Fréttablaðið - 11.06.2007, Síða 4
NÝJAR OG BETRI JÚMBÓ
HYRNUR Í NÆSTU VERSLUN
Sex manns fundust
látin af skotsárum í íbúðarhúsi í
Delavan í Wisconsin, um 60 km
suðvestur af Milwaukee, að því er
lögregla greindi frá í gær. Auk
þess fannst tveggja ára stúlku-
barn með skotsár á brjósti í bíl
skammt frá húsinu. Stúlkan er nú
þungt haldin á sjúkrahúsi.
Lík fólksins fundust er lögregla
rannsakaði tilkynningu frá
nágrönnum um að skothvellir
hefðu heyrst í húsinu á laugar-
dagskvöld.
„Þetta er harmleikur. Þetta
versnar stöðugt,“ sagði íbúi úr
nágrenninu sem stóð og baðst
fyrir á vettvangi.
Sex manns
finnast skotin
Kona slasaðist alvarlega í
umferðarslysi sem varð á
Landsvegi við Galtalæk um
kvöldmatarleytið á laugardag.
Konan var farþegi í jeppa sem
valt en ekki er vitað hvernig
slysið bar að. Maður sem einnig
var í jeppanum slapp með
minniháttar meiðsli. Þau eru bæði
erlendir ferðamenn.
Fólkið var flutt með sjúkrabíl
til Reykjavíkur og liggur konan
nú á gjörgæsludeild Landspítal-
ans.
Erlendir ferða-
menn veltu bíl
Ríkisstjórnarflokkar frjálslyndra og
sósíalista biðu afhroð í kosningum til belgíska
sambandsþingsins í gær, samkvæmt fyrstu tölum
eftir að kjörstöðum var lokað.
Kristilegir demókratar, burðarflokkur stjórnarand-
stöðunnar síðastliðin átta ár, unnu mikinn kosninga-
sigur og formaður flæmska hluta flokksins, Yves
Leterme, tjáði flokksmönnum sínum í gærkvöld: „Það
er kominn tími til breytinga. Þjóðin vill nýja stefnu.“
Leterme er líklegastur til að verða forsætisráðherra í
ríkisstjórn sem kristilegir færu fyrir.
Þegar hátt í helmingur atkvæða hafði verið talinn
voru kristilegir með 32,2 prósent atkvæða í flæmsku-
mælandi hluta Belgíu, sex og hálfu prósentustigi
meira en í síðustu kosningum, en Frjálslyndir, flokkur
Guy Verhofstadts forsætisráðherra, aðeins 18,7
prósent, sex prósentum minna en síðast. Sósíalistar
tapa einnig stórt í báðum landshlutum.
Hinn útlendingafjandsamlegi Vlaams Blok fékk
samkvæmt sömu tölum 19,1 prósent atkvæða og er
þar með annar stærsti flokkurinn í flæmska hluta
Belgíu, þar sem sex milljónir af alls 10,5 milljónum
Belga búa.
Leggur áherslu á að
flokkurinn sé á miðju
Valgerður Sverrisdóttir var kjörin varaformaður rússneskri kosningu á miðstjórnar-
fundi Framsóknarflokksins í gær. Hún er fyrst kvenna til að gegna þessu embætti.
Jón Sigurðsson tekur ábyrgð á ósigrinum og Guðni vill „hjartalag á vinstri væng“.
„Við erum flokkurinn á
miðjunni og viljum vera það
áfram. Það er ásókn inn á miðjuna
en við teljum að aðrir flokkar eigi
ekki erindi þangað,“ segir Val-
gerður Sverrisdóttir, en hún var í
gær kjörin varaformaður Fram-
sóknarflokksins á miðstjórnar-
fundi á Grand Hótel.
Valgerður segir flokkinn ætla
að stunda „ábyrga stjórnarand-
stöðu“ og velja sín baráttumál
vandlega. Hún óskar nýrri ríkis-
stjórn alls hins besta en sýnist
stjórnin ekki hafa farið allt of vel
af stað.
