Fréttablaðið - 18.09.2007, Page 7
DAGSKRÁ
12:30 Móttaka
13:00 Setning ráðstefnunnar
13:10 Mannauður og áskoranir 21. aldarinnar
- Dr. Svafa Grönfeldt og Atli Atlason
13:40 Adjusting to the World of Work for Creating
a Competitive Advantage - Dr. Dominique Turcq
14:50 Kaffihlé
15:20 The Future of Leadership - Sir John Whitmore
16:30 Umræður
17:00 Ráðstefnulok
Ráðstefnustjórn: Dr. Margrét Jónsdóttir
HVER ER ÞINNAR GÆFU SMIÐUR?
Samkeppnin um hæfasta starfsfólkið harðnar hröðum skrefum. Tæknibyltingar, hækkandi
menntunarstig, minnkandi tryggð, kröfur um sveigjanleika og nýr alþjóðlegur vinnumarkaður eru
aðeins forsmekkur þeirra breytinga sem eru að verða á íslensku atvinnulífi. Er þitt fyrirtæki viðbúið
þessari þróun?
Á ráðstefnunni gefst einstakt tækifæri til að skyggnast inn í framtíðina með tveimur af fremstu
sérfræðingum heims á sviði stjórnendaþjálfunar og rannsókna á vinnumarkaði.
ALÞJÓÐLEG RÁÐSTEFNA Á NORDICA
25. SEPTEMBER 2007
BARÁTTAN UM
BESTA FÓLKIÐ
Dr. Svafa Grönfeldt og Atli Atlason
„Mannauður og áskoranir 21. aldarinnar“
Dr. Svafa Grönfeldt, rektor Háskólans í Reykjavík og Atli Atlason, framkvæmdastjóri
starfsmannasviðs Landsbankans opna ráðstefnuna og deila sinni sýn á helstu
áskoranir sem blasa við íslensku atvinnulífi á 21. öldinni.
Dr. Dominique Turcq
„Adjusting to the World of Work for Creating a Competitive Advantage“
Dr. Dominique Turcq er meðal fremstu sérfræðinga heims í málefnum alþjóðlegs
vinnumarkaðar. Hann hefur einstaka yfirsýn yfir strauma og stefnur í atvinnumálum
á heimsvísu og innsýn í fjölbreytilegar þarfir fyrirtækja, enda hefur hann helgað sig
rannsóknum, stefnumótun og viðskiptaþróun á þessu sviði um árabil.
Sir John Whitmore
„The Future of Leadership“
Sir John Whitmore er frumkvöðull á sviði stjórnendaþjálfunar. Hann vakti fyrst athygli
sem Evrópumeistari í kappakstri en skaust upp á stjörnuhimininn með bók sinni
Coaching for Performance, sem hefur verið þýdd á yfir tuttugu tungumál. Sir John
Whitmore var nýlega útnefndur sem sá fremsti á sviði stjórnendaþjálfunar í Bretlandi
af blaðinu The Independent.
Verð: 18.000 kr.
Skráning á www.hr.is eða skraning@ru.is