Fréttablaðið - 05.10.2007, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 05.10.2007, Blaðsíða 38
BLS. 6 | sirkus | 5. OKTÓBER 2007 „Ég byrjaði ekki sjálf að sauma fyrr en árið 2000. Þangað til plataði ég mömmu til að gera það fyrir mig því ég nennti hvorki né kunni að gera það sjálf. Hins vegar hafði ég hugmyndirnar,“ segir Kolbrún Ýr Gunnarsdóttir fatahönnuður sem hannar undir merkinu Kow. Kolbrún Ýr, sem er lærður textílkennari, og vinkona hennar, Íris Eggertsdóttir, reka saman verslunina KVK á Laugaveginum. Þegar hún er beðin um að lýsa stíl sínum segir hún mikilvægt að fötin þrengi ekki að henni. „Ég vil líka að hægt sé að nota fötin á fleiri en einn veg. Ég er dálítið litaglöð í bland við svarta litinn og hef gaman af björtum litum. Eins vinn ég og vel mér föt út frá formum; hringir, kassar og þríhyrningar heilla.“ Aðspurð segist Kolbrún Ýr aðallega klæðast eigin hönnun eða hönnun Írisar en það komi líka fyrir að hún kaupi sér föt. „Ég hef mjög gaman af því að kaupa mér föt og skó. Skóna kaupi ég oftast í Kron og svo tapar maður sér í H&M erlendis. Ég á líka nokkrar flottar flíkur úr KronKron svona þegar ég leyfi mér að splæsa á mig og svo kaupi ég einstaka sinnum í Nakta apanum. Annars klæðist ég mest eigin hönnun.“ Kolbrún segir Íslendinga upp til hópa frekar einsleita þegar kemur að klæðnaði. „Ef spes er í tísku eru allir spes, það er svolítið þannig. Maður sér þetta best ef maður fer til útlanda og kemur aftur heim. Það eru samt nokkrar stíltegundir í gangi. Sjálf reyni ég að velja mér föt sem ég veit að klæða mig óháð því sem þykir vinsælast hverju sinni. Ég reyni að hafa það sem útgangspunkt,“ segir Kolbrún en bætir við að auðvitað sé mikið af fallegu og smart klæddu fólki á Íslandi. Þegar Kolbrún er innt eftir því hvað verði í tísku í haust og vetur segist hún sjálf vera veikust fyrir yfirflíkum. „Mér finnst slár og ullarflíkur voðalega skemmtilegar núna, bæði köflóttar, einlitar og röndóttar. Sniðin eru dálítið víð og kósí svo ég er ánægð með þessa tísku.“ indiana@frettabladid.is KOLBRÚN ÝR GUNNARSDÓTTIR HANNAR UNDIR MERKINU KOW. KOLBRÚN GENGUR AÐALLEGA Í EIGIN HÖNNUN EN ÞEGAR HÚN FER TIL ÚTLANDA MISSIR HÚN SIG ALLTAF Í H&M. KOLBRÚN OPNAÐI FATASKÁPINN FYRIR SIRKUS. EF SPES ER Í TÍSKU ERU ALLIR SPES UPPÁHALDSKJÓLLINN „Þessi kjóll er frá mér og er í miklu uppáhaldi enda ofsalega þægilegur. Beltið er afmælisgjöf frá mágkonu minni en Íris Eggertsdóttir bjó til spöngina handa mér. Skórnir eru úr Kron og eru flottustu fínu skórnir mínir.“ FLOTT HÁRSPÖNG „Ég gerði þessa spöng og finnst hún mjúk og æðisleg og skemmtileg tilbreyting frá svarta hárskrautinu mínu.“ ÆÐISLEG SLÁ Sláin er hönnun Kolbrúnar en sláin er köflótt og flott eins og sjá má og hægt að nota sumar sem vetur. SKEMMTILEGUR HÚMOR „Ég fékk þessa háhyrningaháls- festi í jólagjöf frá manninum mínum. Festin er úr Aurum. Það er ótrúlega skemmtilegur húmor í þessari festi.“ Við hjá Móður Náttúru sérhæfum okkur í gerð næringarríkra, ljúffengra og hollra grænmetisrétta úr fyrsta flokks hráefni. Við leggjum metnað í að gæði handverksins og heimalagaða bragðið haldi sér í gegnum alla framleiðsluna og skili sér beint á matarborðið heima. Hollur matur fyrir alla fjölskylduna P L Á N E T A N 2 0 0 7
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.