Fréttablaðið - 05.10.2007, Blaðsíða 49
Gerður:
Tónlistin: Kristin Hersh, Jill Scott og
svala djasstónlistin sem var keypt í
Tókýó.
Líkamsræktin: Gönguferðir og sund.
Maturinn: Góðu samlokurnar í
Sandholtsbakaríi.
Verslunin: Skerjaver, Liggalá, Polarn
O. Pyret og Couture.
Slökunin: Síðdegislúrinn.
elstu bekkinga grunnskólans að
bregða sér í hlutverk þeirra. Markmið-
ið með skólaþinginu er að kynna
Alþingi fyrir unglingunum og sýna
þeim hvernig lýðræðið virkar allt í
reynd.“
Katrín: „Daginn eftir fékk ég sendan
link af vefnum barnalandi.is undir
nafninu Katrín Jakobsdóttir. Þar voru
barnalandsmeðlimir miður sín yfir
klæðaburði mínum og kölluðu nýja
kjólinn minn „rollupeysu“. Fyrst varð
ég miður mín en svo sá ég húmorinn í
þessu,“
Þótt Gerður Kristný hafi líka unnið
fyrir Alþingi hefur hún ekki þurft að
hafa áhyggjur af klæðaburði því hún
hefur starfað á bak við tjöldin.
Gerður Kristný: „Er Alþingi spenn-
andi vinnustaður?“
Katrín: „Já, ég bauð mig fram í þetta.
Það er spennandi að tala um samfé-
lagið og mér finnst þetta ekki vera eins
og venjuleg vinna. Mér finnst ég nán-
ast vera farin að fá laun fyrir áhuga-
mál mitt.“
Dreymir ekki um sjónvarps-
stjörnutitil!
Finnst ykkur yfirvofandi sjónvarps-
vinna skemmtileg?
Gerður Kristný: „Já, ég hlakka mikið
til en satt best að segja hef ég aldrei
sótt um vinnu í sjónvarpi. Mér finnst
blöð og útvarp mun áhugaverðari
miðlar.“
Af hverju ertu þá að taka þátt
núna?
Gerður Kristný: „Ég er ung og þarf á
peningunum að halda. Fyrst og fremst
er samt auðvitað gaman að fá að segja
skoðun sína á menningarlífinu í land-
inu.“
Katrín: „Ég var ofsalega spennt fyrir
því að vinna í sjónvarpi áður en ég
byrjaði með hinn alræmda Sunnu-
dagsþátt á Skjá einum. Sá þáttur lækn-
aði mig algerlega af lönguninni að
verða sjónvarpsstjarna. Ég get ekki
horft á sjálfa mig í sjónvarpi því mér
finnst ég alveg skelfileg á skjánum. En
ég tek þetta ekki jafn hátíðlega og
áður. Það er ekki eins og allt standi og
falli með því hvort ég sé frábær eða
bara frekar léleg. Fyrst fannst mér
þetta svo spennandi ekki síst að vera
með eigin þátt og fá að vera með snúru
í eyranu eins og alvörustjórnandi. Ég
áttaði mig á því að ég er svona mann-
eskja sem nota mörg svipbrigði og það
sést rosalega vel í sjónvarpi. Ég lærði
að vera ekki of viðkvæm. Þú ert greini-
lega algerlega afslöppuð gagnvart
þessu, Gerður.“ Katrín lítur á Gerði.
Gerður Kristný: „Þegar ég sé fólkið
sem starfar í Kastljósi og þarf að fara í
smink og hárgreiðslu hvert einasta
skipti sem það mætir í vinnuna fer um
mig.“
Katrín: „Alveg sammála þér, ég
hugsaði þetta oft þegar ég vann sem
málfarsrauðunautur á fréttastofu
Sjónvarps.“
Þegar þær eru spurðar að því hvern-
ig þær ætla að vera í þættinum sínum
líta þær hvor á aðra.
Gerður Kristný: „Tengdamamma
sagði mér um helgina að það hefði
aldrei verið talað um óléttuföt áður
fyrr, heldur hét þetta tækifærisklæðn-
aður. Ætli við mætum því ekki bara í
góðum tækifærisklæðnaði. Það vill
reyndar svo skemmtilega til að Sólveig
Bergmann, fréttakona á Stöð 2 og góð
vinkona mín, er nýbúin að eignast
dreng. Hún lánaði mér óléttufötin sín
svo glöggir áhorfendur Stöðvar 2 geta
reynt að bera kennsl á spjarirnar
hennar Sólveigar.“
Katrín: „Ég verð að viðurkenna að
þetta er vandamál. Síðast þegar ég var
ólétt var ég orðin rosalega leið á þess-
um fimm flíkum sem gengu hringinn
viku eftir viku.“
Gerður Kristný: „Manstu þegar ég
óð að þér inni í Polarn O. Pyret og þú
varst að kaupa þér óléttuföt en ég var
nýbúin að eiga og sagði þér að passa
þig á að kaupa þér ekki of mikið af
óléttufötum? Ég skil reyndar ekkert í
því núna hvers vegna mér fannst ég
knúin til að skipta mér af fatakaupum
þínum. Ég er ekki vön að láta svona í
búðum.“ Katrín man vel eftir þessu og
Gerður Kristný segist telja að hún hafi
verið að reyna að gera henni greiða.
Katrín: „Ég fylgdi ráðum Gerðar svo
bókstaflega að ég er eiginlega búin að
losa mig við öll óléttuföt og hugsaði
með mér, frekar verð ég ber en að vera
í þessum fötum aftur.“
Gerður Kristný: „Það gæti nú aldeil-
is hleypt upp áhorfinu.“
martamaria@frettabladid.is
Katrín:
Tónlistin: Fer eftir skapi hverju
sinni. Sumarfríið var undirlagt af
Hundrað íslenskum eitíslögum en
vetrinum fylgir meiri þungavigtartón-
list.
Líkamsræktin: Að ganga upp
stigana í vinnunni og heima og hjóla
þegar veðrið er ekki of leiðinlegt.
Maturinn: Íslenskt grænmeti og
íslenskur fiskur og svo súkkulaði
hvaðanæva úr heiminum.
Verslunin: Melabúðin er sú verslun
sem stærstan sess skipar í mínu lífi.
Og svo Fjarðarkaup.
Slökunin: Að gera eitthvað
skemmtilegt sem þjónar ekki skýrt
skilgreindum tilgangi.
5. OKTÓBER 2007 | SIRKUS | BLS. 9