Tíminn - 02.11.1980, Síða 6

Tíminn - 02.11.1980, Síða 6
6 Sunnudagur 2. nóvember 1980 efasemdir Meðal almennings er talsvert farið að gæta þeirrar skoðunar að of langt sé gengið i svo köll- uðum „félagsmálapökkum” á siðustu árum. Þau sjónarmið heyrast æ viðar og æ oftar að i þessum „félagsmálapökkum” sé ekki um annað að ræða en stöðuga útþenslu rikisbáknsins með tilheyrandi vaxandi skattheimtu og samstiga aukist vald svo nefndra ,,verkalýðsrekenda” á kostnað launþega- heimilanna sjálfra. Það er jafnvel farið að örla á þeirri skoðun að alltof langt sé gengið i þvi að gera hlut fámennra hópa betri i samfélaginu á kostnað annarra fjöl- mennari. Þessar raddir heyrast reyndar ekki sist meðal launþega sjálfra, og ætti það að vekja menn til umhugsunar um réttmæti þessara skoðana eða á hinn bóginn um það hvernig misskilningur i þess- um efnum verður leiðréttur. Það er nefnilega gömul reynsla og ný að i þessu er gróðurmold argasta afturhalds, hvort sem of langt hefur verið gengið eða andmælin byggjast á misskilningi. „Félagsmálapakkarnir” eru til þess orðnir að draga úr krónutöluhækkunum, en það markmið er öllum augljóst við efnahagsaðstæður okkar. Það er hins vegar hæpið að ,,pakkarnir” hafi slik áhrif lengur á kjarasamninga. Um það segir Steingrim- ur Hermannsson i viðtali við Timann nú i vikunni: „Ég verð að segja að miðað við þær peninga- launahækkanir sem urðu i samningum ASí, þá efast ég um að þær hefðu orðið miklu hærri þó þessi pakki hefði ekki komið til”. Og Steingrimur segir einnig i þessu viðtali um aðra hlið málsins: „Eins og tekið er fram i stjórnarsáttmála rikis- stjórnarinnar ber i þvi efnahagsástandi sem við búum við að draga úr peningalaunahækkunum, en bjóða launþegum i staðinn félagslegar umbætur. Ég hef hins vegar orðið hugsi út af þvi að farið er að selja slikar umbætur i æ rikara mæli. Ég hef dálitiar áhyggjur af þvi að við séum að lenda á þeirri braut að fara að hafa það sem almenna reglu að ekki verði ráðist i félagslegar aðgerðir nema hægt sé að selja þær háu verði. Vitanlega er hætta á að farið verði að hugsa minna um gæði aðgerðanna, heldur en hvað hægt er að fá fyrir þær”. Seingrimur segir enn fremur: „Ég er t.d. hlynntari þvi að skoða tekjuöflun i gegnum skattakerfið, skattalækkanir til að þjóna þvi hlutverki sem pökkunum var ætlað”. Steingrimur Hermannsson er ekki einn um þessar efasemdir um inntak og áhrif „félagsmála- pakkanna”. Þessar efasemdir eru á hvers manns vörum ef svo má segja. Það er þvi fyllilega ástæða til að ábyrgir aðilar taki þessi málefni til yfir- vegunar. JS Útgefandi: Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Auglýsingastjóri: Steingrfmur Gislason. Skrifstofustjóri: Jóhanna B. Jóhannsdótt- ir. Afgreiöslustjóri: Siguróur Brynjólfsson. —Ritstjórar: Þórar- inn Þórarinsson, Jón Helgason, Jón Sigurðsson. Ritstjórnarfull- trúi: Oddur V. Ólafsson. Fréttastjóri: Kristinn Hallgrimsson. Blaöamenn: Agnes Bragadóttir, Atli Magnússon, Bjarghildur Stefánsdóttir, Elisabet Jökulsdóttir, Friörik Indriöason, Friöa Björnsdóttir (Heimilis-Timinn), Heiöur Helgadóttir, Jónas Guö- mundsson, Jónas Guömundsson (Alþing), Kristin Leifsdóttir, Ragnar örn Pétursson (iþróttir). Ljósmyndir: Guöjón Einars- son, Guöjón Róbert Agústsson. