Fréttablaðið - 05.10.2007, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 05.10.2007, Blaðsíða 40
BLS. 8 | sirkus | 5. OKTÓBER 2007 U m miðjan október hefst þátturinn Mannamál sem verður í umsjón Sigmundar Ernis Rúnarssonar en Gerð- ur Kristný og Katrín Jakobsdóttir verða fastir gestir í þættinum. Þar verða þær með neytendavæna menn- ingarúttekt. Þær ættu að fara létt með það, enda menningarlegar með ein- dæmum og með höfuðið rétt skrúfað á búkinn. Svo hafa þær mikinn húmor fyrir sjálfum sér. Gerður Kristný hefur skrifað þrettán bækur, verið leikhús- gagnrýnandi á Tímanum og lokið námi í frönsku og bókmenntafræði í Háskólanum. Katrín er með próf í íslenskum bókmenntum auk þess sem hún hefur unnið við bókaútgáfu. Það kemur upp úr dúrnum að Katrín las meðal annars yfir bók Gerðar, Land hinna týndu sokka, sem kom út í fyrra. Katrín hefur því verið konan á bak við tjöldin. Á núverandi vinnustað Katr- ínar, Alþingi, hefur Gerður Kristný líka unnið á bak við tjöldin en meira um það síðar. Aftur að þættinum, hvernig kom það til að þið voruð beðnar um að vera þar með menningarumfjöll- un? Gerður Kristný: „Sigmundur Ernir hringdi í mig og bað mig um að vera með í þættinum og sagði jafnframt að Katrín Jakobsdóttir yrði líka. Svo bætti hann því við að hún væri reyndar ólétt og ætti að eiga um áramótin. Ég sagði honum að ég væri í nákvæmlega sömu stöðu. Sigmundi fannst bara skemmti- legra að við værum báðar óléttar.“ Katrín: „Ég las nú reyndar einhvers staðar að óléttar konur væru heimsk- ari en aðrar. Greindarvísitala þeirra lækkaði víst á meðgöngu. Ég var alveg búin að ákveða að ef það gengi illa í spurningaþættinum, Útsvari, ætlaði ég að tefla þessu fram. Við ætlum sem sagt að reyna að tala um listir og menningu þrátt fyrir óléttuna.“ Gerð- ur og Katrín hlæja báðar. Í þættinum verða þær ýmist saman eða hvor í sínu lagi og að þeirra sögn verður formið frjálslegt og því sérlega neytendavænt. Þegar Gerður Kristný og Katrín eru spurðar að því hvort þær þekkist vel neita þær því en segjast heilsast. Þegar málin eru rædd nánar kemur í ljós að leiðir þeirra hafa margoft legið saman. Katrín: „Ég man eftir Gerði Kristnýju á Fróðaárshátíðum í gamla daga þegar hún var ritstjóri Mannlífs. Þá var ég kærasta Davíðs Þórs Jónssonar sem vann á sama stað. Það var reyndar ekki alveg í fyrsta skipti sem ég varð vör við hana því ég hafði lesið ljóða- bók eftir hana. Það má því segja að ég hafi kynnst Gerði Kristnýju í gegnum ljóðin hennar.“ Gerður Kristný: „Ég kannast við Katrínu úr fjölmiðlum og í gegnum pólitíkina. Svo var hún í áðurnefndu Útsvari fyrir skömmu þar sem hún keppti fyrir hönd míns sveitarfélags og stóð sig með mikilli prýði. Í kosn- ingunum í vor fór ég þess síðan á leit við hana að ég fengi að vera flokks- gæðingur en ég hef ekki enn fengið neitt svar frá henni. Líklega er hún ennþá að hugsa málið.“ Katrín: „Ég tók vel í þetta, en ég er ennþá að velta því fyrir mér hvað ég ætti að láta hana gera. Hvort ég ætti að láta búa til barmmerki með henni eða hvort ég ætti að láta búa til sér- stakan búning fyrir hana.“ Gerður Kristný: „Mér líst vel á bún- ing, hann gæti verið grænn vinstra megin.