Tíminn - 02.11.1980, Page 11
11
Sunnudagur 2. nóvembér WáÓ
þvi að hún hefur það starf að
mjtílka nokkrar geitur. Og það
eru geitur, sem vita, hvað til
þeirra friðar heyrir: Þærstökkva
sjálfkrafa upp á timburpall, þar
sem Eva er vön að mjólka þær.
— Viðlifum hér góðu lifi, segir
Sara Marskog. I stórborgunum
eins og fólk hneppist i dróma. Það
einangrast og oft eru nauðalitil
tengsl á milli fólks i sömu fjöl-
skyldu, karls og konu, barna og
fullorðinna. Þar brestur eitthvað
á yl og einlægni og samhug. Hér
er sambandið nánara, og hér er
miklu meira öryggi. Við berum
ábyrgð hvert á öðru og högum
okkur samkvæmt þvl. Við flutt-
umst hingað ekki sist vegna þess,
að við viljum, að börnin okkar
getilifað ánægjulegra og auðugra
og sannara lifi en þeim hefði
boðist i borgum.
Fólkið á Skógarnesi á sér
granna,ogafþeimersagasem er
kapituli út af fyrir sig. Maður að
nafniBjöm Bergström kunni ekki
við sambýlið. Draumsjón hans
var að lifa út af fyrir sig á
svipaðan hátt og sænskir bændur
gerðu á átjándu öld. Þess vegna
leitaði hann inn i' skóginn, þar
sem hann hélt, að hann gæti
fengið að vera i friði. En sú varð
ekki raunin á. Hann komst i kast
við yfirvöldin eins og hver annar
andófsmaður, sem fer of langt út
fyrir troönar slóðir.
Ólán Björns Bergströms var,
aö hann gat hvergi fengiö land-
skika handa sér eftir venjulegum
leiðum. Þess vegna tók hann þaö
tilbragðsaösetjastaðáeyðikoti i
skóginum, þar sem ekki hafði
veriðbiiið i fimmtán ár.Þar reisti
hann sér frumstæðan bjálkakofa.
Björn fór i skóginn við sjöunda
mann, þar af voru fjögur börn.
Skógyrkjufélag, sem taldi sig
eiga eyðikotið, erhann hafði lagt
undir sig, tók fljótt að ýfast við
gestinum, og með þvi að Björn
vildi ekki vikja, harðnaöi deilan.
Loks var honum gerð aöför, sem
varð landsfræg og þótti ekki alls
kostar mildileg.
1 fyrravetur komu menn frá
skógyrkjufélaginu á vettvang
með lögreglumenn og slökkviliðs-
menn og er skemmst af þvi að
segja, að Björn Bergström og fólk
hans var rekið Ut úr bjálkakofan-
um. Siöan var lagöur I hann eldur
og hann brenndur til grunna.
Björn og fólk hans stóð á hjarninu
með fjögur böm, þegar komu-
menn héldu brott að verki unnu.
Nú varð samvinnubyggðin i
Skógarnesi Birni til liknar. Þar
var skotið skjólshúsi yfir hann og
fólk hans allt i fyrravetur. Sú lið-
semd breytti þó ekki viðhorfi
hanstil sambýlisins þar, og þegar
vetri hallaði og hlýna tók, lagöi
hann leið sina aftur Ut I skóginn,
þar sem hann timbraði saman
nýjan bjálkakofa. Þar hefur hann
siðan beöiö þess hvort yfirvöldin
geri honum nýja aðför meö eld i
farteski sinu.
Ein kvennanna, Lisbet Wang, hlynnir að litlu dóttur sinni. Verkskipting er I stórum dráttum að gamalli
venju, en öðru leyti gerir hver það, sem hann megnar.
í Reyk javík og á Akureyri laugardag og sunnudag frá kl. 1—6.
Nú kynnum vió hinn nýja MAZDA 323 árgerö 1981. Þetta er bíllinn sem sýnir
þaö og sannar aö bíll þarf ekki aö vera lítill og þröngur til aö vera
sparneytinn. Komiö og skoöiö og reynsluakió nýja MAZDA 323.
Auglýsið í Tímanum