Fréttablaðið - 18.07.2007, Síða 14
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Alheimsmót skáta fer fram
í Englandi dagana 27. júlí
til 8. ágúst í Englandi. Með
hátíðinni er ætlunin að
fanga aldarafmæli skáta-
hreyfingarinnar ásamt því
að sýna að jarðarbúar geti
lifað saman í sátt og sam-
lyndi. Án fordóma, ofbeldis
og fátæktar.
„Þarna eru allir jafnir, án stétt-
skiptingar og fordóma,“ segir
Bragi Björnsson aðstoðarskáta-
höfðingi og aðalfararstjóri. Ríf-
lega 440 íslenskir skátar fara í
næstu viku á alheimsmót skáta
sem fram fer í Hylands-Park í
Englandi um 50 kílómetra frá
London.
Um 42 þúsund skátar frá 159
þjóðlöndum verða saman komnir
á hátíðinni. Talið er að allt að 80
þúsund gestir heimsæki mótið og
því verður heildarfjöldi þeirra
sem koma að mótinu yfir 120 þús-
und manns. Þema hátíðarinnar er
Einn heimur, eitt heiti þar sem
friður og náungakærleikur er
hafður að leiðarljósi.
Á svæðinu verða landkynning-
arbúðir þar sem öll löndin hafa
sitt eigið tjald og kynna sitt land.
„Við kynnum að sjálfsögðu hana
Björk okkar sem er einn frægasti
Íslendingurinn. Einnig ætlum við
að kynna íslensku glímuna og
lýsið ásamt vikivakadansinum,“
segir Bragi. Stoðtækjagerð Öss-
urar sýnir sérhannaða gervifæt-
ur og geta heilbrigðir prufað að
ganga á gervifótum. Það verkefni
er í sambandi við kynningu Rauða
krossins á jarðsprengjuhreinsun.
Bragi fór á alheimsmót skáta í
Chile fyrir átta árum. „Þar voru
allir vinir. Ísraelar og Palestínu-
menn sváfu í tjöldum hlið við hlið
sem og Króatar og Serbar,“ segir
hann og bætir við að hann haldi
enn sambandi við fjöldann allan
af fólki úr öllum heimshornum
sem hafa heimsótt hann til Íslands
og hann þá.
Til að gera sem flestum kleift
að komast á mótið borga ríkar
þjóðir hærra mótsgjald en þær
fátækari. „Þarna koma síðan
krakkar frá fátækum löndum og
gista kannski í tjaldi við hliðina á
Karli Svíakonungi sem hefur
verið tíður gestur á alheimsmótið
þar sem hann gistir í tjaldi innan
um aðra. Stéttaskipting þekkist
ekki,“ segir hann.
Verið að gera
mat úr engu
Sinnir trójuhestum og öðrum óþverra
Hefði ekki verið rétt
að kanna það fyrst?
Upp með sokkana í
sókn og vörn
Skátar á alheimsmóti í Englandi