Fréttablaðið - 05.10.2007, Blaðsíða 22
[Hlutabréf]
Gengi bréfa í Atorku hefur aldrei
verið hærra. Við lok dagsins í gær
stóð gengið í 11,10 krónum á hlut
og hafði hækkað um 8,19 prósent
innan dagsins. Þar með er gengi
félagsins strax komið yfir vænt-
ingar Greiningar Glitnis. Í nýrri
afkomuspá hennar var sex mán-
aða markgengi félagsins sett á ell-
efu krónur á hlut.
Hækkunina má rekja beint til
sameiningar orkufyrirtækjanna
Reykjavík Energy Invest og Geys-
is Green Energy. Atorka er þriðji
stærsti hluthafinn í sameinuðu
félagi með tuttugu prósenta hlut.
Gengi bréfa í FL Group, næsts-
tærsta hluthafa félagsins, hækk-
aði líka í gær eða um 1,32 pró-
sent.
Frá áramótum hefur gengi
Atorku nær tvöfaldast. Við upphaf
þessa árs stóð það í 5,86 krónum á
hlut. Haraldur Yngvi Pétursson,
sérfræðingur á greiningardeild
Kaupþings, telur hækkun félags-
ins á árinu helst að rekja til
umsvifa Atorku í Geysi Green
Energy og Promens. „Promens
hefur stækkað verulega undir
stjórn Atorku. Þá keypti félagið
Jarðboranir á réttum tíma á góðu
verði, einmitt á þeim tíma sem
græna bylgjan var að hefjast. Það
var svo sterkur leikur að selja þær
inn í Geysi.“
Atorka tvöfaldast
Bæði Englandsbanki og seðlabanki
Evrópu ákváðu í gær að halda stýri-
vöxtum óbreyttum. Vextir Eng-
landsbanka standa í 5,75 prósent-
um en á evrusvæðinu í fjórum
prósentum.
Þrýst hefur verið á Englands-
banka að lækka vextina til að koma
í veg fyrir að óróleiki á fjármála-
mörkuðum hafi neikvæð áhrif á
breskt efnahagslíf en peningamála-
nefnd bankans hefur frá vordögum
stefnt að því að ná verðbólgutölum
í Bretlandi niður að markmiðum
bankans. Evrópski seðlabankinn
hefur á móti stefnt að því að hækka
stýrivextina en ákvað að bíða um
sinn á meðan ástandið á fjármála-
mörkuðum jafnar sig.
Rýna í aðstæður
Peningaskápurinn...
Landsbankinn er líklegur til að
gera tilboð í írska sparisjóðinn
Irish Nationwide Building Society
á næstunni. Kaupverð er sagt einn
milljarður evra, 87 milljarðar
íslenskra króna. Gengi hlutabréfa í
Landsbankanum hækkaði í gær og
fór um tíma í 42,4 krónur á hlut sem
er hæsta gengi bankans frá upp-
hafi.
Þrálátur orðrómur hefur verið
um kaupin frá í maí en þá fékk
Landsbankinn HSBC, einn stærsta
banka í Evrópu, til ráðgjafar um
málið.
Þegar Landsbankinn keypti 68
prósenta hlut í írska verðbréfafyr-
irtækinu Merrion Capital fyrir
tveimur árum sagði Sigurjón Þ.
Árnason, bankastjóri Landsbank-
ans, írska fjármálamarkaðinn afar
áhugaverðan kost. Ekki náðist í þá
Sigurjón og Halldór J. Kristjáns-
son, bankastjóra Landsbankans, í
gær. Aðrir forsvarsmenn bankans
neituðu að tjá sig um málið.
Írska dagblaðið Independent
segir meiri líkur nú en áður á því að
Landsbankinn bjóði í sparisjóðinn
þar sem aðrir keppinautar íhugi að
draga sig úr tilboðsferlinu.
Sparisjóðurinn var metinn á 1,5
milljarða evra fyrir ári en verðið
hefur lækkað um rúman þriðjung
vegna hræringa á alþjóðlegum fjár-
málamarkaði upp á síðkastið.
LÍ skoðar sparisjóðskaup
Verð á írskum sparisjóði þriðjungi lægra nú en í fyrra vegna óróleika á markaði.
fax 585 6601
sími
Fram undan eru tækifæri
á hlutabréfamarkaði sam-
kvæmt nýrri spá Grein-
ingar Glitnis. Spáð er sex
prósenta hækkun úrvals-
vísitölunnar á fjórða árs-
fjórðungi.
Greining Glitnis gerir ráð fyrir að
íslenski hlutabréfamarkaðurinn
sýni hægfara batamerki á næstu
mánuðum eftir erfiða tíma undan-
farið. Þetta kemur fram í nýrri
afkomuspá sem birt var í gær
fyrir fimmtán íslensk félög. Spáð
er sex prósenta hækkun á fjórð-
ungnum og 32 prósenta hækkun
yfir árið. Fyrri spá hljóðaði upp á
45 prósenta hækkun yfir árið.
„Ástæðan fyrir því að við lækkum
spána er að við gerum ráð fyrir
töluvert minni hagnaði fyrirtækja
á þriðja fjórðungi en við höfðum
áður búist við. Það ástand sem ríkt
hefur á fjármálamörkuðum og
lausafjárskortur á heimsmarkaði
hefur haft mest að segja þar,“
segir Grétar Már Axelsson, sér-
fræðingur hjá Greiningu Glitnis
og einn höfunda spárinnar.
Í spánni er gert ráð fyrir að
birta muni til á fjórðungnum eftir
erfiðleika síðustu mánaða. Svig-
rúm muni skapast til hækkunar
þeirra félaga sem mest hafa lækk-
að að undanförnu.
Litið til næstu sex mánaða er
helstu tækifærin að finna í bréf-
um Bakkavarar, Exista, Kaup-
þings og Össurar samkvæmt
spánni. Þau félög muni öll hækka
um meira en tíu prósent. Gert er
ráð fyrir að fjármögnunarkostn-
aður fari lækkandi. Fyrirtæki geti
þá endurfjármagnað sig á eðli-
legri kjörum en nú. „Í því sam-
hengi er mest spennandi að tala
um Kaupþing og yfirtökuna á
NIBC sem mun væntanlega ganga
í gegn um áramótin,“ segir Grétar.
„Kaupþing á enn eftir að fjár-
magna hluta yfirtökunnar og
hefur nokkuð háa endurfjármögn-
unarþörf. Við búumst við að þeir
nái miklum vexti í samstæðunni
þegar markaðurinn leitar jafn-
vægis. Við sjáum því mikla hagn-
aðarmöguleika í Kaupþingi, byggt
á þeirri forsendu að markaðir leiti
jafnvægis.“
FL Group er spáð þrjátíu millj-
arða króna tapi á þriðja ársfjórð-
ungi, byggt á því að bréf félagsins
lækkuðu um sautján prósent á
tímabilinu. Þá var markgengi
félagsins, það er vænt gengi þess
eftir sex mánuði, lækkað úr 33 í
26,5. „Við gerum þó ráð fyrir að
FL Group hafi þegar hagnast aftur
um góðan hluta þess sem félagið
tapaði á þriðja fjórðungi. Þrátt
fyrir vænt tap er undirliggjandi
eignasafn gott. Það ætti að geta
gefið fjárfestum góða ávöxtun til
lengri tíma litið,“ segir Grétar.
Spá hægum bata á
hlutabréfamarkaði