Fréttablaðið - 05.10.2007, Blaðsíða 32
Einkaþjálfarinn Sölvi Fannar
Viðarsson er ánægðastur með
kaupin sem hann gerði þegar
hann fjárfesti í Pajero-jeppan-
um sem hann ekur um á í dag.
„Jeppinn er 2001 árgerð og er
alveg yndislegur og rosalega gott
að keyra hann,“ segir Sölvi og
bætir því við að þetta sé alveg tví-
mælalaust besti bíll sem hann hafi
eignast. „Það er innan við ár síðan
ég fékk mér bílinn sem er aðeins
upphækkaður á 33 tommu dekkj-
um og heldur helstu aksturseigin-
leikum fólksbíls.“
Önnur góð kaup sem Sölvi
Fannar hefur gert er tölvan sem
hann átti en var stolið frá honum í
París. „Það var Sony-fartölva með
sautján tommu skjá og var alveg
hrikalega skemmtileg. Ég skrifaði
meðal annars bókina, sem var
gefin út fyrir síðustu jól, á þessa
tölvu. Eins hef ég skapað ýmislegt
á þessa tölvu eins og ljóð og annað
slíkt en heilmikið af því hvarf að
eilífu með tölvunni því ég hafði
gleymt að afrita það,“ segir Sölvi
Fannar.
„Ég er vanur að vera mjög vand-
fýsinn á allt sem ég kaupi og jafn-
vel aðeins of stundum. Verstu
kaupin eru samt alveg tvímæla-
laust þegar ég keypti risastóra
Bratz-rútu á eBay, sem ég ætlaði
að gefa dætrum mínum í jólagjöf í
fyrra. Rútan kostaði alveg helling
af peningum en kom svo aldrei.
Það eru klárlega verstu kaup sem
ég hef gert,“ segir Sölvi og bætir
við: „Ég hafði nú sem betur fór
keypt fleiri gjafir handa þeim en
þetta hefði verið alveg punkturinn
yfir i-ið,“ segir Sölvi áður en hann
brunar af stað á jeppanum sínum.
Jeppinn er yndislegur
Ferða- og útivistarverslunin
Everest mun á næstunni
flytja sig um set og rýmir
því til í verslun sinni að
Dalvegi 18 í Kópavogi.
Lokadagar rýmingarsölunnar
eru runnir upp og boðið er upp
á tuttugu til sjötíu prósenta
afslátt af öllum vörum verslun-
arinnar. Útivistarfatnaður,
vetrarfatnaður, línuskautar,
gönguskór og skólafatnaður er
á frábæru verði og alveg kjörið
að galla alla fjölskylduna upp
fyrir veturinn og næsta sumar
í Everest.
Everest
flytur
Tengi er með tilboðsdaga þessa viku
og veitir 25 prósenta afslátt af völd-
um vörum.
„Þetta eru meðal annars baðinnréttingar
og blöndunartæki, sturtuklefar og sal-
erni,“ segir Árni Birgisson, markaðs-
stjóri Tengis, þegar forvitnast er um það
sem í boði er á tilboðsdögum Tengis
þessa viku. Hann hefur líka vörumerkin
á hraðbergi. Blöndunartækin eru frá
Mora Cera og Mora Izzy og baðinnrétt-
ingarnar, salernin og sturtuklefarnir eru
frá Ifö. Hann nefnir líka Kaldewei-bað-
ker sem góðan kost fyrir þá sem eru að
koma sér upp nýju baðherbergi eða end-
urnýja það sem fyrir er.
Tilboðsdagar Tengis
Tilboð í verslunum A4.
Nú eru tilboð á skrifstofuvörum í verslunum A4-skrifstofuvara, að
Borgartúni 29 og Smiðjuvegi 5. Borðyddari sem yddar
tvær stærðir af blýöntum, það er 8 og 12 mm, er
með 37 prósenta afslætti. Verð áður 2.699 krónur,
nú 1.699 krónur. Heftari sem heftar allt að tólf
blöð í einu, ásamt pakka með 1.000 heftum á 36
prósenta afslætti. Áður á 469 krónur, nú á 299
krónur. Gatari sem gatar allt að 25 blöð í einu
var áður á 1.199 krónur en er nú á 779 krónur.
Afsláttur á ritföngum
15% afsláttur til 20. október
Barðinn ehf | Skútuvogi 2 | 104 Reykjavík | Sími 568 3080 | www.bardinn.is
Nýbarði | Lyngási 8 | 201 Garðabæ| Sími 565 8600
Sólning | Smiðjuvegi 68-70 | Kópavogi | sími 544 5000 | www.solning.is
Með Hankook dekk undir bílnum ertu öruggari í vetur.
Hankook vetrardekk tryggja gott grip allan veturinn við
síbreytilegar íslenskar aðstæður.
Þú færð Hankook dekk í Barðanum á sérstöku
hausttilboðsverði.
Hankook
- öryggi og gæði
15%
afsláttu
r
Sölustaðir:
Laugavegi 51 • s: 552 2201
WWW.GAP.IS
ALVÖ
RU FJ
ALLA
HJÓL
Auglýsingasími
– Mest lesið