Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.06.2007, Qupperneq 80

Fréttablaðið - 15.06.2007, Qupperneq 80
Íþjóðfélagsumræðunni er oftar en ekki talað um „þær þjóðir sem Ís- lendingar vilja bera sig saman við“. Hingað til hef ég ekki heyrt minnst á Aserbaídsjan í þeim flokki en upp á síðkastið hefur þó komið í ljós að Íslendingar eiga ýmislegt sam- eiginlegt með Aserum. Við erum í öðru sæti á eftir þeim á lista yfir þær þjóðir sem stela mestum hug- búnaði og nú deilir íslenska karla- landsliðið í knattspyrnu sæti með því aserska á styrkleikalista FIFA. Við ættum kannski að fara að tala um þá sem „frændur okkar“ við Kaspíahaf. landsliðið dúsir í 109. til 110. sæti á styrkleikalistanum og hefur aldrei verið neðar. Það er þó huggun harmi gegn að frá því á 10. áratugnum hafa tugir ríkja hlotið sjálfstæði, þar á meðal Aserbaíd- sjan, þannig að hlutfallslega erum við sennilega betur sett en þá. Það þykir hins vegar ekki boðlegt að eyríki sem telur 300 þúsund sálir eigi álíka gott landslið í fótbolta og átta milljóna þjóð í Suðvestur-Asíu. Þetta hugarfar má í besta falli kalla stórlæti, í því versta afneitun. rímar betur við mínar hugmyndir. Líklega er það ekki óáþekkt hlutskipti að vera eld- heitur stuðningsmaður íslenska landsliðsins og að eiga helgar- pabba sem á við drykkjuvandamál að stríða. Hvort tveggja veldur ei- lífum vonbrigðum en þegar maður er við það að gefa upp vonina sýnir liðið hvers það er megnugt á góðum degi. Jafntefli við Frakka er ígildi þess að fá fjarstýrðan bíl, ferð í Húsdýragarðinn og McDonald‘s að lokinni bíósýningu um sömu helgi. Landsliðið er allt í einu besti pabbi í heimi. Þangað til í næsta leik. Það getur ekki haldið hreinu og fellur. eru tveir kostir í stöðunni og báðir illir: Hinn fyrri er að leita á náðir AA-fræðanna; snúa baki við liðinu og láta það hjálpa sér sjálft. Það er svo annar handleggur hvort tólf spora kerfið sé heppilegt fyrir íþróttalið. Níunda skrefið yrði að minnsta kosti frekar tímafrekt þar sem strákarnir þyrftu að hringja í hvern einasta landsmann og biðj- ast afsökunar á jafnteflinu við Liechtenstein. Seinni kosturinn, og sá illskárri, væri að horfast í augu við að Ísland verður aldrei yfir- burðaþjóð í fótbolta. Það er ómak- legt að vera reiður út í einhvern hvers eina sök er að standa ekki undir óraunsæjum væntingum. þurfa að læra að velja sér orrustur eftir efnum. Það er ástæðulaust að láta það trufla sig þótt við deilum sæti með Aser- um á styrkleikalista FIFA, enda ekkert sem segir að við hljótum að vera betri í fótbolta en þeir. Aftur á móti höfum við allt til alls til að stela miklu meiri hugbúnaði. Hirð- um efsta sætið af Aserbaídsjan sem fyrst. Íslandbaídsjan www.uu.is Ferðaskrifstofa Innifalið: Flug, fl ugvallarskattar, íslensk fararstjórn og gisting með morgunverði. Verð miðast við að bókað sé á netinu. Ef bókað er á skrifstofu eða símleiðis er bókunargjald 2.500 kr. fyrir hvern farþega. PARQUE DEL SOL HÓTEL GALA Verðdæmi: 49.984,- - á mann m.v. 2 með 2 börn í viku. Brotttför 9. janúar. Verð á mann m.v. 2 fullorðna 62.737 Verðdæmi: 67.287,- - á mann m.v. 2 fullorðna. Brotttför 9. janúar. Í vetur verður fl ogið til Tenerife tvisvar í viku, enda skín sólin þar fl esta daga ársins. Hvergi í heiminum er jafn lítill hitamunur á sumri og „vetri“ og teljast 15 gráður vera með því allra kaldasta sem gerist. Eyjuna sjálfa þarf vart að kynna: Furuskógar og blómahöf í norðurhlutanum, magnaðar sólarstrendur í suður- hlutanum og frábær hótel þar sem öll fjölskyldan nýtur sín. Komdu til Tenerife og skemmtu þér meira. ÚRVAL ÚTSÝN ~ LÁGMÚLA 4 ~ 108 REYKJAVÍK ~ SÍMI 585 4000 ~ FAX 585 4065 ~ INFO@UU.IS Stórglæsilegt 4 stjörnu hótel, vel staðsett á Playa de las Americas og í fi mm mínútna göngufjarlægð frá ströndinni. Mjög góð sólbaðsaðstaða við hótelið, tvær stórar sundlaugar, skemmtileg barnalaug og afar góð aðstaða fyrir börnin. Fyrsta fl okks íbúðahótel, vel staðsett í einungis 300 metra fjarlægð frá strönd. Rúmgóðar íbúðir sem eru byggðar umhverfi s glæsilegt sundlauga- svæði. Frábær staður fyrir fjölskylduna þar sem öll aðstaða og þjónusta er til fyrirmyndar. FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR www.visir.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.