Tíminn - 08.10.1980, Side 5
Miðvikudagur 8. október 1980
5
Forsvarsmenn Samtaka eggjaíramleiöenda:
„ÆTLUNIN ER AÐ NÁ MIÐSTÝRINGAR
VALDI Á ÞESSARI BÚGREIN
— sem staðiö hefur á eigin fótum til þessa”
AM — Fyrir skömmu komu þeir að máli við blaðið, Einar Eiriksson,
formaður Sambands eggjaframleiðenda og Gunnar Jóhannsson,
varaformaður sambandsins og óskuðu eftir að koma á framfæri
sjónarmiðum sinum varðandi fóðurbætisskattinn og ýmis önnur at-
riði sem segja má að stuðli að samdrætti og fækkun búa i bessari
grein. Einar er með hænsnabú i Miklaholtshelli i Hraungerðis-
hreppi í Arnessýslu, en Gunnar er með Holtabúið að Asmundarstöð-
um sem flestum mun kunnugt.
Einar sagði að að það hefði
orðiö framleiöendum mikið
reiðarslag þegar settur var á
fóöurbætisskatturinn i júnilok.
Skatturinn var að visu senn
lækkaður niður i 50% en fóðrið
er eftir sem áður um 60% af út-
gjöldum eggjabænda. Skattur-
inn var aftur lækkaður i águst í
40% og um siðustu mánaðamót
mun hann hafa átt að lækka i
33.3%. Eigi aö siður sér verð-
bólguhjólið fyrir þvi að fóöur er
stöðugt að hækka.
Einar nefndi sem dæmi að
sjálfur er hann með um 5000
hænur og er skattur sá sem
gjaldfallinn er á þessum þrem-
ur mánuðum 3.4 milljónir. Ein-
ar kvaðst ekkert hafa fengið á
móti þessum útgjöldum, vegna
þess hve hægt eggjaverð þokast
upp i fullt verð. Hugsast mætti
að hægt yrði að láta neytendur
borga þennan skatt, ef fram-
leiðslan helst i jafnvægi, en Ein-
ar sagði að það sem framleið-
endur vilja gjarnan benda á i
þessu sambandi sé þaö, að þeir
hafa staðið utan við kerfið að
þvi leyti að þeir hafa tekið á sig
sjálfa sinn framleiðsluvanda og
framboð og eftirspurn þvi ráöið
verðinu að mestu.
„Okkur þykir þvi hart að af
okkur eru teknir svona miklir
fjármunir, til þess að viðhalda
offramleiöslunni i öörum bú-
greinum,” sagði Einar.
Gunnar sagði að ef litið væri
til þessarar búgreinar sl. þrjá
mánuði þ.e. eggjaframleiðsl-
unnar einnar.mætti ætla aö
skattheimtan af henni hefði
verið á milli 3 og 5 hundruð
mffljón. Þetta fé verður svo að
taka aftur af neytendum og er
þaö notað að meginhluta til þess
að auðvelda öðrum búgreinum
að offramleiða áfram, þar sem
þetta kemur á móti þvi sem
vantar I útflutningsbætur. Taldi
hann að hér væri verið að skatt-
leggja þessa búgrein til þess aö
láta vandann vaxa enn.
„Þetta á að nota sem stjórn-
tæki gegn stóru búunum,” sagði
Gunnar, „en reynslan erlendis
er sú að stór bú i þessum bú-
greinum eru hagkvæmust. Stór
bú i kúa- og fjárbúskap eru hins
vegar ekki eins hagkvæm og er
reynslan erlendis hliðstæð þvi
sem hér gerist. Þetta stafar af
þvi að hægt er að tæknivæða
eggjaframleiðslu það mikið.
Nú er ætlunin að vega aö þess-
um búum, þar sem þau hafa
staðið óstudd og geta borið sig.
Virðist sem einhverjum finnist
það óbærileg' tilhugsun aö
greinar, sem eru ekki innan
Framleiðsluráðsins, geta borið
sig að öllu leyti, auk þess sem
framþróunin hefur hvergi verið
eins ör.”
