Tíminn - 17.07.1980, Blaðsíða 6
6
lillllll-1.lt1!
Fimmtudagur 17. jiill 1980
Otgefandi Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson, Jón Helgason og Jón Sigurósson. Rltstjórnarfull-
trúl: Oddur Ólafsson. Fréttastjóri: Eirfkur S. Eirfksson. Aug-
lýsingastjóri: Steingrfmur Gfslason.
Ritstjórnarskrifstofur, f ramkvæmdastjórn og auglýslngar
Sfóumúla 15. Sfmi 86300. — Kvöldsfmar blaöamanna: 86562,
86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Vérö f lausasölu kr. 25Ó
Askriftargjaldkr. 5000Ú mánuöi. i ____________Blaöaprent. j
Þórarínn Þórarínsson
Erlent yfirlit
Borgarstj órar Araba
á Vesturbakkanum
Hótanir Geirs
Hallgrímssonar
Svo er nú komið, að Morgunblaðið viðurkennir,
að alvarlegur ágreiningur riki innan Sjálfstæðis-
flokksins. Forustugrein þess i gær var helguð þess-
um ágreiningi. Tilefnið var ræða, sem Gieir
Hallgrimsson hélt á fundi Sjálfstæðisflokksmanna i
Bolungarvik og Mbl. birti i fyrradag.
Þessi ræða verður ekki skilin öðru visi en að það
sé takmark Geirs Hallgrimssonar að beygja þá
Sjálfstæðisflokksmenn, sem styðja rikisstjórnina, á
bak aftur en reka þá ella úr flokknum.
í ræðunni veittist Geir Hallgrimsson hatramm-
legar gegn rikisstjóminni og þeim Sjálfstæðis-
flokksmönnum, sem styðja hana, en hann hefur
nokkru sinni áður gert. Hann komst m.a. að orði á
þennan hátt:
„Málefnasamningur og störf núverandi rik-
isstjórnar er fjarlægari stefnu Sjálfstæðismanna og
hefur komið málefnum þjóðarinnar jafnvel i meir
óefni en dæmi eru til um fyrri vinstri stjómir. Það
er þvi i senn þjóðarnauðsyn og flokksnauðsyn að
breyting verði á.”
Hér er lýst yfir fullu striði við þá Sjálfstæðis-
flokksmenn, sem styðja rikisstjórnina, eins greini-
lega og verða má. Milli linanna skin það ótvirætt, að
þeim er hótað brottrekstri úr Sjálfstæðisflokknum,
ef þeir hætta ekki þátttöku i rikisstjórninni og
stuðningi við hana.
Til þess að draga nokkuð úr þessari augljósu
brottrekstrarhótun, minnist Geir Hallgrimsson á
það á öðrum stað i ræðunni, að skapa verði „skilyrði
innan Sjálfstæðisflokksins til þess að fylkja öllum
Sjálfstæðismönnum saman til sátta og samkomu-
lags.”
Hver trúir þvi, að þetta sé meining Geirs
Hallgrimssonar, þegar hann á sama tima krefst
þess af þeim Sjálfstæðismönnum, sem styðja rik-
isstjómina, að annað hvort láti þeir af þeirri sann-
færingusinni, að þeir séu að gera rétt með stjómar-
þátttökunni f ellegar eigi þeir brottrekstur úr
flokknum yfir höfði sér.
öll ræða Geirs ber þess óræk merki, að hann er
fullur af beiskju og persónulegri óvild i garð þeirra
Sjálfstæðisflokksmanna, sem standa að rikisstjórn-
inni og styðja hana.
Málefnaleg rök færir Geir ekki fyrir afstöðu sinni
heldur sleggjudóma. Hann getur heldur ekki bent á
möguleika til stjórnarmyndunar, ef núverandi rik-
isstjóm yrði felld. Aðstaða stjórnarinnar er vissu-
lega erfið, en helzt eru þó bundnar við hana þær
vonir, að hægt verði að halda i horfinu og hefjast
handa um að komast úr örðugleikum verðbólg-
unnar.
Til þess að svo verði, þarf rikisstjómin bæði nokk-
um tima og starfsfrið. Sliks vill Geir Hallgrimsson
bersýnilega ekki unna henni.
Það er vel skiljanlegt, að ýmsir Sjálfstæðis-
flokksmenn séu nú hugsandi um framtið flokks
sins. Raunar geta andstæðingar flokksins verið það
einnig, þvi að nóg er sundrungin fyrir, þótt ekki !
bætist við klofningur stærsta stjórnmálaflokksins.
Það, sem Sjálfstæðisflokkurinn þarf nú á að
halda, er þolinmæði forustunnar og eindreginn vilji
til að leita sátta. Slikt er ekki að finna i ræðu Geirs
Hallgrimssonar. Þar stjómar persónuleg óvild
klofningshótunum. Vissulega er það ekki gæfu-
merki fyrir Sjálfstæðisflokidnn.
Þ.Þ.
Semja þeir um framtíðarstjórn þar?
