Tíminn - 02.11.1980, Qupperneq 24
32
Sunnudagur 2. nóvember 1980
Umsjón Friðrik Indriðason
Þunglamaleg
stríðsmynd
Kegnboginn
Tlðindalaust á vesturvigstöðv-
unum/All quiet on the Western
Front
Leikstjóri: Delbert Mann
Aðalhlutverk: Richard Thomas,
Ernest Borgnine, Donald Pleas-
ence og Ian Holm.
Aður hefur verið ráðist i kvik-
myndun á sögu Erich Maria Re-
marque Tiðindalaust á vestur-
vigstöðvunum og eins og i {»tta
skipti þá er árangurinn misjafn.
Myndin nær alls ekki hinum
finni punktum sem eru i sögu
Remarque og að litlu leyti anda
hennar en hinsvegar nær hún
vel hörmungum og eymd striðs-
ins vegna ágætrar sviðssetning-
ar.
Söguþræði bókarinnar er fylgt
allnáiö en i Þýskalandi 1914 tala
allir um striðið og vilja fá að
vera með áður en öllu lýkur þvi
enginn efast um skjótan sigur.
★ ★
Þar á meðal eru nokkrir
skólafélagar, allir innan við tvi-
tugt. Eftir harða þjálfun, undir
stjórn fyrrverandi póstmeistara
bæjarins (Holm) eru þeirsendir
á vigstöðvarnar. Þar kynnast
þeir Kat (Borgnine) reyndum
hermanni sem fljótlega þurrkar
úr huga þeirra allar grillur sem
þeir höfðu gert sér um striðið og
kemur þeim i skilning um
ástandið eins og það er.
Striðið dregst á langinn og
brátt falla skólafélagarnir hver
af öðrum uns aðeins Baumer
(Thomas) er eftir auk Kat en
siöan fellur sá gamli jálkur og
Baumer er skotinn á degi er tið-
indalaust er á vesturvigstöðv-
unum.
Frásögn myndarinnar er
þunglamaleg en reynt er að
lííga upp á hana með ýmsu móti
svo sem heimsókn félaganna til
kátra franskra stúlkna.
Richard Thomas er þekktur
sjónvarpsleikari en hefur litið
sem ekkert sést i kvikmyndum.
Hann er hálf utanveltu við hlut-
verk sitt en yfirleitt er persónu-
sköpun skólafélaganna nokkuð
góð. Leikur Borgnine er ágætur
enda grunar mig að hann sé
mikið til að leika sjálfan sig i
þessari mynd.
Pleasence og Holm tekst vel
að túlka hlutverk sin.annars
vegar hinn dæmigerði
pylsu-þýskari og hinsvegar hinn
smásmugulegi embættismaður
sem fengið hafur allt of mikil
völd.
1 heild er myndin aöeins
skuggi af bókinni en eins og áð-
ur greinir tekst henni vel upp i
lýsingu á hörmungum og eynd
skotgrafanna.
Friðrik Indriðason
Odýr Bond
Nýjar kvikmyndir
Háskólabió
Jagúarinn. Þetta mun vera vestræn útgáfa af svonefndum kar-
ate-myndum og þvi meira lagt I hana en aðrar siikar. Söguþráður-
inn er svipaður, einn ósigrandi karate-kappi á móti ofurefli liðs.
Mikið um hasar og ofveldi. Leikstjóri er Ernest Pintoff, kar-
ate-kappinn er Joe Lewis.
Hafnarbió.
Girly. Nokkuð athyglisverð hrollvekja um undarlega fjölskyldu.
Tómstundagaman þessarar fjölskyldu er óvenjulegt svo ekki sé
meira sagt en best er að segja ekki of mikið tii að ræna ekki áhorf-
andann ánægju af að finna það út. t aðalhlutverkum eru Vanessa
Howard og Michael Bryant.