Gunnar nefndi þessu til árétt-
ingar tölur frá síðasta vetri þar
sem kemur fram veröþróun sl.
ár, sennilega frá 1972, og sést
þar hvert hlutfall hefur verið I
hækkun á kjöti, en þar koma
stóru búin inn i að mestu leyti.
Sagði Gunnar að ef tekið væri
mið af dilkakjöti sl. 7—8 ár,
hefði verðlækkun á eggjum orð-
ið 45—50% en á svinakjöti 40%.
Þetta sagði Gunnar eingöngu
þvi að þakka að hér ræðir um
stór og vélvædd bú. Hins vegar
hefur verðþróun I kjúklinga-
ræktun veriö önnur og stafar
það af þvi að I þeirri grein hafa
ekki verið til stór og vélvædd bú
og eru þau fyrst nú að hefja inn-
reið sina, með bættri aðstöðu til
slátrunar og fleiru.
„Þeir sem standa aö hinum
hefðbundnu búgreinum hafa
þóst sjá fram á aö við munum
fara að veita þeim meiri sam-
keppni en verið hefur”, sagði
Gunnar, ,,og ætla sér nú með
þessum aðgeröum að taka fyrir
það að við framleiöum meira en
þeir vilja meö þvi aö koma á
kvótakerfi, sem heldur fram-
leiðslunni i ákjósanlegu marki
fyrir þá. Þarna er verið að taka
valið af neytendum og ætlar
Gunnar Guðbjartsson að taka
að sér að ráða þvi hvað i matinn
verður á heimilinum á degi
hverjum. Slik vinnubrögö vilj-
um við ekki sætta okkur viö,”
sagði Gunnar enn.
Þá nefndi Gunnar siðustu að-
gerðirnar. Sjóðagjöldin sem þó
væru smámál á móti þessu. Þar
væri hins vegar verið að rukka
eggjabændur fyrir hluti, sem
þeir eiga ekki að standa skil á
skv. lögum. Eru þetta gjöld sem
innheimt eru af veltu og mundi
enginn i Sambandi eggjabænda
neita að greiða þau, ef um væri
að ræða sama hlutfall af tekjum
og hjá öðrum búgreinum. Þessi
gjöld eru hins vegar ekki inni i
verðlagsgrundvelli en tekju-
hlutfall eggjabænda af veltu
ekki nema 10-15% meðan tekju
hlutfall sauðfjár og kúabænda
er um 50%. Þannig er vægi þess
sem eggjabændur greiöa um
það bil þrefalt meira. Vegna
þess að eggjabændur neituðu
þessari tilhögun skipaði Fram-
leiðsluráð nefnd i málinu, og
skilaði hún áliti i júni 1977.
Komst nefndin einróma að
þeirri niðurstöðu að þessi vinnu-
brögð væru óréttmæt.
Álitinu var hins vegar stungið
undir stol, en þó varö það til
þess að landbúnaðarráðuneytiö
skipaði nefnd, sem fulltrúi
eggjabænda á sæti i. Meðan
nefndin sat, ætlaði Framleiðslu-
ráö hins vegar aö láta sverfa til
stáls og ná þessu fé af bændum,
með þvi aö neita þeim um fóður.
Hins vegar segir svo i reglugerð
með lögum um þessi gjöld að
þeir aðilar, verslanir og aðrir,
sem kaupa beint af fram-
leiðendum, eigi að standa skil á
þeim. Þannig er alveg ljóst aö
eggjabændum er ekki ætlað aö
skila fénu, þótt þetta hafi aldrei
verið kynnt fyrir verslunar-
mönnum, enda vonlaust að ætla
að láta þá standa i þessu. Síðan
var þeim ætlað aö innheimta
nokkurn hluta af eggjabændum,
en annan hluta af neytendum.
Hér er þvi blandað saman
tveimur ólikum málum.
