjórn fé-
lagsins aö vera öörum kunnugra.
Þaö er enn sem fyrr skoöun
okkar flugmanna, aö vandi Flug-
leiöa h.f. veröi ekki leystur meö
blaöaskrifum eöa ónákvæmum
fréttatilkynningum i fjölmiölum.
Vonandi finna blaöafulltrúi fé-
lagsins, kynningardeild og aörir
forsvarsmenn, sem hlut eiga aö
máli, sér betri verkefni I framtiö-
inni en aö niöa niöur störf flug-
manna og annars starfsfólks.
Veröugra væri þeim aðilum aö
reyna aö brúa hiö breiöa bil, sem
rikir milli starfsfólks og stjórn-
enda fyrirtækisins.
Til þeirra starfa erum viö
reiöubúnir.
F.h. Féiags isi. atvinnuflug-
manna
Kristján Egiisson, formaöur
íslendingar kjósa sér „fröken forseta”:
Sýnílega ekki
andsnúnir því
óvenjulega
— segir í frétt í Time
JSG — 1 tilefni af þvi aö nú er
loksins búiö aö telja atkvæöin úr
forsetakosningunum, þá birtum
viö hér úrklippu úr nýjasta hefti
vikuritsins Time þar sem sagt er
frá úrslitum kosninganna.
I fréttinni segir m.a. aö Vigdis
Finnbogadóttir hafi löngum veriö
ein af annrikari konum á tslandi,
en hún hafi nú sett endahnút á lit-
rikan feril meö þvi aö setjast I
embætti sem eigi sér alþjóölegan
sess: embætti forseta Islands.
Þá segir að þótt for-
setaembættiö sé aö meginhluta
viöhafnarembætti, þá hafi Finn-
bogadóttir ekki komist i þaö meö
þátttöku I viðhöfnum. Eftir skiln-
aö hafi hún brotiö af sér erfiöar
félagslegar hömlur þegar hún
varö fyrsta konan á Islandi til aö
ættleiöa bam, hún eigi dóttur sem
nú sé sjö ára gömul. Arið 1961 og
aftur áriö 1974 hafi hún ásamt
fleirum verið I forustu fyrir
hreyfingu til aö koma bandarlska
herliöinu brott frá Keflavik, en sú
afstaöa hennar hafi tengt hana
Alþýöubandalaginu, sem sé fylgj-
andi Marxisma en andvigt NATO.
1 kosningabaráttunni hafi hún
dregiö úr þessari afstööu sinni og
sagt: ,,Ég er ekki kommúnisti.
Eg er friðarsinni”. Hún viöur-
kenni nú þörfina fyrir herstööina,
sem hafi eftirlit meö sovéskum
skipum I Noröur Atlantshafi.
Siöan er vikið aö þvi aö for-
sætisráöherrann, Gunnar Thor-
oddsen, hafi ekki veriö yfir sig
hrifinn af timamótasigri Finn-
bogadóttur, enda hafi hann stutt
knattspyrnuhetjuna Albert Guö-
mundsson til embættisins. Guö-
mundsson hafi meö stuöningi sin-
um viö rikisstjórn Thoroddsens
greitt fyrir aö hún yröi mynduö.
Annars hafi Thoroddsen um nóg
aö hugsa I sambandi viö efna-
hagsmál og veröbólgu. Hann
leggi til, aö tvær af drýgstu auö-
lindum eldfjallaeyjunnar, heitt
vatn og jöklar, veröi nýttar til
þess aö liöka um efnahagsvand-
ann og stækka undirstööur hag-
kerfisins. Vatniö yröi flutt út i
tankskipum til upphitunar i borg-
um Noröur-Evrópu, og jökul-
árnar virkjaöar til aö framleiöa
rafmagn sem flutt yröi meö
leiöslum. „Þetta er vissulega
djarfur og óvenjulegur hugsunar-
háttur. En þá verður að hafa I
huga, aö meö þvi aö kjósa fröken
Finnbogadóttur, hefur Island
sýnt aö þaö er ekki andsnúiö hinu
óvenjulega”.