örvarnar benda á þær borgfr, þar sem arabiskir borgar-
stjórar hafa látiö mest aö sér kveöa
VIÐRÆÐUR milli Israels og
Egyptalands um framtiöar-
stjórn Vesturbakkans svo-
nefnda, eru hafnar aö nýju , en
Egyptar hættu þeim I mai-
mánuöi til aö mótmæla fyrir-
ætlunum Israelsstjórnar um aö
innlima alla Jerúsalemborg i
Israel. Raunar átti þessum viö-
ræöum aö vera lokiö i mai-
mánuöi, ef Camp David-sam-
komulaginu heföi veriö fylgt.
Enn hefur ekki þokaö neitt til
samkomulags i hinum nýju viö-
ræöum. Samkvæmt Camp
David-samkomulaginu átti aö
semja um sjálfstjórn til handa
ibúum á Vesturbakkanum og
Gazasvæöinu, en tsraelsmenn
og Egyptar túlka þetta ákvæöi á
mismunandi hátt. Engar horfur
viröast á aö samkomulag náist i
bráö.
En þótt þessar viöræöur hafi
reynzt árangurslausar, hafa
þær þegar boriö árangur á þann
hátt, aö þær hafa vakiö sjálf-
stæöishreyfingu meöal Araba á
Vesturbakkanum. Aöur bar litiö
á slikri hreyfingu þar, og engir
gáfu sig þar fram til forustu. Nú
er þetta breytt.
Arabar hafa fengiö aö tilnefna
borgarstjóra I helztu borgum á
Vesturbakkanum. Fyrst létu
borgarstjórarnir sig ekki
stjórnmál verulega varöa, en
eftir aö aukiö umtal hófst um
sjálfstjórn á Vesturbakkanum,
hafa þeir oröiö vissir talsmenn
ibúanna þar i sjálfstæöismálum
þeirra. An teljandi undantekn-
inga hafa þeir hafnaö heima-
stjórn, en lýst fylgi viö hug-
myndir um stofnun rikis, sem
gæti oröiö I einhverjum tengsl-
um viö Jórdaniu.
ÞETTA hefur oröiö til þess, aö
ísraelsmennhafa veitt arabisku
borj>arstjórunum auknar
gætur og aöhald. I fyrra ætluöu
Israelsmenn aö reku borgar-
stjórann i Nablus, Bassam
Shaka, I útlegö, en þaö sætti svo
miklum mótmælum erlendis
m.a. frá öryggisráöi og alls-
herjarþingi Sameinuöu þjóö-
anna, aö stjórnin hætti viö þaö.
Nú nýlega haföi ísraelsstjórn
skjótari handbrögö, hún flutti
tvo borgarstjóra i útlegö, þá
Fahd Kawasmeh i Hebron og
Muhammad Milhem i Holhul.
En þaö er ekki aöeins Israels-
stjórn, sem hefur beint spjótum
sinum gegn arabisku borgar-
stjórunum. Ofgahópar I rööum
Israelsmanna hafa ekki siöur
gert þaö. Þann 2. júni siöastl.
voru geröar tilraunir til aö ráöa
þrjá þeirra af dögum meö þvi aö
koma fyrir sprengjum i bifreiö-
um þeirra.
Tveir þeirra meiddust illa.
Annar þeirra, Bassam Shaka,
sem áöur er nefndur, missti
báöa fætur. Karim Khalaf,
borgarstjóri i Ramallah, missti
annan fótinn. Sá þriöji slapp.
Þessi atburöur hefur oröiö til
þess aö beina vaxandi athygli aö
arabisku borgarstjórunum á
Vesturbakkanum. Þaö þykir nú
ekki útilokaö a ö þeir eigi eftir aö
taka þátt i viöræöum um fram-
tiö Vesturbakkans, en hingaö til
hefur veriö taliö, aö ibúarnir
þar heföu engum fulltrúum á aö
skipa til slikra viöræöna, þar
sem þeim hefur ekki veriö leyft
aö hafa nein pólitisk samtök.
Fyrir stuttu, eöa 8. þ.m., kom
Bassam Shaka heim til Nablus,
en hann haföi veriö á sjúkrahúsi
I Jórdaniu. Þótt ísraelsmenn
reyndu aö sporna gegn þvi, var
Shaka tekiö sem þjóöhöföingja,
er hann kom til Nablus. Mann-
fjöldinn lét óspart i ljós fylgi sitt
viö sjálfstætt riki á Vesturbakk-
anum. Shaka hélt stutta hvatn-
ingaræöu. Fylgismenn hans
báru hann um göturnar og var
hann ákaft hylltur. Siöan átti
hann viötöl viö sjónvarpsmenn.
Þaö er ætlun Shaka aö sinna
borgarstjórastörfum I nokkrar
vikur, en fara siöan til Bret-
lands og Frakklands, en honum
hefur veriö boöiö til þessara
landa. I feröinni ætlar hann aö
fá sér gervifætur.
Karim Khalaf, borgarstjóri i
Ramallah, sem missti annan
fótinn, hefur dvalizt siöan i
Bandarikjunum, en hyggst
brátt taka viö borgarstjóra-
störfum á ný.
Allt bendir til, aö i náinni
framtiö muni vaxandi athygli
beinast aö arablsku borgar-
stjórunum á Vesturbakkanum.