Fréttablaðið - 02.06.2007, Page 50
hús&heimili
1. Skál með loki sem gæti verið
góð undir brúnaðar kartöflur eða
annað góðgæti. Fæst í Antíkhúsinu
og kostar 18.000 kr.
2. Klukka, eins og allar langömm-
ur áttu, á 10.000 kr. í Antíkhorninu.
3. Silfurkaffisett sem sómir sér
á hvaða borði sem er. Fæst í Antík-
munum og kostar 14.000 kr.
4. Borð frá 1870 sem fæst í Antík-
húsinu og kostar 42.000 kr.
5. Grammófónn með gamla laginu
sem fæst í Antíkhorninu á 66.500 kr.
Glamúr gömlu daganna
Í antíkverslunum má finna alls konar fallega hluti ef vel er að gáð. Þrátt fyrir háan aldur eru
margir þessara hluta mjög vel með farnir þar sem þeir hafa verið sannkölluð stofustáss á sínum
tíma. Þó að nýbúið sé að innrétta heimilið með nýjum húsgögnum er ekkert að því að kynna sér
úrvalið í antíkverslununum. Gamalt getur nefnilega vel farið með nýju inni á heimilinu og gefur
heimilinu sérstakt yfirbragð.
42
5
31
Viðhaldsfríar
ÞAKRENNUR
Smiðjuvegi 4C
Box 281 202 Kópavogur
Sími 587 2202 Fax 587 2203
hagblikk@hagblikk.is www.hagblikk.is
Varmaskiptasamstæður
loftræstistokkar og tengistykki
Hágæða
HAGBLIKK ehf.
Þegar hús eru klædd með „viðhaldsfrírri“ klæðningu er nauðsynlegt að nota „viðhaldsfríar“ þakrennur.
Rennurnar frá Grövík Verk í Noregi eru gerðar úr 0,9 mm áli og tærast ekki, ryðga, né brotna.
Fyrsta rennan var framleidd árið 1956 og er enn í notkun.
Litir til á lager: Svartar, hvítar, rauðbrúnar og ólitaðar.
A
u
g
l.
Þ
ó
rh
ild
ar
1
4
6
0
.2
4
2. JÚNÍ 2007 LAUGARDAGUR10