Fréttablaðið - 05.10.2007, Blaðsíða 44
tíska&fegurð4
INDVERSK
INNRÁS Í PARÍS
Indverskir fatahönn-
uðir sýna í fyrsta sinn
indverska hátísku á
tískuvikunni í París.
Það þykir endur-
spegla vaxandi áhuga
Vesturlanda á ind-
verskum tískustraum-
um að síðasta og virt-
asta tískuvígi heims,
Tískuvikan í París,
hafi opnað dyr sínar
fyrir indverskum fata-
hönnuðum. Það sýnir
einnig mikilvægi Ind-
lands í alþjóðahag-
kerfinnu, þar sem
bómull er enn rækt-
uð og handverk í há-
vegum haft.
Á sunnudags-
kvöldið síðasta sýndi
Manish Arora, ungur hönnuður frá Nýju-Delí, línu sína fyrir vorið 2008.
Sýning hans þótti skynörvandi og innblásin af popp-listastefnunni,
þótt Arora hefði í engu gleymt uppruna sínum og notaði hefð-
bundnar ímyndir indverskra prinsa og prinsessa í útsaumuðu silki og
indverskri bómull. Fyrirsætur hans svifu um í ævintýraljóma íklæddar
gólfsíðum kjólum, útvíðum buxum, samfestingum og þröngum, hátt
skornum stuttbuxum í appelsínugulu, grænu, bleiku og rauðu, með
ísaumuðum perlum og pallíettum.
Næsta sunnudag heldur indverska innrásin áfram í París, þegar
fatahönnuðurinn Anamika sýnir nýjustu fatalínu sína.
APPELSÍNUHÚÐIN KVÖDD
Hver vill ekki silkislétt hörund í stað húðar
sem minnir á appelsínubörk? Nú fæst
appelsínuhúðarbani til að losna við slíkar
ójöfnur. Sculpturale frá Lancôme eykur nið-
urbrot á fitu og dregur úr þrota með því að
örva sogæðakerfið. Sentímetrum fækkar og
styrkleiki eykst er appelsínuhúðin minnkar,
húðin verður stinnari og líkaminn mótaðri.
sýningar
Dagskrárgerðarkonan Brynja Þorgeirsdóttir kveðst
lítil skartkona vera. Þó er einn gripur sem hún ber oftar
en aðra. Fallegur lítill gullhringur með þremur stein-
um sem henni var gefinn í fyrra með viðhöfn. „Það var
sonur minn, þá átta ára, sem var svona rausnarlegur,“
segir hún og svo kemur saga.
„Drengurinn hafði verið í Skotlandi á útimarkaði með
nokkur pund í vasanum, þegar hann hitti hjón sem voru
að selja gamla hluti. Hringurinn var dýr, að minnsta
kosti fyrir átta ára dreng með takmarkaða vasapen-
inga svo sonurinn tók að prútta af mikilli list. Hann
náði verðinu niður í 40 pund þegar hann bræddi hjörtu
viðstaddra með því að segjast vera að kaupa hringinn
handa mömmu sinni. Honum var sagt að þetta væri
demantshringur og ég fékk sérfræðing til skoða hann
hérna heima. Hann staðfesti að steinarnir væru ekta
demantar. Hringurinn er auðsjáanlega gamall og gull-
ið er snjáð. Ég ímynda ég mér að þetta hafi verið trúlof-
unarhringur skoskrar þvottakonu og
hermanns í fyrri heimsstyrjöldinni.
Mannsefnið hafi hinsvegar farist í
stríðinu og þvottakonan borið hring-
inn æ síðan þar til hún lést úr harmi
vegna missisins.“
Brynja Þorgeirs á
sér eftirlætishring
sem á sér sögu,
bæði sanna og
ímyndaða.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Í uppáhaldi
– djásnið mitt
„Ég á uppáhaldshring sem ég hef gengið með í átta ár og aldrei tekið niður
á þeim tíma,“ segir Ólöf Kolbrún Harðardóttir óperusöngkona og lýsir
gripnum nánar ásamt sögunni á bak við hann. „Þetta er óskaplega falleg-
ur hringur með 25 litlum demantssteinum. Ég fékk hann frá nemendum
mínum, þáverandi og fyrrverandi, í tilefni af stórafmæli og hann féll alger-
lega að mínum smekk. Það var líka svo góður hugur á bak við gjöfina og
vel til hennar vandað á allan hátt. Samkennari minn til margra ára, píanó-
leikarinn Kolbrún Sæmundsdóttir, hafði fengið þessa hugmynd og smal-
aði saman nemendum sem við höfðum átt sameiginlega þannig að það voru
margir sem lögðu sitt af mörkum.“ -gun
Aldrei tekinn niður
Sonurinn bræddi
hjörtu viðstaddra
Ólöf Kolbrún
með hringinn
sem hún fékk
frá nemendum
sínum fyrir átta
árum .
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
www.plusminus.is
S u ð u r l a n d s b r a u t 4
SJÓNMÆLINGAR
sími 517 0317
plusminus@plusminus.is
2 ára afmæli
út október
20%
afsláttur
5. OKTÓBER 2007 FÖSTUDAGUR