Fréttablaðið - 18.07.2007, Qupperneq 31
[Hlutabréf]
Þeir hluthafar sem enn hafa ekki samþykkt
yfirtökutilboð Novators, eignarhaldsfélags
Björgólfs Thors Björgólfssonar, verða að
gera það fyrir klukkan fjögur í dag. Geri
þeir það ekki hafa þeir ekki rétt á viðbótar-
greiðslu, fari svo að Novator selji Actavis
áfram til þriðja aðila innan tólf mánaða.
Fyrsta yfirtökutilboð Novators í Actavis
kom fram nú í byrjun júní og hljóðaði upp á
0,98 evrur fyrir hlutinn. Stjórn Actavis taldi
það ekki endurspegla virði félagsins og réði
hluthöfum frá því að samþykkja. Í kjölfarið
var tilboðið hækkað í 1,075 evrur á hlutinn.
Í tilkynningu sem Novator sendi frá sér í
gær kom fram að félagið hefði náð yfirráð-
um yfir meira en níutíu prósentum hlutafjár
í Actavis. Við það mark myndaðist sölu-
skylda fyrir þá hluthafa sem ekki höfðu
samþykkt tilboð Novators.
Fresturinn rennur út í dag
Hagnaður bandaríska drykkjarvöruframleiðandans
Coca-Cola nam rúmum 111 milljörðum íslenskra
króna á síðasta rekstrarári og jókst um tæpt pró-
sent milli ára.
Sala á afurðum fyrirtækisins jókst um nítján
prósent; nam tæpum 464 milljörðum króna og
hefur ekki tekið svo stórt stökk í heil níu ár. Sér-
fræðingar þakka mikilli eftirspurn eftir hinum
nýja Coca-Cola Zero drykk.
Coca-Cola fær um áttatíu prósent tekna sinna af
sölu á drykkjarvörum og hefur sótt hratt í sig
veðrið á nýrri mörkuðum á borð við Kína og Ind-
land „Coke Zero hefur vegnað alveg ótrúlega vel“,
sagði Pete Hastings, sérfræðingur fjármálafyrir-
tækisins Morgan Keegan, og bætti við „Coke Zero
drykkurinn virðist sérstaklega hitta í mark í Evr-
ópu.“
Bréf í Coca-Cola hafa náð hæstu hæðum í Kaup-
höllinni í New York undanfarna daga. Hlutabréf í
félaginu hafa hækkað um tæp tíu prósent á árinu
og hafa ekki verið hærri í fimm ár.
Coke eykur söluna
Hlutabréf í bandaríska gosrisanum Coke
hafa ekki verið hærri í fimm ár.
Nokkur bandarísk flugfélög hafa
sótt um heimild til beins flugs
milli Bandaríkjanna og Kína.
Samgönguráðuneyti Bandaríkj-
anna fer nú yfir umsóknir og
útdeilir leyfum, að því greint er
frá í bandarískum fjölmiðlum.
Um nokkrar flugleiðir er að
ræða, eitt flug á að hefjast á þessu
ári, annað á næsta og fjórar nýjar
flugleiðir árið 2009.
Þrjú helstu flugfélög Banda-
ríkjanna keppa til að mynda um
flug sem heimila á í mars árið
2009, en það eru American Airli-
nes, dótturfélag AMA Corporat-
ion sem FL Group hefur fjárfest
í, Continental Airlines og US Air-
ways. Flugleiðirnar opnast sam-
kvæmt margra ára samkomulagi
sem stjórnvöld í Bandaríkjunum
og Kína vinna að. Flugfélög í
Bandaríkjunum vilja ólm sinna
ört vaxandi markaði í Kína, en
verða sökum samninga þjóðanna
að sækja um leyfi til flugsins til
ráðuneytisins.
American Airlines sækir um
flug milli Chicago og Peking,
Continental vill fljúga milli New-
ark og Sjanghæ og US Airways
frá Philadelphiu til Peking.
Í frétt Dow Jones fréttaveit-
unnar er í gær haft eftir tals-
manni bandaríska samgöngu-
ráðuneytisins að á næstu sex
árum muni tekjur af daglegum
flugleiðum milli Kína og Banda-
ríkjanna skila flugiðnaðinum þar
í landi allt að fimm milljörðum
Bandaríkjadala í tekjur, eða sem
nemur 300 milljörðum íslenskra
króna.
Flugfélög slást um Kínaflugið