Fréttablaðið - 05.10.2007, Blaðsíða 29
Núðluhúsið er með rótgrónustu
veitingahúsum borgarinnar
sem selur mat frá Austurlönd-
um. Eftir áratylft á Vitastíg
hefur það flutt sig fyrir horn
yfir í yfirgefið hreiður lóunnar í
Kjörgarði.
„Núðluhúsið opnaði fyrst í litlum
skúr á Vitastígnum þar sem einn
pínulítill trébekkur stóð framan
við afgreiðsluborðið og var þar
næstu þrjú árin,“ segir Halldór
Tryggvason, eigandi Núðluhúss-
ins, sem opnaði í vikunni í nýjum
heimkynnum á annarri hæð á
Laugavegi 59, þar sem áður var
Lóuhreiðrið.
„Við vorum komin í stökustu
vandræði á matartímum þegar
gömlu húsakynnin önnuðu engan
veginn traffíkinni því alltaf koma
fleiri og fleiri í þennan góða og
heilsusamlega mat sem Núðluhús-
ið býður upp á,“ segir Halldór þar
sem hann er í óðaönn að setja svip
Núðluhússins á nýja staðinn.
„Við keyptum Núðluhúsið fyrir
þremur árum, ég og eiginkona mín
Wanvisa Susee frá Taílandi, en við
erum þriðju eigendur veitinga-
hússins. Við felldum hugi saman
fyrir níu árum og hefur Wanvisa
búið síðustu átta ár hamingjusöm
á Íslandi. Hér ríkir taílenskt and-
rúmsloft og hingað sækir fólk sem
hefur dálæti á taílenskri matar-
gerð og menningu. Langflestir eru
afar kurteisir og ljúfir í viðkynn-
ingu þótt vissulega komi einstaka
sinnum fyrir að einn og einn sé
með skæting og leiðindi í garð
þeirra útlendinga sem vinna hér,“
segir Halldór spurður um meintan
dónaskap Íslendinga við útlend-
inga í þjónustustörfum.
„Fastakúnnar eru margir og
mörg andlit sem hafa borðað hér
frá því Núðluhúsið var í litla
skúrnum. Í húsakynnum Núðlu-
hússins síðast var eldhúsið opið
fram í salinn og sást í karókí-skjá
matreiðslumannanna sem sungu
hástöfum með yfir eldamennsk-
unni. Þá þökkuðu margir fyrir
sönginn eftir að hafa rennt niður
kræsingunum,“ segir Halldór
brosmildur innan um sæti fyrir 76
í stað sætanna 20 á gamla staðn-
um.
„Þetta er afskaplega ánægjuleg-
ur rekstur og gaman að vinna fyrir
sjálfan sig í eigin fyrirtæki, en því
er ekki að neita að þetta er rosaleg
vinna og bara frí fyrri part dags á
laugardögum og sunnudögum;
annars stendur maður vaktina alla
daga vikunnar frá morgni til
kvölds,“ segir Halldór sem skrifar
sívaxandi vinsældir Núðluhússins
á afbragðs taílenska matreiðslu-
menn, úrvals hráefni og verð í lág-
marki.
„Kjúklingur í cashew-hnetusósu
er langvinsælasti réttur hússins
og er orðinn klassík. Og nú þegar
við erum komin í stærra húsnæði
munum við bæta við matseðilinn.
Mataræði Taílendinga byggist upp
á grænmeti, ávöxtum og fiski, en
þeir borða minna af kjöti. Við
munum einnig halda í kaffimenn-
ingu Lóuhreiðursins gamla og
bjóða upp á nýlagað kaffi og sæta-
brauð á morgnana og um miðjan
daginn. Fólk mun því kannast við
sig á nýja staðnum, hvort sem þeir
voru fastakúnnar Núðluhússins
eða Lóuhreiðurs.“
Töfrandi núðlur Tælands
Uppskrift Natalíu
Ertu starfandi í greininni e›a í grein henni tengdri?
Hefur flú áhuga á a› ljúka flví námi sem flú hófst?
Bættu um betur – Kjöti›n er tilraunaverkefni sem mi›ar a› flví a›
meta færni sem vi›komandi b‡r yfir inn í skólakerfi›, óhá› flví
hvernig hennar hefur veri› afla›. Markmi›i› er a› flátttakendur
í verkefninu ljúki sveinsprófi.
Áhugasömum er bent á a› hafa samband vi› I‹UNA – fræ›slu-
setur í síma 590-6400 og fá frekari uppl‡singar um verkefni›. fiar
er einnig hægt a› skrá sig á kynningarfund sem ver›ur haldinn
fimmtudaginn 11. október kl. 16.00 a› Hallveigarstíg 1, 101 Reykjavík.
Nánari uppl‡singar er a› finna á www.idan.is. Einnig er hægt
a› senda tölvupóst á netfangi› radgjof@idan.is.
Hófst flú nám í kjöti›n
en laukst flví ekki?
Menntaskólinn
í Kópavogi
E
in
n
t
v
e
ir
o
g
þ
r
ír
4
26
.0
0
0
Hefur flú starfa› sem fljónn? Starfar flú vi› greinina
e›a í tengdum greinum?
Hefur flú áhuga á a› ljúka flví námi sem flú hófst?
Bættu um betur – Framrei›sla er tilraunaverkefni sem mi›ar a›
flví a› meta færni sem vi›komandi b‡r yfir inn í skólakerfi›, óhá›
flví hvernig hennar hefur veri› afla›. Markmi›i› er a› flátttakendur
í verkefninu ljúki sveinsprófi.
Áhugasömum er bent á a› hafa samband vi› I‹UNA – fræ›slu-
setur í síma 590-6400 og fá frekari uppl‡singar um verkefni›. fiar
er einnig hægt a› skrá sig á kynningarfund sem ver›ur haldinn
fimmtudaginn 11. október kl. 16.00 a› Hallveigarstíg 1, 101 Reykjavík.
Nánari uppl‡singar er a› finna á www.idan.is. Einnig er hægt
a› senda tölvupóst á netfangi› radgjof@idan.is.
Hófst flú nám í framrei›slu
en laukst flví ekki?
Menntaskólinn
í Kópavogi
E
in
n
t
v
e
ir
o
g
þ
r
ír
4
26
.0
0
1