Fréttablaðið - 05.10.2007, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 05.10.2007, Blaðsíða 18
fréttir og fróðleikur Hringdu í síma ef blaðið berst ekki Heilsað upp á náttúruna Miklar tækninýjungar hafa rutt sér til rúms hjá lög- reglunni hér á landi á und- anförnum árum og jafnvel mánuðum. Allar miða þær að einu marki, að gera starf lögreglumanna öruggara og markvissara og auka öryggi hins almenna borgara. Fréttablaðið átti þess kost að heimsækja miðstöðina í Skógar- hlíð þar sem eru til húsa bíla- og fjarskiptamiðstöð ríkislögreglu- stjóra, samhæfingarstöð, neyðar- línan 112, landhelgisgæslan og almannavarnadeild ríkislögreglu- stjóra. Það fyrirkomulag, að hafa alla þessa starfsemi á einum stað, hefur gefist mjög vel að sögn Har- aldar Johannessen ríkislögreglu- stjóra, þar sem það auðveldar og flýtir fyrir öllum samskiptum þegar mikið liggur við, svo sem við viðamiklar leitir að týndu fólki, í stóreldsvoðum, skipssköð- um eða náttúruhamförum. Lögregla um allt land hefur yfir að ráða samtals 165 bílum og 11 mótorhjólum. Sífelld endurnýjun er í gangi. Á árinu hafa verið keypt 18 ökutæki, þar af fjögur ný bif- hjól. „Einhvern tíma var það mark- mið sett, sem þótti þá kannski dálítið kappsfullt, að ná endurnýj- unartíma bílaflotans niður í fimm ár,“ segir ríkislögreglustjóri, sem setti bílamiðstöðina í Skógarhlíð á fót á sínum tíma. „Meðalaldur hans nú er 4,3 ár, fyrir utan 6-7 gamla jálka sem menn hafa viljað halda í.“ Tæknibúnaður í lögreglubílun- um hefur verið aukinn verulega á síðustu árum og mánuðum. Svo- kallaður eyewitness-búnaður er nú kominn í bíla hjá öllum lög- regluembættum á landinu. Með honum er hægt að taka upp í mynd og hljóð öll samskipti lögreglu- manns, hvort sem hann er staddur í bílnum eða utan hans, og ein- staklings sem hann hefur afskipti af. Samskiptin eru síðan sett á diskling sem fylgir skýrslu um viðkomandi mál. „Þetta eykur tvímælalaust öryggi um að rétt sé staðið að málum hverju sinni,“ segir ríkis- lögreglustjóri. Hann bætir við að lögreglustjórar telji að málum fyrir dómi fækki með tilkomu þessa búnaðar. Þá hefur ný tegund öndunarsýn- amæla verið tekin í notkun. Þeir eru það nákvæmir að ekki er nauð- synlegt að senda ökumenn í blóð- prufu eins og áður. Allur þessi nýi tækjabúnaður eykur verulega málshraða og tryggir rétta máls- meðferð. Nú er unnið að því að tölvuvæða bifreiðar lögreglunnar þannig að í náinni framtíð geti þær gagnast sem færanlegar lögreglustöðvar og lögreglunni þannig skapað tækifæri til að þjónusta almenn- ing með betri hætti. Tölvubúnað lögreglu má nota til að leita upp- lýsinga í þjóðskrá, ökutækjaskrá eða öðrum gögnum lögreglunnar. Jafnframt verður hægt að ganga frá lögregluskýrslum á vettvangi. Síðast en ekki síst koma þær að gagni við leit eftirlýstra ökutækja. Í bílunum er jafnframt stafrænt götukort. Allar bifreiðar lögreglu eru búnar ferilvöktun og því getur fjarskiptamiðstöð staðsett alla lögreglubíla á landinu á tölvuskjá. Þannig er ávallt hægt að senda það ökutæki sem næst er vett- vangi í verkefni. Einnig gefur kerfið upplýsingar um stöðu öku- tækja hvort þau eru í eftirliti, for- gangsakstri og svo framvegis. Ferilvöktunarkerfi byggist á TETRA-kerfinu sem er í öllum lögreglubifreiðum í landinu. Til- koma þess er mikilvægur þáttur í því öryggishlutverki að tengja öll lögreglulið landsins við eina fjar- skiptamiðstöð. Auk þessa er hafin innleiðing hljóð- og myndupptöku við skýrslutökur hjá lögreglu. Lög- regluskólinn annast kennslu á búnaðinn. Tilgangurinn er að gefa sem skýrasta mynd af því sem fram fer, þegar skýrslur eru tekn- ar af sakborningum og vitnum. Jafnframt er tilgangurinn sá að styrkja sönnunarfærslu, tryggja réttarstöðu sakbornings og hraða meðferð sakamála. „Vissulega kostar það sitt að viðhalda og endurnýja bílaflota lögreglunnar, sem og kaup á góðum og nauðsynlegum tækni- búnaði,“ segir ríkislögreglustjóri. „Stundum örlar á þeim misskiln- ingi að þessar fjárhæðir fari til embættis ríkislögreglustjóra og séu þar. En þær renna til löggæslu í landinu öllu, til að auðvelda lög- reglumönnum að vinna sín störf og auka þar með öryggi lands- manna.“ Stóraukin tæknivæðing lögreglu Kalt stríð grannríkja í meira en hálfa öld
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.