Tíminn - 17.07.1980, Qupperneq 3

Tíminn - 17.07.1980, Qupperneq 3
Fimmtudagur 17. júll 1980 3 Hér má sjá þegar krakkarnir i Grænuborg tóku fyrstu skóflustunguna að nýju Grænuborg við Eiríks götií. Timamynd: G.E Ný Grænuborg rís við Eiríksgötu Kás — t gær tóku þau börnin I leikskólanum Grænuborg við Miklatorg fyrstu skóflustunguna að nýrri Grænuborg, sem risa mun við Eiriksgötu, suð-austan við Listasafn Einars Jónssonar. Það er barnavinafélagið Sumar- gjöf sem stendur fyrir bygging- unni, og mun það kappkosta að hraða byggingunni eins og kostur er. Gamla Grænuborg er nú orðin tæplega fimmtiu ára gömul, og hún er fyrsta heimilið sem gagn- gert er byggt i þeim tilgangi að þar yrði starfrækt dagvistunar- heimili. Nýja Grænuborg veröur 3ja deilda dagvistarheimili, fyrir börn á aldrinum 2-6 ára. Þegar i upphafi ræddi stjórn Sumargjaf- ar um að fara nýjar leiðir og gera tilraun með að blanda saman i hópa börnum sem dvelja allan daginn og börnum með sveigjan- legan leikskólatima. Er áætlað að samtimis geti dvalið á heimilinu 20 dagheimilisbörn, 14 börn með sveigjanlegan tima, og 20 leik- skólabörn, er dvelji 4 klukku- stundir, eins og vanalegast er, eða alls 54 börn. Húsið er 441 fermetri að flatar- máli, og 1800 fermetrar að stærö. Aætlaður kostnaður við bygging- una er 235 millj. kr. Ferðasjóður Ibúa I Hátúni 12: Dauðaslysið I Sundahöfn: Verið að hífa krana- bíl þegar bóman slitnaði AM — Eins og skýrt var frá i minni kranans, en hin hélt biln- blaðinu i gær varö enn eitt dauða- um, sem verið var að hifa, enn á slysið í fyrradag, þegar maður lofti. Maðurinn, tvitugur piltur, varð undir bómu við uppskipun i stóð úti við lyftara sem hann Sundahöfn. stjórnaði og fór bóma kranans i Samkvæmt upplýsingum sem manninn þegarhún féll. Var hann blaðiö hefur aflað sér var verið að þegar fluttur i sjúkrahús, en lést hifa 38 tonna kranabil frá borði i skömmu eftir að þangaö kom. Dettifossi, þegar slysið varð. Hinn látni hét Jón Trausti Voru tveir kranar notaðir við Traustason, til heimilis að verkiö og slitnaði taug i bómu Kleppsvegi 54, fæddur 26.11. 1960. Landris við Leirhnjúk Leitar stuðnings landsmanna FRI — Eldgosið i Gjástykki hefur nú staðið i um 7 daga og litil breyting hefur orðið á þvi siðustu daga. Að sögn Karls Grönvold jarðfræðings á skjálftavaktinni þá hefur land nú byrjað að risa við Leirhnjúk en það er i litlum mæli. Að sögn Karls þá er litil breyt- ing á gosinu frá degi til dags en til lengri tima litið þá fer það minnk- andi. Ferðasjóður ibúa Hátúni 12 Revkiavik leitar nú til lands- manna um stuðning. Sjóðurinn var stofnaður af Sjálfsbjörg, félagi fatlaðra á Isafirði með 75.500 kr framlagi i þeim tilgangi að styrkja ibúa Sjálfsbjargar- hússins til ferðalaga. Sjóðurinn hefur engar aðrar tekjur en gjafir og áheit. A siðasta ári bárust eftirtalin framlög i sjóðinn. Isafjarðarkaupstaður 120.000 Bolungarvikurbær 115.000 Súðavikurbær 115.000 Þingeyrarhreppur 115.000 Tálknafjarðarhreppur 115.000 Patrekshreppur 115.000 Hólmavikurhreppur 60.000 Suðureyrarhreppur 50.000 SjálfsbjörgSuðurnesjum 100.000 Flateyrarhreppur 25.000 Sjálfsbjörg Neskaupstað 60.000 Sjálfsbjörg Akureyri 10.000 J. og S. Hátúni 12 Rvik. 11.000 Sjóðurinn hefur veitt' til þessa 28 einstaklingum styrk samtals rúmlega ein milljón króna. Ibúar hússins eru milli 90 og 100 þar af eru um 40, sem ein- göngu hafa vasapeninga frá Tryggingastofnun rikisins, en þeir eru nú kr. 23.000 á mánuði og flestir hinna hafa aðeins örorku- lifeyrir og tekjutryggingu. Það er þvi ljóst að ibúarnir hafa ekki fjárráö til ferðalaga. Efling ferðasjóðsins er þvi nauðsyn. Ibúar Sjálfsbjargarhússins þakka öllum sem hingað til hafa sent sjóönum gjafir, og vona að svo höfðinglegt framhald verði á gjöfum til hans sem hingaö til. Landnemamót í Viðey - „Brennuvargar” og babú liðiö kljást í næturleiknum Um næstu helgi, 18.