Varaformaðurinn segist hafa
fundið fyrir miklum stuðningi á
fundinum og þar hafi komið fram
mikil samstaða og baráttuvilji.
„Nú horfum við beint áfram,“
segir hún.
Valgerður fyllir nú það skarð
sem Guðni Ágústsson skildi eftir
23. maí þegar hann tók við for-
mennskunni af Jóni Sigurðssyni.
Fráfarandi formaður, Jón Sig-
urðsson, leit í ræðu yfir síðustu
mánuði og hrakfarir flokksins í
kosningum. „Ábyrgð mín sem
þáverandi formanns á þessum
óförum er mikil,“ sagði hann. Frá-
farandi formaður skilgreindi
flokkinn sem miðjuflokk „í and-
stöðu gegn sambræðingi hægri-
manna og jafnaðarmanna“. Aðrir
sæju um vinstri vænginn.
Um leið lýsti hann nýrri ríkis-
stjórn sem hægrisinnaðri og sagði
efst á baugi í velferðarmálum að
„losa um sameiginleg samhjálpar-
kerfi þjóðarinnar“. Jón kvað og
fylgistap flokksins eiga sér langan
aðdraganda. Fram undan væri
hins vegar „sóknar- og sigur-
ganga“ því þjóðin þyrfti á flokkn-
um að halda.
Guðni Ágústsson, formaður
flokksins, var einnig bjartsýnn í
sínu ávarpi. Hvatti hann félaga
sína til að kveðja „sundurlyndis-
fjandann sem leikur alla grátt“ og
horfa fram á veginn. Tryggja þyrfti
að skellur síðustu kosninga endur-
tæki sig ekki. Framsókn gæti byggt
upp fylgi á höfuðborgarsvæðinu,
það hefði Sigurður heitinn Geirdal
sannað í Kópavogi. Formaðurinn
reifaði erfið mál síðustu stjórnar
en rakti ósigurinn einnig til þess að
innri samstaða flokksmanna hefði
brostið. Hann sagði flokkinn eiga
að vera til miðju „með hjartalag
yfir á vinstri væng“.
Guðni lét ekkert uppi um hvort
hann byði sig fram til áframhald-
andi formennsku á næsta flokks-
þingi.
Danskir skipverjar, sem
var rænt undan ströndum Sómalíu
fyrir viku, eru enn í haldi mann-
ræningja. Dönsk yfirvöld segja að
ekki sé vitað annað en að þeim líði
vel. Þau gáfu hvorki nánari
skýringar á líðan þeirra né hvort
lausnargjalds hefði verið krafist.
Skipið Danica White var á leið
frá Dubai til Kenía þegar því var
rænt á alþjóðlegu hafsvæði ásamt
danskri fimm manna áhöfn þess.
Bandarískt orrustuskip skaut
nokkrum viðvörunarskotum yfir
skipið eftir að því hafði verið rænt.
Orrustuskipið hætti eftirförinni
þegar Danica White sigldi inn í
sómalska landhelgi.
Yfirvöld segja
að þeim líði vel
Hvatningarverðlaun og
nemendaverðlaun menntaráðs
Reykjavíkurborgar voru afhent í
fimmta sinn við hátíðlega athöfn í
Ráðhúsi Reykjavíkur í gær.
Hvatningarverðlaun mennta-
ráðs hlutu Grandaskóli fyrir
verkefnið Tónlistaruppeldi,
Víkurskóli fyrir verkefnið
Námsmarkmið í lestri og Öskju-
hlíðarskóli fyrir verkefnið Tumi
og fjársjóðurinn. Viðurkenningar
menntaráðs hlutu Húsaskóli fyrir
verkefnið Lifandi bókasafn,
Laugarnesskóli fyrir verkefnið
Katlagil og Foldaskóli fyrir
verkefnið Flott án fíknar. Alls
fengu þrjátíu grunnskóla-
nemendur í Reykjavík afhent
nemendaverðlaun menntaráðs.
Hvatningar-
verðlaun afhent