Fréttablaðið - 18.09.2007, Side 32
18. SEPTEMBER 2007 ÞRIÐJUDAGUR4 fréttablaðið gæludýr
Lögreglan á Srí Lanka hefur
beðið gæludýraeigendur í land-
inu að gefa lögreglunni hund-
ana sína svo hægt sé að þjálfa
þá til lögreglustarfa. Glæpatíðni
í landinu er há og er talið nauð-
synlegt að lögreglan fái aukinn
liðsafla með vel þjálfuðum lög-
regluhundum.
Hundarnir sem valdir verða
til verksins eru sendir í æfinga-
búðir þar sem við tekur sex mán-
aða þjálfun. Nú eru 170 lögreglu-
hundar í landinu sem notaðir eru
til ýmissa verka. Um 25 hunda-
eigendur hafa boðið fram aðstoð
gæludýra sinna og af þeim hafa
átján verið valin til framhalds-
þjálfunar. Lögreglan vonast til
að fá til sín um fimmtíu hunda í
þessu átaki.
Á Srí Lanka eru 2,3 milljónir
hunda og þar búa 19,5 milljónir
manna.
Gæludýr til vinnu
í lögreglunni
Flækingshvolpar á strætum Kólombó á Srí Lanka. Lögreglan þar í landi leitar nú
eftir hundum til að þjálfa upp og nota sér til aðstoðar. NORDICPHOTOS/AFP
Dalsmynni *116 Reykjavík, Sími:566-8417 Fax:5668457 hundagalleri@simnet.is, www.dalsmynni.is
Við ræktum: Papillon, Chihuahua, Pomeranian, Japanese Chin, Pug, French bulldog, Cavalier King Charles, Spaniel, Miniature Pinscher, Miniature Púðli, Pekingese, Silky Terrier
Smáhundaræktun
Ljósmyndarinn Ragnheiður
Guðmundsdóttir, oftast kölluð
Heiða, var að eignast hvolpa af
Shar-Pei kyni. Foreldrarnir eru
rúmlega eins árs hreinræktaðir
verðlaunahundar af góðum
ættum. Heiða hefur í nógu að
snúast í umönnun hvolpanna
auk þess sem hún á þrjá aðra
hunda.
„Þetta er mikil vinna og maður
gerir ekki mikið annað á meðan.
Það þarf að standa í því allan
daginn að vigta og sjá hvort þeir
séu að þyngjast. Svo er oft gott
eftir smá tíma að gefa með en það
fer eftir þyngdinni,“ segir Heiða.
Hvolparnir fæddust fyrir tveimur
vikum og voru upphaflega fimm
talsins en einn drapst. En hvernig
hundar eru Shar-Pei hundar?
„Þetta eru krumpudýr. Þeir
fæðast eðlilegir og eftir því sem
þeir stækka verður húðin alltaf
meiri. Þegar hundarnir eru orðnir
um mánaðargamlir þá fara þeir
að vaxa upp í húðina aftur. Á
vissu tímabili eru þeir rosalega
krumpaðir og stíga ofan á sitt eigið
skinn. Þetta nær þá bara allt saman,
skottið og lappirnar eru bara í einni
kássu,“ lýsir Heiða glettin.
Shar-Pei hundar eru uppruna-
lega frá Kína en þeir hundar sem
til eru í Evrópu eru flestir komnir
af átján hundum sem fluttir voru
til Ameríku fyrir mörg hundruð
árum. Heiða segir enn fremur
að hundar af þessu kyni séu
mjög húsbóndahollir, hlýðnir og
gáfaðir.
„Þeir opna dyr og tala mikið með
hljóðum og læra strax hvað má og
hvað má ekki. Ég á Labradorhund
á svipuðum aldri og það tók mun
lengri tíma að aga hann. Þessum
hundum finnst hrikalegt að láta
skamma sig og eru því helst ekki
að gera neitt af sér. Þeir þvælast
heldur ekki í burtu. Þegar þeir eru
orðnir stálpaðir þarf lítið að hafa
fyrir þeim þar sem þeir fara bara
tvisvar á ári úr hárum og bjarga
sér vel sjálfir.“
Öfugt við Labradorinn aðlagast
Shar-Pei hundar eigandanum.
Ef eigandinn er latur verða þeir
eins en ef eigendurnir eru virkir
verða hundarnir það líka. Þeir
þurfa í raun bara þá hreyfingu
sem eigandinn veitir. Hins vegar
þarf að gæta hvolpanna vel og
vandlega.
„Þessir hundar fá oft öndunar-
örðugleika og augnsjúkdóma út
af krumpunum því þeir eru bæði
krumpaðir að utan og innan. Þeir
þurfa því að fæðast með góð
öndunarfæri. Það þarf að sjá til
þess að þeir séu alveg þurrir og
setja þá á stað þar sem þeir kólna
ekki og enginn dragsúgur er. Þeir
þurfa líka að fá nóg að drekka,“
segir Heiða.
Nú er einn hvolpurinn lasinn og
hann á mjög erfitt með andardrátt
og því þarf að gefa honum
penisillín, nefdropa, augndropa
og hunang til að styrkja hann og
aukamjólk sem Heiða býr til sjálf
úr eggjarauðum. Spurð hvort
þessir hundar veikist oft segir
Heiða: „Yfirleitt deyja hvolparnir
strax ef það er eitthvað að þeim
en ef maður grípur inn í er maður
í raun að taka völdin. “
Hundarnir fara með Heiðu í
vinnuna og tíkin Sparta hefur mjög
gaman af að sitja fyrir og reynir
að troða sér inn á myndirnar við
hvert tækifæri. Hún tekur á móti
gestum í stúdíóinu og fylgist
með.
„Það hjálpar oft til að hafa hana,
sér í lagi þegar ég er að mynda börn
því hún situr við brjóstkassann
á mér og þá fylgjast börnin með
henni og horfa í myndavélina,“
segir Heiða stolt.
Heiða ætlar að velja hundunum
heimili þegar að því kemur og fer
þá í hönd mikið ættleiðingarferli
þar sem hún mun íhuga ýmsa
þætti. Hundar af þessu kyni kosta
um 250.000 krónur.
Þrátt fyrir alla fyrirhöfnina
myndi Heiða þó ekki vilja sleppa
þessari lífsreynslu.
„Það er yndislegt að eiga þá.
Maður situr bara allan daginn og
gónir og getur ekki látið þá í friði.
Svo koma gestir og þeir eru sjúkir
í þá og allir búnir að panta sér
hvolp,“ segir Heiða alsæl.
hrefna@frettabladid.is
Hugljúf krumpudýr
Systkinakærleikurinn er augljós.
Heiða fer oft með hundana í vinnuna í ljósmyndastúdíóið en nálgast má myndir eftir
Heiðu á heimasíðunni www.heida.is.