-20. júli nk., verður haldið hið árlega skáta- mót Skátafélagsins Landnema i Viðey. Farið verður frá Sunda- höfn á föstudagskvöld, og komið heim á sama stað siðdegis á sunnudag. Hafsteinn Sveinsson sér um bátsferðir á Skúlaskeiði að venju. Sérstaklega hefur verið vandað til dagskrár þessa móts, og hafa Landnemar fengið til liðs við sig úrval skáta, sem sérhæft hafa sig i hinum einstöku skátagreinum. Rammi mótsins er „Eldurinn” og miðast uppbygging dagskrár við þá staðreynd. Aðal dagskrárliður mótsins, sem standa mun allan laugardag- inn heitir „Eldmóður”. A laugar- dagskvöld verður næturleikur þar sem „brennuvargar” og „babú-liðið” kljást um það hvor ræður upptökum eða niðurlögum varðeldsins, sem hefst strax og þessum dagskrárlið er lokið. A sunnudagsmorgun verður Viðeyj- arrallý. Allir skátar, hvaðanæva af landinu, eru velkomnir. Sérstak- ar búðir veröa fyrir dróttskáta, svo og eldri skáta og fjölskyldur þeirra Gamlir Landnemar fjöl- mennið. British Airways í deilum við starfslið sitt, eins og Flugleiðir íslenskir flugmenn telja margt mega af þessu læra AM — Deilur á milli starfsliös flugfélaga og stjórnar, eru ekkert einsdæmi á islandi og ný- lega rákumst viðhér I blaðinu á ritstjórnargrein úr breska blað- inu „FLIGHT - International, þar sem fjallaö er um vanda British Airway, sem svipar mikið tíl vanda Flugleiða. Birt- um við aöalefni greinarinnar hér á eftir. úMikiö er sótt að British Air- ways um þessar mundir, eins og komið hefur fram i blöðum, og tekjur af rekstrinum 1979-80 eru taldar I minnsta lagi, en það kemur I ljós þegar ársskýrsla verður birt. Óánægt starfslið hefur ekkert til sparað að gera sjónarmið sln kunn umheimin- um. Almenn óánægja með þjón- ustu félagsins kemur fram I lesendabréfum og i greinum sérfróöra manna. Til þess að kóróna allt saman hefur stjórn félagsins svo fært gagnrýnend- um höfuð sitt á silfurfati, með þeirri furðulegu ákvörðun að strika orðið „Airways” út af vélum sinum, svo eftir stendur aðeins „British”. Þessu uppá- tæki hefur verið tekið með van- trú og aðhlátri meðal al- mennings og spyrja menn hvað orðið hafi af BA. Þó skyldi munað aö félagið strlðir viö sömu efnahagsöröug- leika og allir aörir og það að félagið skuli skrimta, þegar stórtap er hjá stærstu amerisku félögunum er afrek út af fyrir sig. En hvað mun veröa 1980-81? Aukning farþegafjölda er hæg og eldsneytiskostnaöur er gifur- legur. En hvað sem liður óá- nægjuröddum innan félagsins, þarf stjórn þess á ýtrasta stuön- ingi starfsliösins að halda á svo erfiðum tfmum. Átta árum eftir sameiningu BEA og BOAC er nú öflugur áróður uppi fyrir þvi að „hjónabandið” veröi leyst upp. Þetta er vlsbending um að stjórn félagsins hafi mistekist að fá starfsliðið til samvinnu við sig. 1 stað þess aö leigja leynilög- reglumenn og stofnstetja glæparannsóknadeildir” til þess að komast aö hvar leyndarmál félagsins „leka út” (eins og talið er að gerist) ætti félags- stjórnin fremur að leggja eyru að gagnrýninni, — þvl starfs- liðið sem I eldlinunni stendur þekkir vandann betur enn nokkrir aörir. Við teljum aö aðalstjórnin geri sitt besta til þess aö halda félaginu gangandi á erfiðum timum, en teljum að það verk yrði auöveldara, ef starfsliðiö fengist til að vinna með stjórninni, en ekki gegn henni. Þa má ekki gleyma hlut stjórnvalda I erfiðleikum BA. Akvörðunin um aö stofna BA úr tveimur félögum var gerð I of miklum flýti. Hlutirnir, sem rlkisstjórnin hefur gefiö út til þess að koma BA á kjöl, seljast ekki, fyrr en félagið er orðiö að ábatasömu fyrirtæki. Of mikil áhersla hefur verið lögð á aö gera fyrirtækið aröbært á skömmum tima, i stað þess aö styrkja langtlmagrundvöll þess. Nú er okkur sagt af verslunar- ráðherra, Norman Tebbit, aö þegar skuldabréfin eru seld einhverntíma I framtlöinni (ríkið mun eiga meirihluta þeirra), ætli rikiö ekki aö hafa neina hönd I bagga með þvi hverjir veröi útnefndir for- stjórar. Eru þetta rétttætanleg vinnubrögö ábyrgra fulltrúa al- mennings og rikishlutafjár hans?” Viö ræddum efni greinar „FLIGHT” við forystumenn flugmanna hér á landi og voru þeir efni hennar sammála. Töldu þeir þaö tlðkast að yfir- menn rekstrardeilda erlendra flugfélaga ættu fundi með starfsliði minnst mánaöarlega. Slik samstarfsnefnd væri að vísu til hérlendis, en kæmi ekki saman, fyrr en allt er komið I óefni.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.