Fréttablaðið - 18.09.2007, Page 64
Per Carlén kennir Guðlaugi að spila á línunni
Meistaradeildin hefst að
nýju í kvöld með nokkrum athyglis-
verðum leikjum. Helst ber að
nefna að Liverpool á erfiðan úti-
leik gegn Porto, Chelsea mætir
Rosenborg á heimavelli og AC
Milan hefur titilvörn sína á heima-
velli gegn Benfica.
Fróðlegt verður að sjá hvort að
Liverpool nái að hnekkja á því taki
sem Porto virðist hafa á enskum
liðum á heimavelli sínum, Dreka-
leikvanginum, en Porto hefur ekki
tapað þar í síðustu níu leikjum
sínum gegn enskum liðum. Liver-
pool verður án John Arne Riise,
Mohamed Sissoko og Harry
Kewell, en Fabio Aurelio verður í
hópnum á ný eftir meiðsli.
Chelsea verður að teljast sigur-
stranglegt gegn Rosenborg á
heimavelli sínum Stamford Bridge
en José Mourinho, þjálfari
Chelsea, á þó von á erfiðum leik.
„Þeir eru litla liðið í riðlinum
sem engin pressa er á og þess
vegna verður þetta eflaust erfiður
leikur fyrir okkur.“
Ekki er víst hvort Didier Drogba
verði leikfær með Chelsea, en
Frank Lampard verður líklega
klár í slaginn á nýjan leik eftir
meiðsli.
AC Milan hefur titilvörn sína
gegn Benfica á heimavelli sínum
San Siro í kvöld og stefnir liðið
væntanlega á að verða fyrst til að
vinna Meistaradeildina tvö ár í
röð síðan keppnin hófst með
núverandi sniði árið 1993.
AC Milan var síðasta liðið til að
vinna Evrópukeppni meistaraliða
tvö ár í röð, þegar liðið vann keppn-
ina árin 1989 og 1990. Benfica,
með Rui Costa fyrrverandi
leikmann AC Milan innanborðs,
hefur enn fremur ekki sótt gull í
greipar ítalskra liða undanfarin ár
og tapað í átta af síðustu níu heim-
sóknum sínum til Ítalíu.
AC Milan verður að öllum lík-
indum án Andrea Pirlo, sem er að
ná sér af meiðslum og Benfica mun
eflaust sakna miðjumannsins Petit
sárt, en hann verður frá keppni á
næstunni vegna meiðsla.
AC Milan hefur titilvörnina gegn Benfica
ÁRMÚLA 11 | Sími 568-1500 | Lónsbakka | Sími 461-1070 | www.thor.is
Loftpressur
Mikið úrval loftpressa fyrir
iðnfyrirtæki, iðnaðarmenn og í
bílskúrinn. Hagstætt verð.
Valur er Íslandsmeistari
kvenna í þriðja sinn á fjórum árum
eftir 10-0 sigur á Þór/KA í
lokaleiknum.
Valsliðið setti með því nýtt
markamet því mörkin urðu alls 88,
einu meira en liðið skoraði í fyrra.
Margrét Lára skoraði þrennu í
gær og bætti einnig markamet
leikmanns um fjögur mörk, Vals-
liðið bætti stigamet um fjögur stig
og var síðan aðeins einu marki frá
því að jafna metið yfir bestu
markatöluna. Mörkin í leiknum
voru flest af glæsilegri gerðinni
en þau fallegustu skoruðu bak-
verðirnir Hallbera Gísladóttir og
Sif Atladóttir með þrumuskotum.
Málfríður Sigurðardóttir skoraði
tvö skallamörk, Katrín Jónsdóttir
kom Valsliðinu á bragðið eftir átta
mínútna leik og þær Vanja
Stefanovic og Nína Ósk Kristins-
dóttir skoruðu eitt mark hvor.