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir. Prófarkir: Flosi Kristjánsson, Kristin Þorbjarnardóttir, Maria Anna Þorsteinsdóttir. — Ritstjórn, skrifstofur og auglýsingar: Siöumúla 15, Reykjavik. Simi: 86300. Auglýsingasimi: 18300. Kvöldsimar: 86387,86392.—Verö I lausasölu: kr. 280. Askriftar- gjaldá mánuöi: kr.5500.— Prentun: Blaöaprent hf. Alvarlegar Þórarinn Þórarinsson: Umdeild áhrif skoöana- kannana og sjónvarps Hvernig hafa skoðanakannanir Gallups reynzt? Truman lék Gallup grálega 1948. HVAÐA áhrif hafa skoöana- kannanir á úrslit kosninga? Hversu mikil áhrif láta kjósend- ur þær hafa á afstööu sina? Hneigjast þeir til fylgis viö flokk, sem viröist vera aö vinna á? Snúast þeir gegn flokki, sem viröist vera aö tapa? Vilja ekki alltof margir hallast aö þeim, sem er liklegur til aö hljóta mesta vinninginn? Þessum spurningum getur veriö erfitt aö svara, ef þaö svar á aö gilda fyrir alla heildina. Hitt er vist, aö skoöanakannanir hafa áhrif á marga, en hins veg- ar á mjög mismunandi hátt. Nýlegt dæmi um áhrif skoöanakannana eru kosning- arnar i Astraliu. Sennilegt er, aö Verkamannaflokkurinn heföi unnið sigur, ef engar skoöana- kannanir heföu fariö fram. Allar spár bentu til þess aö rlkisstjórn Frjálslynda flokks- ins, sem er raunar ihaldsflokkur landsins, myndi halda velli. Skoöanakannanir leiddu lika i ljós, aö þaö var rikjandi skoöun. Um 80% þeirra, sem spuröir voru, töldu þá niðurstööu llkleg- asta. Svör þeirra við annarrispurn- ingu leiddu hins vegar aöra niðurstöðu i ljós. Talsvert meira en helmingur þeirra, sem spurðir voru, sögöust ætla aö kjósa Verkamannaflokkinn, þótt margir þeirra spáöu Frjálslynda flokknum sigri. Samkvæmt þessu virtist rikis- stjórn Frjálslynda flokksins kolfallin. bessi niöurstaöa hleypti miklu fjöri i kosningabaráttuna. Frjálslyndi flokkurinn hóf miklu haröari sókn en hann var búinn aö ráðgera. Úrslitin uröu þau, aö hann vann nauman sig- ur, en sennilega hefði hann tap- að, ef skoðanakönnun heföi ekki ýtt við honum. SKOÐ^NAKANNANIR hafa ekki aöeins áhrif á kjósendur, heldur engu síöur á stjórnmála- menn. Stundum hafa þær valdiö þeim miklu áfalli, sökum þess aö þeir hafa lagt of mikla trú á þær. Harold Wilson er einn þeirra, sem lét skoðanakannanir blekkja sig. Hann efndi til kosn- inga 1970, þvi aö skoöanakann- anir spáöu Verkamannaflokkn- um sigri. úrslitin uröu á aöra leiö. Edward Kennedy henti sama slysið, þegar hann gaf kost á sér sem forsetaefni á siðastl. hausti. Skoöanakannanir höföu lengi sýnt, aö hann heföi nær helmingi meira fylgi en Carter. Úrslit prófkjöranna uröu á