Fréttablaðið - 05.10.2007, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 05.10.2007, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000 FÖSTUDAGUR 5. október 2007 — 270. tölublað — 7. árgangur LÖGREGLUMÁL Sérsveit ríkislög- reglustjóra er nú með í prófun og til athugunar hvort lögregla eigi að taka í notkun svokallað rafstuðtæki. Tæki af þessu tagi eru notuð við löggæslu í ýmsum löndum, svo sem Bandaríkjunum, Bret- landi og Kanada, að sögn Páls Winkel aðstoðarríkislögreglu- stjóra. „Þessi tilraun hér er á algjöru frumstigi og alls óvíst um fram- haldið,“ segir hann. „Þá skal það undirstrikað að verði þessi tæki einhvern tímann tekin í notkun hjá lögreglunni þá verða þau ein- ungis notuð til að koma í veg fyrir stórfelldar líkamsmeiðingar. Þau yrðu ekki tekin í notkun nema í samráði við heilbrigðisyfirvöld.“ Raftæki af þessari tegund eru útbúin hágæða myndavél sem tekur upp atburð á vettvangi. Sér- stakur hugbúnaður í tækinu skrá- ir upplýsingar um notkun hverju sinni, svo sem dagsetningu, tíma og fjölda rafpúlsa. Tækið er búið tveimur litlum pílum sem áfastar eru gikknum með vír. Pílunum er skotið í þann sem gera á óvirkan, og berst þá í hann rafstraumur, sem veldur því að viðkomandi missir vald á vöðvahreyfingum sínum. - jss / sjá síðu 18 Nýr varnarbúnaður til reynslu hjá ríkislögreglustjóra: Sérsveitin prófar rafstuðtæki NATALIA CHOW Kennir austur- lenska matargerð • matur • tíska • tilboð Í MIÐJU BLAÐSINS Þótt Natalia Chow Hewlett sé þekktari sem söngkona og kórstjóri en kokkur þá kann hún ýmislegt fyrir sér í eldamennskunni. Hún ætlar að deila þekkingu sinni á austurlenskri matar-gerð með þeim sem vilja kom átil h var ekki mikið mál fyrir mig að svissa yfir. Ég sakna kjötsins ekki neitt.“Natalía er frá Sjanghæ en hefur búið á Íslandi í fimmtán ár. Hún hefur ekki sí tárangur i Austurlenskt á Álftanesi Ný sendingGallabuxur og bolir á 20% afslætti tíska&fegurð SKIPT UM HLUTVERKÚr jakkafötumí b FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 2007 TÍSKA & FEGURÐ Axel í Sævari Karli og Bubbi í Brim skipta um stíl Sérblað um tísku FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG www.kopavogur.is Landssöfnun Kiwanis 4.-7. október 2007 Lykill að lífi HVESSIR Í KVÖLD Í dag verður vaxandi norðaustlæg átt á Vest- fjörðum, 15-23 m/s í kvöld. Annars staðar hægari vindur. Rigning eða skúrir. Hiti 4-10 stig að deginum. VEÐUR 4    Fór loksins í fríið 27 árum eftir að Þorgeir Ástvalds- son söng Ég fer í fríið tók hann sér loks almennilegt frí. FÓLK 50 Heit höfuðföt Hattar og höfuð- skraut voru áberandi á tískuvikunni í París. Henta vel kulvísum Íslendingum. TÍSKA 38 MATUR Íslendingar sporðrenna mörg þúsund samlokum á degi hverjum. Fyrirtækið Sómi, sem hóf starfsemi árið 1978 með því að smyrja um 200 samlokur í dag, smyr í dag um tuttugu þúsund fyrir sjoppur um land allt. Byrjað er að smyrja klukkan tíu að kvöldi og svo er smurt í gegnum nóttina til að landinn geti notið ferskrar samloku í morgun- eða hádegismat. Langlokurist með skinku, osti og