Fréttablaðið - 01.09.2007, Síða 80
Í Ásmundarsal við Freyju-
götu opnar Listasafn ASÍ
sýningu í dag á verkum
tveggja myndlistarmanna,
Kjartans Ólasonar og Hildar
Bjarnadóttur. Sýningin bæt-
ist í flóð myndlistarsýninga
sem verða opnaðar þessa
helgi. Báðir hafa listamenn-
irnir verið við myndlist um
langt skeið: Hildur víða sýnt
undanfarið en Kjartan hefur
ekki haldið sýningu um langt
árabil.
„Ég hætti þessu í ein sjö, átta ár,“
sagði Kjartan. Hann hafði þá sýnt
verk sín oft og víða: stórar flat-
armyndir með hráu og áköfu yfir-
bragði þar sem líkamar liðu í rým-
inu. Málverk hans voru í miklu áliti
innan þess hóps sem enn hélt tryggð
við málverkið meðan önnur birt-
ingarform fóru hátt. En hann var
ekki ánægður með viðtökur: „Ég sá
engan tilgang með þessu. Um ald-
amótin fór að tröllríða öllu listalífi
einhver viðburðastefna hjá diet-lið-
inu sem réði og lék menninguna
grátt, einkum myndlistina. Þessi
viðburðamenning náði hámarki
menningarborgarárið og hefur ekki
minnkað síðan.“
Kjartan segist hafa látið tilleið-
ast að setja sýningu sína upp: „Þetta
er lítil sýning, nánast stubbar. Ég
leiddist út í þetta aftur, fór að
teikna, bæði með blýanti og kolum
á pappír og beint á plötur. Ég vinn eftir gömlum mælikvörðum, reyni
að ná núönsum og fínheitum eins
og menn gerðu áður. Svo eru þarna
í Ásmundarsal ljósmynd og vegg-
verk, ég veit eiginlega ekki hvað á
að kalla það: þetta er einhvers
konar hræ undir gleri.“ Kjartan er
fæddur 1955. Hann er menntaður
við Myndlista- og handíðaskóla
Íslands og Empire State College í
New York.
Samvistum við Kjartan í Ásmund-
arsal er Hildur Bjarnadóttir. Á sýn-
ingunni í Listasafni ASÍ sýnir Hild-
ur verk þar sem grunnhugmyndir
myndlistar og hefðir textílhand-
verks eru til umfjöllunar. Hún
vitnar í málverkshefðina en er jafn-
framt að skoða handverk kvenna á
fyrri tímum eins og hún hefur
löngum gert áður. Útkoman er verk
sem virðast bera keim af naum-
hyggju, en hafa víðtæka skírskotun
þegar nánar er gáð.
Hildur útskrifaðist frá Listahá-
skóla Íslands árið 1992. Tveimur
árum seinna hóf hún nám við Pratt
Institute í New York sem hún lauk
með MFA 1997. Verk eftir Hildi eru
m.a. í eigu Listasafns Íslands og
Listasafns Reykjavíkur og hún
hefur haldið margar einkasýningar
og tekið þátt í samsýningum á
Íslandi og í Bandaríkjunum.
Safnið er opið alla daga nema
mánudaga frá kl. 13 til 17 og sýn-
ingunni lýkur 23. september.
Í dag er opnuð sýning á nýjum
málverkum Aðalheiðar Val-
geirsdóttur í gallery Turpentine
Ingólfsstræti 5. Sýningin ber
yfirskriftina „Vendipunktar“
sem vísar til viðfangsefnis verk-
anna og vinnuaðferðar. Aðal-
heiður notar punktatækni til að
kanna hreyfingu í tíma og rúmi.
Iðandi form og fletir svífa um á
myndfletinum í leit að nýjum
leiðum.
Gallerí Turpentine hefur
verið starfandi um nokkurt
skeið og vakið athygli áhuga-
manna um myndlist en síðustu
misseri hafa smærri sýningar-
salir í Reykjavík látið undan
síga og tveir lokað.
Auk sýningarhalds selur
Turpentine verk yngri og eldri
myndlistarmanna.
Opið þriðjudaga til föstudaga
klukkan 12-18, laugardaga 12-
17. Einnig er opið eftir
samkomulagi.
Iðandi punktaform
Opið hús í Borgarleikhúsinu
13.30 í Salnum
Opið hús í Salnum sem nú fær
liðstyrk Sparisjóðs Kópavogs.
Vetrardagskrá kynnt og miðasala
opnar. Allir velkomnir inn úr
rigningunni.