Tíminn - 10.08.1980, Qupperneq 21

Tíminn - 10.08.1980, Qupperneq 21
i&mii'tí.1’ 21 Predikun í Skálholtskirkju 20. júlí 1980 Sunnudagur 10. ágúst 1980. kjötskrokk. bannig helst hungur og kúgun i hendur i fjölmörgum löndum heims. Og vér eigum erfitt meö aö lita ekki undan, þegar blööin birta raunsannar myndir af. sveltandi börnum Uti i heimi, vitandi þaö, aö sumar þjóðir hafa oröið aö afsala mann- réttindum sinum i hendur þeirra, sem svelta þá, sem þeir ættu aö seöja. Núerekkinema eölilegt, aö vér spyrjum, hver sé þáttur kristinn- ar kirkju og kristinna manna i mettun hinna hungruöu i heim- inum. Vér getum hugsað oss þaö starf i þrem þáttum. Hinn fyrsti er framleiðslan. Fyrir mörgum árum feröaðist ég um Noreg og kom i Haröangur. barmáttisjá ávaxtatré meöfram veginum. Mér var sagt, að þar i sveit heföi eitt sinn veriö prestur, sem haföi þann siö aö fylla vasa fermingarbarna sinna af fræjum og segja þeim aö sá, hvar sem þaufyndu moldarflag á leiö sinni. Sé saga jaröræktarinnar rakin gegnum aldirnar, veröur ekki framhjá þvi gengiö, aö I þeim efn- um hefir munaö um kristna kirkju, einnig hér á landi, meöan kirkjan haföi bæöi fjárráö og aö- stööu. Nú er starf kirkjunnar meö öðru formi, og aðgeröir hennar fara meira i þá átt aö útdeila brauöinu, senda matvæli til fjar- lægra þjóða, sem hungra. Hjálp- arstofnanir kirkjunnar njóta trausts og viröingar viöa út um heiminn. Fjárstyrkir og mat- vælasendingar hafa hjálpað mörgum til aö lifa af hungur og harörétti. En útdeilingin, dreif- ingin er annar þáttur i mettun- inni. Fyrir utan sjálfa framleiösl- una og útdeilinguna er til þriöji þátturinn i þjónustunni viö þá, sem hungra. bað eru breytingar á þjóðskipulagi, verzlunarháttum og vinnu. Vér verðum aö viöur- kenna meö kinnroöa, að oft hefir kirkjan veriöaðgeröarlitil og sljó, ef ekki ihaldssöm gagnvart ör- eigahreyfingum nitjándu og tutt- ugustu aldar. bar hefir myndast vitahringur, sem erfitt er að rjúfa.Fyrr á öldum voru til heim- spekingar, sem gerðu skarpan mun á anda og efni og guöfræö- ingar, sem gerðu svo skarpan mun á andlegu og veraldlegu, aö þaö mynduöust tveir pólar. Annars vegar kirkjan, sem ein- göngu áttiaö hugsa um hina and- legu velferð. Hins vegar rikiö eöa stjórnvöldin, sem höföu einkarétt á hinu veraldlega. Af þessu leiddi siðan, aö öreigarnir, hinir hungr- uðu, tóku aö hata kirkjuna, af þvi aö þeim fannst hún hafa brugðist á úrslitastundu. bá kom tækifær- ið mikla fyrir samfélagshreyf- ingar, sem byggðu á efnishyggju, og vörpuöu trúnni fyrir borö. Heimurinn hefir liöið viö þenn- an klofning áratug eftir áratug, en ég er einn þeirra, sem gleöst yfir þvi, aö nýr skilningur er aö ryöja sér til rúms. Ég man, aö þegar ég var ungur, voru þrátt fyrir allt innri tengsl milli öreigahreyfingarinnar og kristinnar trúar. Ég þekkti fólk, sem vildi beinlinis af kristilegum ástæöum berjast fyrir málstaö hinna fátæku einstaklinga og stétta. Nú býr það ekki mér i huga aö tengja samvinnu kirkjunnar viö einn stjórnmálaflokk, heldur aö fram fari viöræöur milli allra flokka og kristinnar kirkju viö og viö. Ekki til aö af la kirkjunni sem slikri vinsælda meöal stjórn- málamanna, heldur til að gera kirkjuna