pepperoni er langvinsælust en annars hafa Íslendingar mest dálæti á roastbeef- og hangi- kjötssamlokum. Nánar um samlokuframleiðslu Sóma á síðu 2 í Allt-hluta blaðsins. Sómasamlokur: Tuttugu þúsund smurðar á dag GÚRKAN GÓÐ Ingvar Snær og Jónas Þór gæddu sér á gúrkubitum með léttri hvítlauksídýfu á stóra grænmetisdeginum sem hald- inn var í Háteigsskóla í Reykjavík í gær. Þar stóðu nemendur í fjórða bekk fyrir grænmetiskynningu og sögðu yngri nemendum frá öllum þeim mikilvægum vítamínum sem eru í grænmeti. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Blómlegar í menningunni Gerður Kristný og Katrín Jakobsdótt- ir verða saman á skjánum í vetur. FYLGIR FRÉTTA- BLAÐINU Í DAG 5. OKTÓBER 2007 Ríka og fræga fólkið flykkist í Fossvoginn Ingibjörg Reynis skrifaði bók með dóttur sinni … Katrín Jakobsdóttir og Gerður Kristný eiga margt sameiginlegtBLÓMLEGAR Á SKJÁNUM P IP A R • S ÍA • 7 1 1 6 7 Prodomo er ný verslun sem býður nýjustu hönnun í ljósum og rafbúnaði og háþróaðan stjórnbúnað fyrir lýsingu, tónlist mynd og hita. Hlíð VEÐRIÐ Í DAG Stefán Logi stóð sig best Stefán Logi Magnús- son markvörður KR var besti leikmaður 13. til 18. um- ferðar að mati Fréttablaðsins. ÍÞRÓTTIR 44 ORKUMÁL Vilhjálmur Þ. Vilhjálms- son borgarstjóri óskaði eftir því við Bjarna Ármannsson, stjórnar- mann Reykjavik Energy Invest (REI) í gærkvöldi að „eitt gilti fyrir alla starfsmenn Orkuveitu Reykjavíkur“ í forkaupum á hlut- um í REI. Guðmundur Þóroddsson, sem er í leyfi frá störfum sem forstjóri Orkuveitunnar og er starfandi forstjóri REI, hefur fengið að kaupa að nafnvirði fyrir 23 millj- ónir á genginu 1,3. Þrír jarðfræð- ingar, tveir verkfræðingar og einn viðskiptafræðingur áttu að fá að kaupa fyrir 7,8 milljónir á sama gengi. Almennir starfsmenn áttu loks að fá að kaupa hluti að virði 100, 200, og upp í 300.000 krónur. Þegar Fréttablaðið spurði Vil- hjálm í gærdag hvort pólitískur vilji væri fyrir þessum kjörum hjá starfsmönnum Orkuveitunnar hjá REI, sagðist borgarstjóri vilja hug- leiða það og fara yfir með við- komandi aðilum. Niðurstaðan var framangreind beiðni til stjórnar- for manns REI. Bjarni Ármannsson sagði stjórn félagsins myndu fara yfir málið. „Ég heyri hugmyndir borgar- stjóra. Ákvarðanir gerast bara ekki svona,“ sagði hann í gær- kvöldi. Spurður hvort þetta myndi eiga við Bjarna sjálfan, sem hefur keypt hlut fyrir 1,5 milljarða í REI, sagðist Bjarni hvorki vera starfs- maður REI né Orkuveitunnar; hann væri í stjórn REI. Hvort til greina kæmi að taka upp samninga við þá starfsmenn REI sem nú þegar hafa undirritað kaupsamninga, sagði Bjarni að hann vildi bíða með frekari ummæli. - kóþ / sjá síður 4 og 6 Borgarstjóri vill jafna kaup starfsmanna á sérkjörum Borgarstjóri ræddi við Bjarna Ármannsson stjórnarformann REI í gærkvöldi og óskaði eftir því að allir starfsmenn fengju að kaupa jafnan hlut í fyrirtækinu. „Ákvarðanir gerast bara ekki svona,“ segir Bjarni. SÓMASAMLOKUR Íslendingar eru ákaflega hrifnir af samlokum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.