„Þannig legg ég áherslu á
það,” sagði Gunnar, „að ég tel
að með þessum álögum sé ætl-
unin að stemma stigu við stór-
búum okkar. Þannig mun ætl-
unin að drepa niður það forskot
sem okkar búgreinar hafa og ná
á þeim miðstýringarvaldi um
leiö. Þannig eru þessi mál öll
nokkuð persónuleg þvi ráða-
menn þessara mála eru allir I
hinum hefðbundnu búgreinum
og þvi gjarnt aö taka heldur af-
stöðu með sér sjálfum.”
Einar sagði að lokum að þótt
aögeröir þessar ættu að bitna á
stærstu búunum fyrst og fremst,
kæmu þær þó ekki siður niður á
þeim smærri, enda væru margir
þeirra að missa móðinn og
mundi þeim fækka á næstunni.
Um stóru búin sagði Gunnar,
að þar væri hins vegar ekki um
annað að ræöa en reka þau
áfram, þvi menn leggja ekki
niður atvinnutæki upp á
hundruð milljóna. Innan tiðar
má fara að búast við skorti á
eggjum en ef framleiösluaukn-
ing á aö eiga sér staö, mega
stóru búin ekki bæta við sig
nema með leyfi Framleiðslu-
ráðs. Þar sem markmiðið er að
draga úr umsvifum stóru bú-
anna, munu þau þvi alls ekki fá
framleiðsluaukninguna, heldur
alltaf skerðinguna. Þannig er
stefnan sú að koma eggjafram-
leiöslunni inn I moldarkofana að
nýju.”
Einar Eirlksson, formaður Sambands eggjaframleiðenda og Gunnar Jóhannsson, varaformaður
PÍANÓTÖNLEIKAR í N0RRÆNA
HÚSINU í KVÖLD t
AB— I kvöld kl. 20:30 heldur
pianóleikarinn ANKER BLYME
frá Danmörku tónleika I Norræna
húsinu. A efnisskrá verða m.a.
nokkur af helstu verkum pianó-
tónbókmenntanna: slðasta
pianósónata Beethovens (op. 111)
og útval úr prelúdium Debussys.
Anker Blyme (1925) hlaut
menntun sina á konunglega tón-
listarháskólanum I Kaupmanna-
höfn og I Paris. Hann kom fyrst
fram 1945 og hefur siðan starfað
mikið bæði sem einleikari og
kammertónlistarmaður i Skandi-
naviu og annars staðar i Evrópu.
Anker Blyme hefur haft mjög ná-
ið samstarf við tónskáldið Niels
Viggo Bentzon og oft frumflutt
verk hans. Sama er að segja um
verk eftir Holmboe og
Lewkovich, og á tónleikunum á
miðvikudag leikur hann einmitt 4.
pianósónötuna eftir Lewkovich.
Anker Blyme hefur verið
dósent og frá 1974 prófessor I
pianóleik við tónlistarháskólann i
Kaupmannahöfn. Hann hefur oft
leikið með Erling Blöndal
Bengtsson og það gerir hann I
Norræna húsinu laugardaginn 11.
okt., þegar tónlistarmennirnir
tveir hafa þar kammermúsik-
kvöld.
Aögöngumiöar að tónleikunum
á miðvikudag verða seldir viö
innganginn.
Danski planóleikarinn Anker
Blyme leikur þekkt tónverk á tón-
leikum I Norræna húsinu I kvöld.
Hann mun m.a. leika slðustu
planósónötu Beethovens (op. 111)
og úrval úr prelúdlum Debussys.
----7 ' '
/Xu9'Vs'ð v r»^a°un'
V________________'___________)
Fastar
áætlunarferðir.
GOOLE
Umboðsmenn:
Brantford International Ltd.,
Queens House, Paragon Street
HULL, HUMBERSIDE HU1 3NQ
Skeyti: Headship
Telex: 52159 branfd g
Sími . 0482 27756
SKIPADEILD SAMBAI
Sambandshúsinu Pósth. 180 121 Reyk
Sími 23200 Telex 2101