Fréttablaðið - 15.06.2007, Síða 30

Fréttablaðið - 15.06.2007, Síða 30
BLS. 2 | sirkus | 15. JÚNÍ 2007 S jö leikkonur sem hafa verið áberandi í íslensku leikhúslífi undanfarinár, eiga von á barni og verða ekki með á komandi leikhús- ári. Fimm þeirra, Arnbjörg Hlíf Vals- dóttir, Jóhanna Vigdís Arnardóttir, Nanna Kristín Magnúsdóttir, Marta Nordal og Álfrún Örnólfsdóttir, eru fastráðnar í Borgarleikhúsinu en tvær, Unnur Ösp Stefánsdóttir og Hildi- gunnur Þráinsdóttir, eru með lausa samninga. Sirkus ræddi við Guðjón Pedersen, leikhússtjóra Borgarleik- hússins, sem verður fyrir mikilli blóð- töku næsta vetur. „Ég vil byrja að taka það fram að þetta er ekki mér að kenna,“ segir Guðjón og hlær. „En að öllu gríni slepptu þá er alveg ljóst að það er heilmikið púsluspil að koma saman næsta leikári. Ég ætla ekki að segja það hafi skapast neyðarástand en þetta er sérkennileg staða sem birtist manni á vordögum svo ekki sé fastar að orði kveðið. Einu stundina eru þær inni á skrifstofunni minni að biðja um bestu hlutverkin en þá næstu eru þær óléttar,“ segir Guðjón. Hann hefur gert sitt til að ná tökum á aðstæðum og segist hafa brýnt þær sem eftir eru til að vera þægar í sumar. „Brigitta Birgisdóttir er til að mynda að fara að gifta sig í sumar og ég bað hana um að vera rólega á brúðkaups- nóttina. Ég má bara ekki við meiru,“ segir Guðjón sem þarf líka að horfa á eftir tveimur karlmönnum, leikaran- um Birni Inga Hilmarssyni og Kára Gíslasyni, forstöðumanni ljósadeild- ar, í fæðingarorlof. „Ég er hlynntur því að við fjölgum mannkyninu og hamingjusamur fyrir hönd stúlknanna en þetta er fjári mikið púsluspil sérstaklega þar sem við verðum með mörg verk frá fyrra ári á sýningarskránni næsta vetur,“ segir Guðjón. oskar@frettabladid.is SJÖ LEIKKONUR ERU ÓLÉTTAR OG VALDA LEIKHÚSSTJÓRUNUM HÖFUÐVERK HINAR VERÐA AÐ VERA ÞÆGAR PÚSLUSPIL Guðjón Pedersen, leikhússtjóri Borgarleikhússins, er hamingjusamur fyrir hönd hinna barnshafandi kvenna en segir það mikið púsluspil að raða í hlutverk fyrir næsta leikár. Á flottasta Porsche-jeppa landsins Hinn 28 ára gamli Jón Sigurðsson, sem er aðstoðarfor- stjóri FL Group, ekur um á flottasta Porsche Cayenne jeppa landsins nú um stundir. Jón fékk bílinn frá vinnuveitendum sínum nú í mars en hann er af gerðinni Cayenne Turbo með rúmlega 600 hestafla vél. Bíllinn er svartur að lit og þykir að sögn kunnugra vera öflugri en sams konar bíll sem Róbert Wessman, forstjóri Actavis, keypti sér fyrir tveimur árum. Sá bíll kostaði um 20 milljónir og herma heimildir að bíll Jóns hafi ekki kostað undir 25 milljónum þegar allir aukahlutir eru taldir með. Baltasar og Lilja selja Næpuna Hjónin Baltasar Kormákur og Lilja Pálmadóttir hafa auglýst til sölu neðri hluta Skálholtsstígs 7 sem í daglegu tali kallast Næpan. Um er að ræða neðri hæð og kjallara, alls um 226 fermetrar, en á hæðunum tveimur fyrir ofan býr Guðjón Már Guðjónsson, einatt kenndur við Oz. Baltasar og Lilja vilja fá 79 milljónir fyrir eign sína en húsið er eitt það merkileg- asta í Reykjavík. Það var byggt árið 1903 af Magnúsi Stephensen og flutti hann inn í það eftir að hann lét af störfum sem landshöfðingi. Setuliðið hafði bækistöð í húsinu á stríðsárunum og síðar rak Náttúrulækningafélag Íslands matstofu þar eftir því sem fram kemur í Fasteignablaði Moggans í morgun. Söguelskendur ættu að skoða þetta hús. Með gervisvani á tjörninni Jóhannes Jónsson, einatt kenndur við Bónus, stendur í stórræðum þessa dagana við byggingu á glæsivillu í Vaðlaheiðinni