Tónabió
Piranha. Mannætufiskar Itorfum hrella saklausa baögesti. Mikið af
blóöi en hetjan bjargar þessu eins og fyrri daginnLeikstjóri er Joe
Dante og i aöalhlutverkum eru Bradford Dillmann og Keenan
Wynn.
Stjörnubió
I.ausnargjaldið/ Billion dollar
threat
Leikstjóri Barry Shear
Aðalhlutverk Dale Robinetta,
Patrick Macnee og Ralph Bell-
amy
Myndin er ódýr útgáfa af
James Bond kvikmynd og fylgir
þeirri formúlu i smáatriðum.
Sand (Robinette) er einn af
þessum huggulegu leyniþjón-
ustunáungum sem hefur svar
við öllum aðstæðum i skyrtu-
erminni og kvenmenn falla fyrir
i röðum. Hann fær það verkefni
hjá þessum venjulega harð-
soðna yfirmanni sinum (Bell-
amy) að grennslast fyrir um
fljúgandi diska i nágrenninu.
Verkefnið snýst fljótt upp i að
koma fyrir kattarnef brjáluð-
um glæpamanni sem ætlar aö
kúga heiminn til að borga sér
billjón dollara annars eyði hann
osón-laginu.
Eins og i öllum Bond-mynd-
unum þá á hetjan mest I höggi
viö handbendi aðalillmennisins
(Oddjob i Goldfinger, Jaws i
tveim siðustu Bond-myndum)
sem i þessu tilfelli reynist vera
buffkaka með stálhendi, og eins
og alltaf endar sú barátta meö
sigri hetjunnar.
Ljósi punkturinn i þessari
mynd er leikur Patrick Macnee
i hlutverki hins brjálaða ,,of-
ur-glæpamanns” en hann einn
er þess virði að sjá þessa mynd.
Auk ofangreinds þá er i
myndinni þessi venjulega
blanda af fögrum kvenmönnum,
ofbeldi og skemmtilegum kar-
akterum en útkoman verður
eins og áður greinir, ódýr Bond.
Friðrik Indriðason.
Reykjavíkurprófastsdæmi 40 ára
Með lögum nr. 76 frá 7. mai
1940 var Reykjavikurprófasts-
dæmi stofnað, en fram að þeim
tim hafði Reykjavik verið hluti
Kjalarnessprófastsdæmis. Var
hiö nýja prófastsdæmi látið ná
yfir Reykjavik, Seltjarnarnes
og Kópavog og hefúr sú skipan
haldizt siðan. Og um mánaðar-
mótin september-október var
boöaö til fyrstu fundanna i söfn-
uðunum, sem stofnaöir voru
með prófastsdæminu, en þaö
eru Hallgrims, Laugarnes og
Nessöfnuöir. Þó haföi áöur verið
hafið starf I Laugarnesinu i
tengslum viö Dómkirkjusöfnuö-
inn, og fyrstu messuna þar i
hverfinu flutti séra Garðar
Svavarsson 13. desember 1936.
Eftir kosningar i hinum nýju
prestaköllum 15. desember,
voru skipaðir sóknarprestar i
Hallgrimssöfnuöi, séra Sigur-
björn Einarsson og séra Jakob
Jónsson, i Laugarnesi séra
Garöar Svavarsson og i Nes-
söfnuði séra Jón Thorarensen.
Tóku hinir nýju prestar við em-
bættum sinum I ársbyrjun 1941,
og fyrsti héraðsfundur hins nýja
prófastsdæmis var haldinn 25.
marz 1941.
Dómprófastur i Reykjavikur-
prófastsdæmi var skipaður 4.
marz 1941 séra Friörik Hall-
grimsson, en hann haföi verið
prófastur I Kjalarnesprófasts-
dæmi frá 27. marz 1938 og
gegndi hann prófastsstörfum til
1. desember 1945, og þá tók við
af honum séra Bjarni Jónsson,
vigslubiskup. 1. júli 1951 var
séra Jón Auðuns skipaður dóm-
prófastur og 18. aprll 1973 tók
séra Óskar J. Þorláksson við af
honum, en núverandi dómpró-
fastur, séra Óalafur Skúlason,
var skipaður frá 1. nóvember
1976.