“ Gerður veit greinilega alveg hvernig hún vill hafa þetta. Katrín við- urkennir þó að þessu fylgi allt of mikill saumaskapur. Þegar þær eru spurðar að því hvað flokksgæðingur sé fara þær að hlæja. Gerður Kristný: „Mér er eiginlega sama hvað það merkir. Mér fannst þetta bara svo flottur titill og skemmti- lega myndrænt orð en líklega er ég of löt og hyskin til að uppfylla þær skyld- ur sem flokksgæðingar þurfa að inna af hendi.“ Samstiga í barneignumn Gerður Kristný og Katrín eiga að fæða börn sín með um tveggja vikna milli- bili. Katrín er sett um áramótin en Gerður Kristný um miðjan janúar. Fyrir eiga þær sinn hvor soninn. Gerð- ur Kristný á Skírni sem verður þriggja ára 29. desember en Katrín á Jakob sem verður tveggja ára 3. desember. Hamingjan skín af þeim og þær bera bumburnar vel. Gerður Kristný viður- kennir að henni finnist hún svolítið virðuleg með bumbuna og Katrín tekur undir það. Gerður Kristný: „Mér hefur alltaf fundist ég ætti að fá einhvert gott embætti þegar ég er ólétt eins og til dæmis stöðu póst- og símamálastjóra. Mér finnst gaman að skrifa sendibréf og get alveg verið kurteis í síma þegar ég vil og hef því allt í það starf.“ Katrín: „Ég er alveg sammála. Ef ég væri valdameiri myndi ég veita þér eitthvert embætti. En maður er öðru- vísi þegar maður er með bumbu. Það hafa allir áhuga á líðan manns og spyrja hvernig maður hafi það. Samt er miðbik óléttunnar nú yfirleitt mjög hress tími og maður er jafnvel hressari þá en þegar maður er ekki óléttur.“ Katrín hlær. Gerður Kristný: „Auðvitað, maður hefur til einhvers að hlakka.“ Katrín: „Fólk segir líka að ég sé blómleg, það er aldrei sagt við mig nema þegar ég geng með barn.“ Talið berst að barnaafmælum en það stytt- ist í þau á heimilum þeirra. Katrín: „Þegar sonur minn varð eins árs var ég á fulli í prófkjöri og því sá tengdafjölskyldan um að baka fyrir afmælið. Ég held að það hafi verið 40 kökur ofan í tíu gesti.“ Katrín bætir því við að bræður hennar, tvíburarnir Ármann og Sverrir, hafi orðið mjög glaðir og geti ekki beðið eftir tveggja ára afmæli sonar hennar. Í þessu dreg- ur Gerður Kristný upp ljósrit úr mat- arblaði þar sem rætt er um barnaaf- mæli. Hún ætlar greinilega ekki að klikka á afmælisveisluhaldi í ár. Tengjast báðar Alþingi Alþingi var sett í vikunni og á þing- setningunni mætti Katrín í kjól með kindamynstri sem hún hafði keypt sér daginn áður. Hún viðurkennir að fata- kaup séu ekki hennar sterka hlið, það sé betra að hafa manninn með sér í þá leiðangra. „Í fyrravor var hringt í mig frá Alþingi og ég beðin um að semja handrit að skólaþingi sem verður hleypt af stokkunum von bráðar. Ég samdi meðal annars frumvörp, símtöl og tölvupósta frá kverúlöntum og lobbíistum sem reyna að hafa áhrif á þingmennina en það kemur í hlut RITHÖFUNDURINN GERÐUR KRISTNÝ OG ALÞINGISKONAN KATRÍN JAKOBSDÓTTIR EIGA FLEIRA SAMEIGIN- LEGT EN AÐ VERÐA Í ÞÆTTINUM MANNAMÁL SEM SÝNDUR VERÐUR Á STÖÐ 2 Í VETUR. ÞÆR EIGA BÁÐAR VON Á BARNI, TALA FRÖNSKU OG HAFA STARFAÐ FYRIR ALÞINGI. BLÓMLEGAR Í MENNINGUNNI M YN D /V AL LI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.