Fréttablaðið - 30.05.2007, Side 11

Fréttablaðið - 30.05.2007, Side 11
 Prentsmiðjan Gutenberg og Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum við Háskóla Íslands hafa gert með sér samkomulag um samstarf til ársins 2011. Gutenberg mun gerast einn af bakhjörlum stofnunarinnar og verða henni innan handar með hönnun og framleiðslu prent- gripa. Unnið er markvisst að áform- um um að koma á fót alþjóðlegri þekkingarmiðstöð tungumála á Íslandi. Gutenberg vill með styrk sínum veita þessu lið og jafn- framt stuðla að aukinni útgáfu á vegum stofnunarinnar. Stofnun Vigdís- ar fær stuðning Karlmaður á fertugs- aldri hefur verið ákærður fyrir líkamsárás fyrir að hafa fingur- brotið mann á fimmtugsaldri í átökum þeirra á milli í Reykjavík í janúar 2005. Meintur árásar- maður neitar sök. Ákærða er gefið að sök að hafa, í átökunum miðjum, hangið á vinstri handlegg mannsins með þeim afleiðingum að hann hlaut afrifubrot handarbaksmegin á ystu kjúku litlafingurs. Sá sem fingurbrotnaði krefst rúmlega tveggja milljóna króna í skaðabætur frá þeim ákærða. Ákæran var þingfest í Héraðs- dómi Reykjavíkur. Hékk á manni og braut fingur Ungir jafnaðar- menn í Hafnarfirði skora á Einar K. Guðfinnsson landbúnaðarráð- herra að afnema tolla á landbún- aðarvörum. Þeir vilja einnig hefja undirbúning að inngöngu Íslands í ESB og hafna hugmynd- um um einkarekstur í grunnstoð- um heilbrigðiskerfisins. Þetta er meðal þeirra ályktana sem þeir sendu frá sér í gær. „Ályktunin um landbúnaðartoll- ana byggist á því að láta landbún- aðinn virka eins og hver annar atvinnuvegur hérna á Íslandi,“ segir Þórður Sveinsson formaður. „Þetta er mikið hagsmunamál fyrir íslenska neytendur.“ Vilja ekki land- búnaðartolla Ríkiskaup eru nú með húsnæði til sölu þar sem um árabil var starfrækt einangrunar- stöð fyrir gæludýr. Rekstur stöðvarinnar hefur verið hætt og er nú samsvarandi rekstur í höndum einkaaðila í Höfnum á Reykjanesi. Um gæludýrastöðina í Hrísey fóru fjölmörg dýr sem Íslending- ar fluttu með sér heim frá útlöndum og þurftu að vera í sóttkví í tiltekinn tíma svo tryggt væri að þau bæru ekki með sér sjúkdóma inn í landið. Húsið ber nafnið Kríunes 1 og er alls 135 fermetrar. Það er byggt á einni hæð úr steinsteypu og timbri. Tilboð óskast í sóttkví í Hrísey Anstein Gjengedal, lögreglustjóri í Osló, varð fyrir því að vasaþjófur nappaði veskinu frá honum í síðustu viku, einmitt í þann mund sem lögregl- an í Osló hugðist blása til herferðar gegn vasaþjófnaði. Gjengedal var staddur í lestinni frá Osló til flugvallarins þegar hann lenti í mannþröng. Stuttu síðar áttaði hann sig á því að veskið væri horfið. „Ég var ekki með mikið fé á mér, en þetta var samt ekki mjög skemmtilegt,“ sagði hann. Síðar í vikunni tilkynnti aðstoðarmaður hans að sumarher- ferð lögreglunnar gegn vasaþjóf- um væri hafin. Veski lögreglu- stjórans stolið

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.