Um leiö og prófstsdæmiö var
stofnað var fitjaö upp á þvi ný-
mæli að gera ráð fyrir svo-
nefndu Safnaöarráði, sem i
skyldu vera prestarnir, for-
menn sóknarnefnda og safnað-
arfulltrúar. Skyldi ráðið koma
saman eins oft og þurfa þætti og
fjalla um kirkjuleg nýmæli og
skipulagsmál innan prófasts-
dæmisins. Hefur Safnaöarráö
haldið fundi samhliöa héraðs-
fundum, sem eru einu sinni á ári
og fjalla m.a. um reikninga safn-
aöanna og annaö þess háttar.
Hefur reyndar komið til tals aö
fella héraösfund undir aðalfund
Safnaöaráðs og mundi aö þvi
nokkur hagræöing. A vegum
Safnaðaráðs starfa nokkrar
nefndir, fjalla þær m.a. um
æskulýösmál og er formaður
hennar séra Karl Sigurbjörns-
son, fjármál safnaöa og er Her-
mann Þorsteinsson formaöur
hennar, og nýskipaðar eru tvær
nefndir, er önnur þeirra undir
forsæti dr.Björns Björnssonar
að athuga meö fjölskylduráð-
gjöf, á vegum safnaða og pró-
fastsdæmis, en hin var skipuð
eftir höföinglega gjöf Gisla Sig-
urbjörnssonar og konu hans til
aö vinna að málefnum aldraöra
i prófastsdæminu, en formaður
þeirrar nefndar er Arni Gunn-
arsson, alþingismaöur.
Fjárskortur hefur háð mjög
starfi safnaðanna sem prófasts-
dæmisins og komið I veg fyrir
það, að reynt sé að beina safn-
aðarstarfinu inn á ennþá fjöl-
breyttara svið. Þó er alltaf veriö
að reyna ýmislegt, og mikil bót
var aö þvi, þegar fjárveiting
fékkst til þess að ráöa skrif-
stofustúlku i hálft starf á vegum
prófastsdæmisins og hefur
reynslan sannaö, að þetta var
ekki aöeins mikill léttir, heldur
nauösynlegt til samræmingar
og auðveldunar á starfi presta
og safnaða. Og mundi að visu
ekki þykja mikið I boriö, enda
þótt prófastur og hinir 18 aðrir
prestar, auk safnaöanna, hefðu
aðgang að slikri skrifstofuað-
stoö fimm morgna I viku.
Þessara timamóta I sögu
Reykjavikurprófastsdæmis og
safnaðanna þriggja verður
minnzt á margvislegan hátt. A
sunnudaginn var voru hátiöar-
samkomur á vegum Hallgrims
og Nessafnaða og á sunnudag-
inn kemur, hinn 2. nóvember i
Laugarneskirkju. Þá munu
prestar einnig við guösþjónust-
ur á sunnudaginn kemur minna
á málefni prófastsdæmisins og
siðdegis veröur efnt til hátiöar-
samkomu I Bústaðakirkju fyrir
presta og sóknarnefndir auk
nokkurra gesta, þar á meðal
kirkjumálaráðherra, biskupa
og oddvita borgarstjórnar
Reykjavikur og bæjarstjórna
Kópavogs og Seltjarnarness. A
samkomunni verður ýmislegt
rifjað upp úr sögu prófastsdæm-
is og safnaöa, auk þess sem tón-
list verður flutt og veitingar
frambornar. Eru slik mót og
samkomur ágætt tæki til efling-
ar samstöðu og virkjunar safn-
aðanna allra til hinna stærri
átaka.
(Frá dómDrófasti).
Allur akstur
krefst
varkárni
fS
Ytum ekki barnavagni
á undan okkur við
aðstæður sem þessar