virka i því starfi, sem stjörnmálamennirnir vinna og efla áhrif fagnaðarerindisins á þeim vettvangi. Ég hefi t.d. vakiö máls á þvi fyrir nokkrum árum, aö kenna þyrfti siöfræöi viö- skiptalífsins á kristnum grunni. Sænskur trúarsálfræöingur heldur þvi fram, aö tregöa kirkj- unnar til aö vinna meö öreiga- hreyfingunum hafi stafað af þvi, aöhennihafioröiö þaöá aöleggja of einhliöa áherzlu á kenningar- atriöin miöaö viö manngeröina, persónuleikann, eöa hlutverkiö, sem kristnum manni bæri að vinna i samfélaginu. Sé þet-ta rétt þá má meö sama rétti segja, að stjórnmálaflokkar og forráöa- menniatvinnumálum þyrftuekki siöuren kirkjan þess viö aö móta lif sitt og persónuleika eftir krist- inni fyrirmynd og þá fyrst og fremst mynd hans, sem forðum veitti hungruöum brauö og fisk sem fulltrúi hins kærleiksrika skapara. Fari fram ráöstefnur og nám- skeiö um slik efni sem þessi, ætti Skálholt aö geta átt sinn þátt i þvi starfi. — Ég gæti nefnt fleiri tákn þess, aökirkjaneigi eftir aö sinna hinni veraldlegu hliö guösrikis betur en áöur. Ég hefi notiö þeirra hlunninda aö fá aö fylgjast með æ viötækari visindalegum rannsóknum á Nýja testamentinu og þar eru nú aö fara fram sér- stakar athuganir á viðhorfi frum- kristninnar til auös og örbirgöar. 1 hinum frumkristnu söfnuðum voru flestir fátæklingar og um miöju fyrstu öld var hungursneyö i Gyöingalandi. Ef vér litum á allan heiminn sem eitt land, er enn hungursneyö i þvi stóra landi. Vér ættum þvi eitthvaö aö geta sótt til N.T. enn i dag. Og þjónusta sjálfs þin veröur aö hefjast þar, sem þú ert sjálfur staddur meö ræktunþessa lands. skiki, sem glataö hefir tveim þriðju hlutum gróöurreitsins siöan á landnámsöld, — meö út- deiling næringarinnar, — meö baráttufýrirréttlætinu. Láttu þér ekki gleymast, aö hér er skirskot- aö til þin persónulega. Att þú sjálfur þaö hungur, sem knúöi fólkiö foröum til fylgdar viö Krist? Hungriö eftir þvi guösriki, þar sem bætt er úr neyð hinna hungruðu? Ef þú átt þetta hung- ur, skiluröu, hvaö sira Stefán i Vallanesi átti viö, þegar hann sagöi: Fátæks manns hönd er fé- hirsla Drottins. — Hvert moldarflag, sem þú græöir, — hver peningur, sem þú gefur — hver matarbiti, sem þú sendir til hinna hungruöu — er skerfur unglingsins, sem hann fékk Kristi I hendur. bú ert I sam- félagi þess guösrikis, þar sem hiö daglega brauö er rétt hönd úr hendi i nafni hans, sem er lifsins brauö. Amen. ÁNING VIÐ HRINGVEGINN býður ferðafólk velkomið til Vestur-Skaftafellssýslu og veitir því þjónustu: í Vikurskála, er selur flestar vörur fyrir ferðafólk, svo sem: Matvörur — Ferðavörur — Sportvörur — Ljósmyndavörur — Tóbak — Benzin, oliur o.m.fl. Góð hreinlætisaðstaða. í almennri sölubúð i Vik, allar algengar neyzluvörur. í Hóteli (opið allt árið). í bifreiðaverkstæði er annast almennar viðgerðir. i smurstöð og hjólbarðaviðgerð. í Esso, Shell og BP-þjónustu. Á Kirkjubæjarklaustri: í Skaftárskála, sem býður upp á flestar vörur er ferðafólk þarfnast. í almennri sölubúð, allar algengar neyzlu- vörur og Esso, Shell og BP-þjónustu. Verið velkomin á félagssvæði okkar! Kaupfélag Skaftfellinga Vík og Kirkjubæjarklaustri

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.