Fréttablaðið - 05.10.2007, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 05.10.2007, Blaðsíða 42
tíska&fegurð2 CARRIE FLOTT AÐ VANDA Eins og kunnugt er var ráðist í gerð kvik- myndar sem byggð er á þáttunum Sex and the City eftir að leikkonurnar Sarah Jessica Parker og Kim Cattrall grófu stríðsöxina. Tökur eru nú hafnar á mynd- inni og ljósmyndir frá tökustað farnar að leka á netið. Klæðaburður Carrie er óaðfinnanlegur að vanda og ljóst að öllu verður tjaldað til við búningahönnun myndarinnar. FLEKKLAUS HÚÐ Á FERTUGSALDRI Eftir því sem árin færast yfir, eða upp úr þrítugu, fer það að skipta konur æ meira máli að annast húðina vel en frá Elizabeth Arden og Helenu Rubinstein komu nýverið á markað krem og andlitsvatn sem leggja hönd á plóg í þessari baráttu. Kremið frá Arden hefur fengið heitið Intervene og er ætlað að hægja á öldrun húðarinnar. Prodigy andlitsvatnið frá Helenu Rubinstein er hannað til að fullkomna hreinsun húðarinnar, taka öll óhrein- indi í burtu og tryggja betri árangur gegn sýnilegum merkjum um öldrun. snyrtivörur Forsíðumynd: Valgarður Gíslason tók myndina af Axel Gómez í fötum úr versluninni Brim. Útgáfufélag: 365 - miðlar ehf, Skafta- hlíð 24, 105 Reykjavík, s. 512 5000 Ritstjórar: Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is og Emilía Örlygsdóttir emilia@frettabladid.is. Auglýsingar: Ámundi Ámundason s. 517 5724 Útlitshönnuður: Kristín Agnarsdóttir kristina@frettabladid.is. Íslenskir karlmenn vilja vera smart, þeir eru bæði sígildir og frumlegir en finnst líka gaman að prófa eitthvað nýtt. Björn Ólafsson eða Bubbi, eig- andi verslunarinnar Brim, heim- sótti Sævar Karl og brá sér í jakkaföt. Síðan tók hann á móti Axel Gómez, einum af nýjum eig- endum Sævars Karls og dressaði hann upp í brettaföt. „Jakkaföt eru lífsstíll og bjóða upp á marga möguleika. Það er hægt að vera sportlegur og dressa sig niður með bol eða skyrtu sem er opin á hálsinn. Eða nota jakk- ann til að verða fínni ásamt bindi og jafnvel klút,“ segir Axel sem sjálfur er í sígildum Armani- fötum við bláa skyrtu sem hentar fyrir viðskiptafund. Síðan dressaði hann Bubba í Etro-jakkaföt sem eru bæði sportleg og töff í senn. „Bubbi er svolítið rokkuð týpa og í þessum jakkafötum er hann töff án þess að vera dragfínn. Mark- miðið var að finna föt þar sem hann getur haldið sínum sérkenn- um og liðið vel. Síðan er hægt að nota jakkann stakan,“ segir Axel og bætir við: „Það er góð tilfinn- ing þegar maður kynnist réttu jakkafötunum enda reynum við alltaf að aðstoða fólk við valið svo því líði vel og það sé tekið alvar- lega tildæmis í viðskiptum,“ segir Axel. Bubba fannst jakkafötin mjög smart en var þó snöggur að viður- kenna að þetta væri ekki hans stíll. „Ég er oftast í þægilegum, afslöppuðum fötum frá Brim og tel mig vera með mjög flott- an stíl fyrir mann á besta aldri. Hingað kemur fólk á öllum aldri og mér sýnist fólk óhræddara við að halda sínum stíl. Enda er nauð- synlegt að vera töff sama hvað maður er gamall,“ segir Bubbi. Hann klæddi Axel í hettupeysu, skó og húfu frá Element og buxur frá Billabong. „Tískuiðnaðurinn tekur í æ meira mið af brettafatn- aði og ásamt Billabong, sem var nýlega valið flottasta tískumerki Ástralíu, erum við með tuttugu önnur brettamerki,“ segir Bubbi. Axel var hæstánægður með skiptin og gat vel hugsað sér eina eða tvær hettupeysur í skápinn. „Gæðin á fötunum í Brim eru mikil og ég gæti vel hugsað mér svona föt um helgar þegar ég tek frí frá jakkafötunum,“ segir Axel ánægður með nýja brettastílinn og bætir við: „Síðan fannst mér gaman að sjá að við Bubbi eigum sameiginlegt að vilja veita per- sónulega og góða þjónustu og tökum auk þess þarfir viðskipta- vinarins mjög alvarlega.“ rh@frettabladid.is Bindishnútur og brettabuxur Íslenskir karlmenn eru óhræddir við að feta nýjar tískuslóðir. Axel Gómez hjá Sævari Karli brá sér í brettagallann og klæddi í staðinn Björn Ólafsson hjá Brim í sportleg jakkaföt. Strákarnir komnir í brettastílinn frá Brim. Föt frá Element og Billabong sem er flaggskip verslunarinnar Brim. Íslenskir karlmenn vilja vera töff, sama hvað þeir eru gamlir að sögn Bubba í Brim sem fær til sín stráka á öllum aldri. Bubbi viðurkenndi fúslega að hann kynni ekki að hnýta bindishnút, enda á hann bara ein jakkaföt sem hann notar nánast aldrei. Björn Ólafsson, eigandi verslunarinnar Brim í fötum frá Etro og Axel Gómez, einn af nýjum eigendum Sævars Karls, í sígildum Armani-jakkafötum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI, Auglýsingasími – Mest lesið Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigi 5 • Sími 581 2141 Ný sending Síðar jakkapeysur, ullarjakkar og skyrtur 5. OKTÓBER 2007 FÖSTUDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.