„Það voru vissulega vonbrigði
að detta út úr bikarnum en að
vinna Íslandsmeistaratitlinn er
alltaf toppurinn. Stór hluti hópsins
er búinn að vera saman í fjögur ár
og við erum búnar að vinna þrjá
Íslandsmeistaratitla,” sagði Elísa-
bet Gunnarsdóttir, sem hefur
þjálfað Valsliðið öll þessi fjögur ár.
„Þetta er sætasti sigurinn á mínum
ferli,“ segir Elísabet og bætir við:
„Við erum með rosalega sterka
liðsheild, er með sigurvegara í lið-
inu sem kunna að vinna og svo frá-
bært þjálfaralið. Við erum fjögur
að vinna saman í þessu og ég hef
lagt mikla áherslu á að hafa sterkt
þjálfaralið í kringum hópinn sem
er jafnframt stærri en hann hefur
verið áður. Við höfum verið að
vinna með 20 leikmenn og sam-
keppnin er gríðarleg hörð bæði
inn í hóp og inn í liðið. Það sést
kannski best á því að Nína Ósk
Kristinsdóttir sem var að berjast
um bronsskóinn er búin að vera út
úr liði,“ segir Elísabet, sem veit
hver var mikilvægasti tíma-
punkturinn fyrir Valsliðið í
sumar.
„Ósigurinn á móti Breiðabliki
var vendipunkturinn á okkar tíma-
bili. Ég var hræðileg í öllum undir-
búningi fyrir þann leik og mig var
farið að skorta hungur og gleði og
það smitaðist út til leikmannana.
Við komust að sameiginlegri niður-
stöðu þá að það væri tími til að
gera eitthvað í hlutunum og eftir
þann góða fund þá höfum við
spilað frábærlega,“ sagði Elísabet
en frá þessu bikartapi í átta liða
úrslitum 12. júlí hafa Valsstelp-
urnar unnið tólf leiki í röð í deild
og Evrópukeppni með markatöl-
unni 75-5.
Margrét Lára Viðarsdóttir bætti
þremur mörkum við markamet sitt
í gær auk þess að leggja upp þrjú
til viðbótar. Hún endaði sumarið
með 38 mörk í 16 leikjum og hefur
þar með skorað 179 mörk í 86
leikjum fyrir Val í öllum keppnum
á síðustu þremur sumrum.
Elísabet Gunnarsdóttir hefur gert Val þrisvar sinnum að Íslandsmeisturum á síðustu fjórum árum en segir
titilinn sem liðið vann í gær þann sætasta. Margrét Lára bætti þremur mörkum við markametið sitt.
„Ég er himinlifandi með
sumarið, fyrir utan bikarleikinn á
móti Breiðabliki kannski, en ég
held að hann hafi hjálpað okkur
til þess að verða hungraðri fyrir
deildartitlinum,“ sagði Margrét
Lára Viðarsdóttir eftir sigur Vals
í gær en hún er óviss um fram-
haldið.
„Ég sagði í fyrra að ég væri
búin að spila síðasta tímabilið með
Val, þannig að ég held að það sé
best að segja sem minnst um það
núna. Næsta verkefni er Evrópu-
keppnin með Val og við erum í
riðli með sterkum liðum, en ef við
ætlum að verða Evrópumeistarar
verðum við að vinna sterk lið,
þannig að þetta er mikil áskorun,“
sagði Margrét.
Óvíst með
framhaldið
Katrín Jónsdóttir,
fyrirliði nýkrýndra Íslands-
meistara Vals í fótbolta, telur
möguleika Valsstúlkna ágæta í
Evrópukeppni kvenna. „Við
förum í alla leiki til þess að ná í
þrjú stig og við sjáum til hversu
langt það skilar okkur, en að mínu
mati er allt opið í þessum riðli.“
Valsstúlkur leika í milliriðli í
Evrópukeppninni sem fram fer í
Belgíu dagana 11.-16. október
næstkomandi.
Allt opið í Evr-
ópukeppninni