með stórkostlegu útsýni yfir Akureyri. Landareignin er ekki síður glæsileg, með mikilli og langri innkeyrslu og fagurri tjörn þar sem svanir og endur una glöð við sitt. Ljósmyndari Sirkuss komst þó að því um daginn á ferð sinni um Norðurland að ekkert lífsmark er með svönunum tveimur og öndunum á tjörninni. Jóhannes sagði við blaðamann Sirkus að hann hefði ekki hugmynd hvernig stæði á því að gervisvanir og - endur svömluðu um í tjörninni hans. „Ég er ekki búinn að fá húsið afhent. Þú verður að spyrja verktakana að þessu,“ sagði Jóhannes. B olli Thoroddsen, varaborgarfull-trúi Sjálfstæðisflokksins og fyrr- verandi formaður Heimdallar, er byrjaður að vinna sem fangavörður á Litla-Hrauni. Hann kláraði verkfræði frá Háskóla Íslands með sóma í febrú- ar og ákvað að skella sér í fanga- vörsluna í sumar frekar en að vinna á einhverri verkfræðistofu. „Það er til nóg af fólki til að reikna út burðarþol,“ segir Bolli og hlær. „Það vantar sár- lega fangaverði og þetta var eitthvað sem mig langaði til að gera. Ég hef verið með annan fótinn í stjórnmálum og þau snúast um hvernig hægt sé að gera samfélagið betra. Afbrot eru hluti af þjóðfélaginu og ef einstaklingar villast af leið er mikilvægt að þeir eigi greiða leið inn í þjóðfélagið á nýjan leik. Mig langaði til að kynna mér þennan málaflokk, sótti um starf og fékk það,“ segir Bolli. Hann byrjaði í starfinu fyrir tveim- ur vikum og segir að hann hafi uppgötvað það sér til mikillar gleði að aðbúnaður fanga væri almennt góður. „Það sem kom þó mest á óvart er að samskipti fanga og fangavarða einkennast af vinsemd og gagnkvæmri virð- ingu. Það er nauðsynlegt til að menn eigi möguleika að koma út sem betri menn,“ segir Bolli. Laun fangavarða hafa töluvert verið í umræðunni undanfarið enda ekki um hálaunastarf að ræða og Bolli játar því að hann sé ekki í þessu launanna vegna. „En ég sé ekki eftir því að hafa valið mér þetta sumarstarf. Þetta verð- ur lærdómsríkur tími,“ segir Bolli. Bolli verkfræðingur í fangavörslu á Litla-Hrauni LÆRDÓMSRÍKT Bolli segist hafa sótt um vinnu sem fangavörður til að kynnast þessum málaflokki betur. SIRKUSMYND/GVA ALLIR VINIR Bolli segir gagnkvæma virðingu og vinsemd ríkja á milli fanga og fangavarða. R óbert Wessman, forstjóri Actavis, er mikill áhugamaður um hrað- skreiða bíla eins og komið hefur kom í Sirkus. Róbert á einn öflugasta Porsche-jeppa landsins sem er sér- smíðaður og rúm 750 hestöfl en hann bætti um betur á dögunum og keypti sér rétt rúmlega 900 hestafla Porsche 911 Turbo frá Bandaríkjunum. Bíll- inn, sem er árgerð 1995, var sérsmíð- aður upp í 900 hestöfl af Bandaríkja- manni og herma heimildir Sirkuss að Róbert hafi borgað um fimm milljónir fyrir bíllinn. Þetta trylli- tæki mun þó sjálfsagt aldrei koma til landsins því Róbert fer oft til útlanda til að keyra á kappakst- ursbrautum og verður Porsche- inn væntanlega notaður til slíks aksturs. Hann hentar að minnsta kosti ekki vel á vegum Íslands. Actavis-forstjóri keypti 900 hestafla Porsche sportbíl 900 HESTÖFL Bíllinn sem Róbert keypti er 900 hestöfl sem er með því kraftmesta sem gerist í fólksbílum. EINN SÁ KRAFTMESTI Porsche Cayenne jeppi Róberts er hlaðinn aukabúnaði og einn dýrasti og kraftmesti Porsche-jeppi landsins. ELSKAR HRAÐA Actavis- forstjórinn Róbert Wessman vill keyra hraðskreiða Þú færð flottustu óléttufötin hjá okkur. Stærðir xs-xxl einnig mikið úrval í stærðum 46-54 Opnunartími: Mán- fös 11-18 • Laugardaga 11-16

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.