öfuga leiö. í báöum þessum tilfellum kann aö mega segja, aö óvæntir atburöir hafi breytt al- menningsálitinu, t.d. gíslatakan i Teheran. Sá maöur, sem nú þykir einna snjallastur skoöanakannari i Bandarikjunum, Patrick H. Cadell, en hann annast skoöana- kannanir fyrir Carter, gefur skoðanakönnunum mjög slæm- an vitnisburð. Skoöanakannanir og sjónvarp hafa haft mjög slæm áhrif á stjórnmálin, segir hann. I sameiningu hafa sjón- varp og skoðanakannanir dreg- iö úr áhrifum flokkanna. Liö- léttingur, sem kemur sæmilega fyrir i sjónvarpi, fær oft góöa út- komu i skoöanakönnun, þótt hann hafi ekkert til brunns aö bera. Þetta tvennt veldur þvi, aö óhæfari menn hafa valizt til forustu en áöur. GEORGE Gallup, sem er upphafsmaöur skoöanakannana i núverandi mynd, er annarrar skoöunar. Hann segir, aö skoöanakannanir hafi dregiö úr valdi flokksklikna, sem oft hafi gefizt illa, og aukið áhrif al- mennings á gang mála. Sennilega hafa þeir Cadell og Gallup báöir á vissan hátt rétt fyrir sér, þvi aö um svo mis- munandi og ólikar aöstæöur getur veriö aö ræöa. Þaö er auö- . velt aö finna dæmi til aö sanna fullyröingar hvors um sig. En hvaö mikiö er aö marka skoöanakannanir? Sennilega er reynslan af skoöanakönnunum Gallups bezta svariö viö því. Gallup hóf fyrstu svokallaöar visindalegar skoöanakannanir sinar i sambandi viö forseta- kosningarnar i Bandarikjunum 1936. Hann hefur fylgzt með öll- um forsetakosningum slöan. Hér fer á eftir yfirlit um siö- ustu niöurstööur skoöanakönn- unar Gallups og úrslit kosning- anna. 1936: Samkvæmt skoöana- könnun Gallups átti Roosevelt aö fá 55,7% en Landon 44,3%. Roosvelt fékk 60,8% en Landon 36,5%. 1940: Samkvæmt skoðana- könnun Gallups átti Roosevelt aö fá 52% og Willkie 48%. Roosevelt fékk 54,7% en Willkie 44,8%. 1944. Samkvæmt skoðana- könnun Gallups átti Roosevelt aö fá 51,5%, en Dewey 48,5%. Roosevelt fékk 53,4% en Dewey 45,9%. 1948. Samkvæmt skoðana- könnun Gallups átti Dewey aö fá 49,5%, en Truman 44,5%. Truman fékk 49,5% en Dewey 45,1%. 1952. Samkvæmt skoöana- könnun Gallups átti Eisenhower að fá 51%, en Stevenson 49%. Eisenhower fékk 55,1% en Stevenson 44,4% 1956. Samkvæmt skoðana- könnun Gallups átti Eisenhower aö fá 59,5% en Stevenson 40,5%. Eisenhower fékk 57,4% en Stevenson 42%. 1960. Samkvæmt skoðana- könnun Gallups átti Kennedy aö fá 51%, en Nixon 49%. Kennedy fékk 49,7%, en Nixon 49,6%. 1964. Samkvæmt skoöana- könnun Gallups átti Johnson aö fá 64%, en Goldwater 36%. Johnson fékk 61,1% en Goldwat- er 38.5%. 1968. Samkvæmt skoöana- könnun Gallups átti Nixon aö fá 43%, Humphrey 42% og Wallace 15%. Nixon fékk 43,4%, Humphrey 42,7% og Wallace 13,5%. 1972. Samkvæmt skoðana- könnun Gallups átti Nixon að fá 62%, en McGovern 38%. Nixon fékk 60,7% en McGovern 37,5% 1976. Samkvæmt skoöana- könnun Gallups átti Ford aö fá 49% en Carter 48%. Carter fékk 50,1% en Ford 48%.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.