Tíminn - 02.11.1980, Page 4
4
Sunnudagur 2. nóvember 1980
í spegli tímans
Marti Caine er ekki ánægð meö útlit sitt.
Það er ekki heldur gott að vera horaður
Vissulega er ekki gaman
aö vera köliuö „fitubulla”,
en ætli þaö sé nokkuö
skemmtilegra aövera kölluö
„hrífuskaft”? Mikiö hefur
veriö rætt og ritaö um þaö
vandamál aö halda réttri
likamsþyngd, en nær alltaf
frá sjónarmiöi þeirra, sem
bera of mikið hold. En hinir
eru lika til, sem eru of hor-
aðir, og segja læknar þaö oft
miklu erfiðara vandamál aö
eiga við. Oft er það bundiö
sálrænum erfiöleikum, og er
t.d. álitiö, aö um 1% stúikna-
á táningaaidri þjáist af sjúk-
dómi, sem nefndur er „ano-
rexia nervosa”, en lýsir sér
þannig aö þær ástunda
megrunarkúra af þvilikri
ástriöu, aö fyrir kemur aö
þær veröa næringarskorti aö
bráöog leiöir hann þær jafn-
vel til dauöa. Sem betur fer,
fer þó ekki alltaf svo illa, og
segjum viö hér frá einni
konu, sem hefur iært aö iifa
meö sjúkdómi sinum.
Marti Caine heitir hún og
er frægur skemmtikraftur i
heimaiandi sinu, Bretlandi.
Hún segir: — Ég er búin að
venjast þvi aö vera horuð og
nú orðið er það hluti af
skemmtiatriðunum minum,
en ég er samt ekki enn sátt
við það. Sennilega á fólk bágt
með að trúa þvi, að þegar ég
var um tvitugt, var brjósta-
mál mitt 96 cm. En svo varð
ég ófrisk og á meðgöngu-
timanum léttist ég um 26 kg!
Það var allt i lagi með
barnið, en siðan hef ég staðið
i 45 kilóum og get ekki bæft á
mig. Eftir að e'g hafði i fyrsta
skipti komið fram i sjón-
varpi, var ég miður min og
hugleiddi að láta gera á mér
aðgerðtilaðstækka brjóstin,
en umboðsmaðurinn minn
harðneitaði þvi, hann sagði
að það myndi eyðileggja at-
riðiö mitt. Ég fékk ekki að
ganga lengra en að láta laga
á mér nefið! Marti er nú 35
ára og verður að sætta sig
við útlit sitt, eins og svo
margur annar.
Lj óðelskur
ly f tingakappi
Henni Piu Grengman er ekki fisjað saman. Hún er
sænskur kvennameistari i lyftingum, með 280 kg, og auk
þesseinn af örfáum virtum þjálfurum af hinu ,,veikara”
kyni i ishokki. Hvað gerir þessi afburða kvenmaður i
tómstundum sinum? — Yrki ljóð, segir hún.
agcÉPtioti
— Ég er alveg aö koma. Ég er bara aö
hengja tepoka til þerris.
— Þaö er best aö fara aö koma sér
heim, áöur en Þorlákur gerir ein-
hverja vitieysu.
— Stjórn fyrirtækisins fer fram á aö fá
uppsagnarbréf.
— 1 gær var mér sagt, aö þú ættir ekki
langt eftir. Hvaö kom eiginlega fyrir?
krossgáta
3434.
Lóðrétt
1) Smyrsl í þolfalli. 6) Þreytu. 8) Strákur.
9) Gljúfur. 10) Miðdegi. 11) Tind. 12)
Rödd. 13) Grjóthlið. 15) Stian.
Lóðrétt
2) Sjónlaus. 3) Stafrófsröð. 4) Bölvaði. 5)
Griskur löggjafi. 7) Hláka. 14) Muttering.
Ráðning á gátu No. 3433
Lárétt
1) Aflát. 6) Rás. 8) Lóa. 9) Ata. 10) Kát.
11) Tak. 12) Tia. 13) Ama. 15) Freri,-
Lóðrétt
2) Frakkar. 3) Lá. 4) Asiáttar. 5) Blóta. 7)
Satan. 14) Me.
bridge
Vilhjálmur Pálsson og Sigfús Þórðar-
son hafa löngum verið óragir við að segja
haröar slemmur. Hér á eftir fer ein sem
þeir tóku i fyrstu umferð Haustmóts
Bridgefélags Selfoss.
Norður.
S. A754
H. D10872
T. A754
L. -
Vestur.
S. KD96
H.A65
T. D108
L.754
Austur.
S. 10832
H.4 .
T. KG632
L. K82
Suður.
S. G
H. KG93
T. 9
L. ADG10963
Sigfús og Vilhjálmur sátu i NS og sagnir
gengu þannig:
Vestur. Norður. Austur Suöur
2lauf
pass 2tiglar pass 3hjörtu
pass 6hjörtu allirpass.
2 tiglar var gerfisögn og bað suöur um
að lýsa hendinni nánar. 3 hjarta sögnin
var 1 harðara lagi þvi i raun sýndi hún há-
marksopnun.
Vestur kom út með spaöakóng og Vil-
hjálmur tók á ásinn og spilaði hjarta á
kóng. Vestur drap með ás og spilaði
spaðadrottningu sem suður trompaöi.
Hann lagöi niður laufás og spilaöi lauf-
drottningu og trompaði 1 blindum og spil-
aöi hjarta á nluna. Siðan spilaði hann
laufagosa. 1 fljótu bragði gæti virst betri
möguleiki sé aö trompsvina laufinu. Þaö
eru júmeirilikurá aðlitur liggi 4-2 en 3-3.
En núna var búið aö spila litnum tvisvar
og laufkóngurinn haföi ekki komið niöur
og við þaö breytast likurnar 3-3 legunni i
hag. Auk þess hafði vestur sýnt 3 hjörtu
átti væntanlega 4eða 5 spaða og til viöbót-
ar hefði austur kannski doblað 2 tfgla ef
hann ætti þar langlit. Það benti þvi’ allt til
3-3 legunnar og Vilhjálmur trompaði þvi i
blindum og laufkóngurinn kom siglandi.
Þá var aðeins eftir að fara heim á hjarta-
gosann og leggja upp rest.
Við hitt borðiö voru spiluð 4 hjörtu og
unnin slétt.