Fréttablaðið - 02.06.2007, Blaðsíða 36
Krumma Jónsdóttir hefur búið
í París frá árinu 1995. Síðustu
átta árin hefur hún unnið hjá
Intercontinental-hótelkeðjunni,
lengst af á Intercontinental
Paris le Grand.
Krumma kláraði stúdentinn árið
1994 og ári seinna fór hún til Par-
ísar með vinkonu sinni. Ætlun-
in var að ferðast um Evrópu en
það breyttist þegar vinkonan fékk
vinnu á skemmtiferðaskipi. „Ég
ákvað því að sækja um vinnu hjá
Disney en var hent út því ég tal-
aði ekki nógu mikla frönsku og gat
ekki þetta og gat ekki hitt. Þrjósk
og frek eins og ég er fór ég aftur
viku seinna og sagði í viðtalinu
að ég elskaði Mikka mús og að
ég hefði lesið öll Andrésblöðin og
daginn eftir var ég í vinnu,“ segir
Krumma og hlær.
Starf Krummu hjá Disney fólst
í því að telja fólk niður í leiktæki.
Eftir að nokkurra mánaða samn-
ingstíma hennar var lokið var
henni boðið í eins konar hæfnis-
próf sem haldið var til að athuga
hvort starfsfólkið væri á réttri
hillu. „Út úr því kom að ég gæti
verið góð í móttöku á hóteli eða
mjög góð Lísa í Undralandi,“ segir
Krumma og hlær. „Mér fannst
Lísa spennandi en þegar ég fór
að hugsa málið ákvað ég samt að
vera skynsöm og fór í hótelmót-
töku. Þannig að ég kynntist hótel-
starfinu í Disney og komst á rétt-
an stað. Síðan þá hef ég skipt um
starf á árs til átján mánaða fresti
en alltaf innan hótelbransans.“
Krumma byrjaði að vinna á
Grand hóteli í mars 1999 og er því
búin að vera í átta ár hjá sama fyr-
irtæki. „Ég byrjaði þá sem bókun-
ardama en sex mánuðum seinna
fékk ég stöðu sem aðstoðaryfir-
maður í bókunardeild. Ég fór svo
að vinna á öðru Intercontinental
hóteli í París sem yfirmaður bók-
unardeildar og síðan er ég búin
að flakka svolítið á milli og gegna
ýmsum stöðum. Í dag er ég sölu-
stjóri fyrir hópa og ráðstefnu-
hald,“ segir hún.
Krumma segir að hópurinn sem
hún vinni með sé mjög góður og
geri eiginlega allt sem þarf að
gera nema að búa til matinn. „Ég
segi stundum að ég sé eins og
bóndi sem er með veiðimenn sem
hann sendir út. Ég þarf ekki að
ferðast því ég er með sölumenn
sem gera það og kynna hótelið.
Við berjumst um viðskiptavinina
við önnur hótel, ekki bara í París,
og ég er með sölumenn í Englandi,
Ameríku og Austurlöndum. Svo er
ég með hóp af skipuleggjendum
sem vinnur með viðskiptavinun-
um að skipulagningu þegar sölu-
menn eru búnir að semja við þá og
eftir það tekur framkvæmdahóp-
ur við og framkvæmir það sem er
búið að skipuleggja.“
Reglulega kemur það fyrir að
Íslendingar gisti á hótelinu og
Krumma lætur þá yfirleitt vita
af sér. „Í fyrra var til dæmis ráð-
stefna hérna um íslensk fjármál
og ég hef haft samband við ferða-
skrifstofur og látið vita að það
sé íslenskumælandi manneskja á
hótelinu. Grand hótel er tilvalinn
kostur fyrir þá sem eru að fara í
helgarferð eða brúðkaupsferð og
við erum alveg miðsvæðis svo allt
er í göngufæri. Íslendingar vilja
gæði og þó það sé kannski þrjá-
tíu eða fjörtíu evrum dýrara að
gista hér en á einhverju öðru hót-
eli úti í bæ er líka auðvelt að finna
muninn á þjónustunni. Ég vil líka
meina að ef Íslendingar hafa efni
á að borga fyrir flugfar sem er
ekki ódýrt hafi þeir alveg efni á að
gista hér,“ segir Krumma og hlær.
Eins og bóndi í borginni
ferðavernd
Ferðamannabólusetningar
og ráðgjöf
Ferðavernd býður upp á bólusetningar
og ráðgjöf til ferðamanna. Þjónustan er í
umsjón Helga Guðbergssonar, læknis.
Vinnuna annast læknar og hjúkrunarfræðingar.
Mikilvægt er að panta bólusetningu og leita
ráðgjafar tímanlega áður en haldið er utan.
Tímapantanir í síma: 535 77 00
www.ferdavernd.is