Fréttablaðið - 05.10.2007, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 05.10.2007, Blaðsíða 30
Íslenskir fatahönnuðir vekja víða athygli fyrir iðju sína. Einn þeirra er Ragnhildur Benediktsdóttir sem býr í Suður-Þýskalandi og selur allt jafnóðum og hún er búin að sauma. „Í Þýskalandi heiti ég bara Hilda enda geta Þjóðverjar hvorki borið fram skírnarnafn mitt né föður- nafn. Foreldrar mínir kölluðu mig líka alltaf Hildu,“ segir Ragnhildur brosandi. Hún kveðst aðallega sauma flíkur úr ullarefni sem hún kaupir frá Ítalíu, einkum jakka og pils og nokkrar gerðir af sportleg- um karlmannsjökkum. „Flíkurnar eiga að geta gengið við allt og fólki á alltaf að líða vel í þeim,“ segir hún. Spurð hvaðan hún fái hug- myndir að sniðunum svarar hún. „Þær koma úr mínum kolli. Ég horfi á efnið, þreifa á því og læt hugmyndirnar gerjast þar til þær verða fullskapaðar.“ Ragnhildur ólst upp í Reykjavík en flutti 25 ára til Karlsruhe í Suður-Þýskalandi. Þar er hún í fullu starfi við háskólann, sem upp- lýsingafulltrúi við arkitektadeild- ina. Hönnunin er í hjáverkum enn sem komið er en hvenær skyldi áhuginn á henni hafa kviknað. „Ég lærði tískuhönnun í Þýskalandi með þungamiðju á prjón og vann við hana í nokkur ár hjá stóru fyr- irtæki. Hætti þar því mér fannst vinnan kosta of mikið af sálinni. Þetta er harður bransi en ég lærði mikið. Ég lagði fagið á hilluna um tíma en byrjaði aftur fyrir nokkr- um árum. Hef alltaf saumað eigin föt og oft verið spurð hvar ég hafi keypt þau. Þannig má segja að ég hafi auglýst fötin mín sjálf.“ Hingað til kveðst Ragnhildur hafa verið með framleiðsluna á eldhúsborðinu en nú verði hún að láta eitthvað frá sér því hún anni ekki eftirspurn. Vinsældirnar megi meðal annars rekja til þess að fólk geti tekið fötin út úr skáp og verið vel klætt í þeim án þess að vera allt of fínt. „Markmið mitt er að hanna föt sem fólk lætur ekki frá sér fyrr en þau eru komin í tætlur,“ segir hún. Vill að fólki líði vel Kynning á nýju línunni í okkar Showroom Flísfóðraðir ullarvettlingar Handprjónasamband Íslands Skólavörðustíg 19 • sími: 552 1890 www.handknit.is ICE FASHION Íslensk hönnun Mörkinni 6, Símí 588-5518 Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga frá kl. 10-16 Auglýsingasími – Mest lesið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.